Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 14
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Ótal sögur. Sumar stórar, aðrar
smáar, mismerkilegar og misafdrifa-
ríkar hafa orðið til í gegnum aldirnar í
samskiptum Íslands og Danmerkur.
Það sem áður voru samskipti herra-
þjóðar og hjálendu hafa frá árinu 1918
verið á milli tveggja fullvalda þjóða og
í tilefni af aldarafmæli fullveldis Ís-
lands er nú brugðið upp nokkrum
svipmyndum af þessum samskiptum
á sýningu í danska varðskipinu
Vædderen sem liggur nú við Æg-
isgarð.
„Okkur fannst kjörið að velja þessa
leið til að heiðra Ísland á þessum
merkilegu tímamótum,“ segir Mette
Kjuel Nielsen, sendiherra Danmerk-
ur á Íslandi, sem átti frumkvæðið að
sýningunni.
Þar eru til sýnis myndir frá nokkr-
um heimsóknum konunga og krón-
prinsa Danmerkur hingað til lands á
tímabilinu 1874 til 1938 og einnig frá
afhendingu handritanna árið 1971.
Sýningin var opnuð í gær og hún
verður aftur opin í dag á milli kl. 13 og
17. Hún verður síðan opnuð aftur í
Hofi á Akureyri í september.
„Við hefðum að sjálfsögðu getað
leigt sýningarsal,“ svarar Mette spurð
hvers vegna ákveðið hafi verið að
setja sýninguna upp um borð í varð-
skipi. „En þegar við vissum að
Vædderen yrði í höfn á þessum tíma
ákváðum við að hafa sýninguna þar og
nota tækifærið til að vekja athygli á
samstarfi danska sjóhersins við ís-
lensku landhelgisgæsluna og íslensk
yfirvöld. Svo hafa margir, bæði börn
og fullorðnir, gaman af að koma um
borð í skip eins og Vædderen.“
Fáninn sem sjaldan var flaggað
Í þyrluskýli Vædderen, á milli
danska og íslenska fánans, hangir
heiðblár fáni prýddur hvítum fálka
með kórónu. Þetta er íslenski kon-
ungsfáninn. „Þegar Kristján X. kom
til Íslands árið 1921 gat hann ekki
flaggað danska konungsfánanum þeg-
ar hann sigldi inn í höfnina, þar sem
Ísland var þá orðið fullvalda ríki. Þá
var íslenska konungsfánanum flaggað
og mér skilst að þetta hafi verið eitt af
fáum skiptum sem hann var notaður,
ef ekki það eina,“ segir Mette.
Að sögn Mette var að öllum lík-
indum einungis til einn fáni þessarar
gerðar og hefur hans verið leitað víða,
en ekki fundist. „Það er þó ekki hægt
að útiloka að hann leynist einhvers
staðar ofan í skúffu,“ segir hún. Fán-
inn sem er á sýningunni í Vædderen
er nýr og var búinn til fyrir þessa sýn-
ingu eftir að fálkinn hafði verið hrein-
teiknaður.
Fyrstur Danakonunga til að sækja
Ísland heim var Kristján IX. árið
1874. Á sýningunni er teikning frá
heimsókninni en engin ljósmynd.
En þar eru aftur á móti ljósmyndir
sem voru teknar þegar sonur hans,
Friðrik VIII., kom hingað til lands ár-
ið 1907 með um 100 manna fylgdarlið
á tveimur skipum. „Í hópnum voru
m.a. ráðherrar, þingmenn af danska
þinginu, rithöfundar og fólk sem var
áberandi í dönsku samfélagi á þeim
tíma,“ segir Mette. „Það hefur verið
virkilega áhrifaríkt að sjá allt þetta
fólk í þeim smábæ sem Reykjavík var
á þeim tíma og gaman að velta því fyr-
ir sér hvar allt þetta fólk gisti.“
Sumar myndanna sýna býsna af-
slappaða stemningu. T.d. má á einni
þeirra frá árinu 1938 sjá Friðrik krón-
prins Danmerkur og Ingiríði krón-
prinsessu sitja afslöppuð úti í íslenskri
náttúru að drekka bjór í góðra vina
hópi. „Þau tóku bjórinn með sér, þau
vissu sem var að bjór var ekki seldur á
Íslandi,“ segir Mette.
Krónprinsinn varð síðan Friðrik
IX. og var faðir Margrétar Þórhildar
Danadrottningar.
