Morgunblaðið - 18.07.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800
18. júlí 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 106.04 106.54 106.29
Sterlingspund 140.46 141.14 140.8
Kanadadalur 80.65 81.13 80.89
Dönsk króna 16.666 16.764 16.715
Norsk króna 13.098 13.176 13.137
Sænsk króna 12.058 12.128 12.093
Svissn. franki 106.57 107.17 106.87
Japanskt jen 0.9422 0.9478 0.945
SDR 149.18 150.06 149.62
Evra 124.25 124.95 124.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.2646
Hrávöruverð
Gull 1244.9 ($/únsa)
Ál 2100.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.92 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Umtalsverður
munur hefur verið
á verðþróun eldri
og nýrri íbúða á
höfuðborgarsvæð-
inu síðustu miss-
erin, að því er fram
kemur í Markaðs-
punktum Arion
banka. Mælingar
bankans gefa til
kynna að á meðan
nýtt húsnæði í fjölbýli hafi hækkað í
verði um 17-18% á síðustu tólf mán-
uðum hafi eldri íbúðir aðeins hækkað
um liðlega 2%.
Samkvæmt útreikningum bankans er
fermetraverð í nýjum íbúðum nú um
20% hærra en í eldri íbúðum og hefur
þetta nýbyggingarálag farið hækkandi
undanfarin ár. Segir að leiða megi að
því líkur að það sé fyrst og fremst
vegna þess að kaupendur greiði sífellt
meira fyrir þau gæði sem felist í nýju
húsnæði umfram eldra.
Meiri verðhækkun á
nýju húsnæði en á eldra
Íbúðir Kaupendur
greiða fyrir nýtt.
STUTT
BAKSVIÐ
Sigurður Nordal
sn@mbl.is
Íslenska hönnunarfyrirtækið Tuli-
pop hefur gert samning við alþjóð-
lega stórfyrirtækið Zodiak Kids
um framleiðslu á 52 sjónvarpsþátt-
um sem byggðir verðar á ævintýra-
heimi Tulipop og persónum hans.
Zodiak er hluti af Banijay Gro-
up, sem er einn stærsti sjálfstæði
framleiðandi afþreyingarefnis í
heimi, og mun fyrirtækið framleiða
þáttaröðina í samstarfi við Tulipop,
auk þess að sjá um alþjóðlega sölu
og dreifingu. Áætlaður framleiðslu-
kostnaður við sjónvarpsþáttaröðina
er um 700 milljónir króna.
Tulipop var stofnað árið 2010 af
Signýju Kolbeinsdóttur, vöruhönn-
uði og teiknara, og Helgu Árna-
dóttur, tölvunarfræðingi og MBA,
og vinnur fyrirtækið með alþjóð-
legum framleiðendum sem keypt
hafa rétt til framleiðslu á vörum úr
Tulipop-heiminum.
Tímamót fyrir Tulipop
„Þetta er tímamótasamningur
fyrir okkur, enda erum við nú kom-
in með aðila sem ætlar að fjár-
magna framleiðslu á stórri teikni-
myndaseríu og selja hana
alþjóðlega,“ segir Helga í samtali
við Morgunblaðið. „Við leggjum
fram hugverkið og fáum eignarhlut
í verkefninu út á það, auk þess sem
starfsfólk okkar mun starfa við
verkefnið.“
Tulipop hefur áður framleitt 10
stutta teiknimyndaþætti sem sýnd-
ir hafa verið í Ríkisútvarpinu og á
Youtube. Þar hefur áhorf þegar
farið yfir tvær milljónir. Helga
segir að hér sé þó allt annað og
mun stærra verkefni á ferðinni.
„Hér er um að ræða lengri teikni-
myndaþætti en við höfum áður
framleitt og það verður mjög mikið
lagt í þessa seríu. Ef allt gengur að
óskum fer framleiðsla þáttanna af
stað fyrir lok næsta árs og þátta-
röðin fer í sýningar fyrir lok árs
2020.“
Styður við sölu varnings
Helga bendir á að sjónvarps-
þættirnir muni styðja verulega við
sölu á varningi tengdum Tulipop-
heiminum. „Þar byrjuðum við, í því
að hanna vandaðar og fallegar
vörur fyrir börn á öllum aldri, þar
með talda foreldra. Við framleiðum
og dreifum sjálf vörulínunni hér á
Íslandi. En annars staðar í heim-
inum erum við hins vegar að
byggja upp nytjaleyfissamninga við
fyrirtæki sem fá rétt á því að fram-
leiða ákveðnar tegundir af Tulipop-
vörum.“
Sem dæmi nefnir Helga banda-
ríska leikfangaframleiðandann
Toynami, sem keypt hefur rétt á
því að gera mjúkdýr og fleira sem
tengjast Tulipop-persónunum.