Gáfu drottningu skautbúning
Ein myndanna sýnir Alexandrínu
drottningu í íslenskum skautbúningi,
en hún var eiginkona Kristjáns X. og
síðasta drottning Íslands. „Það er
skemmtileg saga á bak við þennan
búning,“ segir Mette. „Hún kom til Ís-
lands árið 1921, íslenskar konur vildu
taka vel á móti henni og söfnuðu fyrir
búningnum og gullskarti á hann.
Flestir höfðu lítið á milli handanna á
þessum tíma og þetta er svo ótrúlega
fallegur gjörningur.“
Að sögn Mette er skautbúningur-
inn núna á sýningu vegna 100 ára full-
veldisafmælisins á Þjóðarsögusafninu
í Friðriksborgarhöll í Hillerød í Dan-
mörku.
Sögurnar eru margar. Ein sú
merkilegasta, a.m.k. í augum Íslend-
inga, er frá árinu 1971 þegar hluti
þeirra íslensku handrita sem geymd
höfðu verið í Kaupmannahöfn frá 18.
öld var fluttur til Íslands í herskipinu
Vædderen, forvera þess skips sem
hér er fjallað um. Þeim atburði eru að
sjálfsögðu gerð skil á sýningunni með
ljósmyndum Ólafs K. Magnússonar,
sem var ljósmyndari Morgunblaðsins
um áratuga skeið.
Mette segir að talsverðan tíma hafi
tekið að hafa uppi á öllum myndunum.
Þær eru varðveittar á ýmsum söfnum,
m.a. í einkasafni Margrétar Dana-
drottningar, Dronningens Håndbi-
bliotek. Tekin voru afrit af mynd-
unum, þær endurunnar og skerptar
eins og kostur var á og síðan prent-
aðar í stóru broti.
Spurð hvort hægt sé að lýsa til-
gangi og innihaldi sýningarinnar í
fáum orðum svarar Mette: „Við erum
að hylla þetta nána vináttusamband
þessara tveggja þjóða sem hafa geng-
ið í gegnum svo margt saman.“
Svipmyndir úr sögu vinaþjóða
Konungsheimsóknir og skautbúningur drottningar á ljósmyndasýningu í varðskipinu Vædderen
Morgunblaðið/Hari
Sendiherra og skipstjóri Þau Mette Kjuel Nielsen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, og Henrik Petræus, skipstjóri
á Vædderen, segja sýninguna til marks um fjölbreytt samskipti og samstarf Íslendinga og Dana í gegnum árin.
Vær så god – Flatøbogen Meðal þess sem er á sýningunni í Vædderen eru
myndir Ólafs K. Magnússonar frá afhendingu íslensku handritanna 1971.
Fálki með kórónu Íslenska kon-
ungsfánanum var sjaldan flaggað.
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
Lyklahús
Sláttuorf
3.495
5.495
rrulás
1.995
1.995
7.995
4.995
3.995
3.995
Kerrulás
Hjólastandur
á bíl
1.995
Tjaldstæðatengi
Tengi
12v í 230v
Hraðsuðuketill 12v
USB 12v tengi
Fullveldi Íslands 100 ára
Henrik Petræus er skipstjóri
Vædderen og segir samstarf Land-
helgisgæslunnar og varðskipa
danska hersins vera víðtækt og
eiga sér langa sögu. Með bráðnun
ísbreiðunnar í kringum norðurpól-
inn hafi áhersla aukist á mikilvægi
norðurslóða og þörfin fyrir traust
samstarf á þessum slóðum hafi
sömuleiðis aukist verulega. Nú
komi Vædderen nokkrum sinnum
á ári til Íslands.
„Til dæmis eru reglulegar æf-
ingar, bæði í ýmsum viðbrögðum
og aðgerðum og einnig í fjar-
skiptum. Og nú hefur verið búið
svo um að þyrlur Gæslunnar geta
lent á þyrlupöllum Vædderen,“
segir hann.
Vædderen er annað skipið í
flota danska sjóhersins sem ber
þetta nafn en fyrirrennari þess
flutti handritin heim árið 1971.
Nafn skipsins þýðir Hrúturinn og
vísar það til skjaldarmerkis Fær-
eyja, að sögn Henriks. Vædderen á
þrjú systurskip, eitt þeirra er Hvid-
bjørnen – Hvítabjörninn – sem
einnig liggur við Ægisgarð þessa
dagana og vísar það nafn til Græn-
lands.
Hin tvö heita Thetis og Triton.
Liður í mikilvægu samstarfi
VÆDDEREN HEFUR OFT VIÐKOMU Á ÍSLANDI
Morgunblaðið/Hari
Skipstjóri Henrik Petræus er skipstjóri Vædderen og segir samstarfið við Gæsluna
vera víðtækt. Mikilvægi þess hafi aukist í takt við aukið mikilvægi norðurslóða.