Þessi leikföng eru nú í boði í fleiri
en 300 verslunum í Bandaríkjun-
um. „Það að vera komin með
teiknimyndaseríu fyrir sjónvarp í
framleiðslu stóreykur möguleikana
á að gera slíka samninga við öflug
fyrirtæki í leikföngum, fatnaði eða
hverju sem er,“ segir Helga.
Stærsti markaðurinn fyrir nytja-
leyfissamninga er í Bandaríkjunum
og snemma árs 2017 opnaði Tuli-
pop skrifstofu í New York, í kjölfar
hlutafjáraukningar þar sem fjár-
festingarsjóðurinn Frumtak kom
inn í hlutahafahópinn. Hér á Ís-
landi eru starfsmenn nú sex. „Í
stað þess að stækka starfsmanna-
hópinn mikið höfum við leitað til
utanaðkomandi ráðgjafa og sér-
fræðinga sem koma að einstökum
verkefnum. Það hefur reynst mjög
vel,“ segir Helga.
Auk stofnendanna og Frumtaks
eru helstu eigendur Tulipop félög í
eigu Dóru Bjargar Marínósdóttur
og hjónanna Lindu Bjarkar Ólafs-
dóttur og Boga Þórs Sigurodds-
sonar.
Tulipop semur við stórfyrir-
tæki um gerð sjónvarpsþátta
Ljósmynd/Tulipop
Tulipop Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir stofnuðu fyrirtækið.
Ævintýraheimur
» Tulipop vinnur með alþjóð-
legum framleiðendum sem
keypt hafa réttinn til að fram-
leiða vörur úr Tulipop-
heiminum.
» Vinna við þróun sjónvarps-
þátta hófst fyrir 18 mánuðum
þegar fengnir voru sérfræð-
ingar til að þróa handrit og út-
búa stuttmynd með útliti þátt-
anna.
» Stefnt er að því að þáttaröð-
in fari í sýningar fyrir lok árs
2020.
Framleiðslukostnaður 52 þátta um 700 milljónir króna Styður sölu varnings
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Smásölustarfsemi Festi, sem m.a.
rekur verslanir Krónunnar, Nóatúns
og Elko, skilaði 1,7 milljarða hagnaði
eftir skatt á nýliðnu rekstrarári sem
stóð frá mars 2017 til febrúar 2018.
Á tímabilinu seldu verslanirnar
vörur fyrir 39,8 milljarða króna og
jókst salan um 2,3% frá fyrra ári að
teknu tilliti til aflagðrar starfsemi, en
fyrirtækið lokaði verslunum sem það
hafði rekið undir merkjum Inter-
sport. Mest reyndist aukning í raf-
tækjasölu, eða 4,8%, en aukin sala í
matvöru nam 1,3%. Framlegð nam
tæpum 8,1 milljarði króna og jókst
um 3,3%, úr 7,8 milljörðum rekstrar-
árið á undan. Aðrar tekjur jukust um
10,9% og námu tæpum 973 milljónum
króna.
Launakostnaður hækkaði um 11%
og fór úr tæpum 3,4 milljörðum króna
í tæpa 3,8 milljarða.
Annar rekstrarkostnaður nam
tæpum 3 milljörðum og lækkaði um
2,4% milli ára. EBITDA jókst um
2,4% milli ára og nam 2,3 milljörðum
króna.
Jón Björnsson, forstjóri Festi, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að áfram
megi gera ráð fyrir harðri samkeppni
á smásölumarkaði þótt líkur standi til
að rykið setjist nokkuð eftir mikið
umbreytingaskeið síðustu tvö árin.
„En það er fleira sem hefur áhrif á
þennan markað, m.a. breyttar neyslu-
venjur fólks og breytt samsetning í
fjölskyldustærðum.“
Í júní 2017 var tilkynnt um kaup N1
á öllu útgefnu hlutafé í Festi. Sam-
keppniseftirlitið hefur gefið það út að
samruni fyrirtækjanna muni fela í sér
röskun á samkeppni að öllu óbreyttu.
N1 hefur lagt fram tillögur um skil-
yrði sem fyrirtækið er reiðubúið að
gangast undir svo verða megi af sam-
runanum. Stofnunin hefur þær tillög-
ur nú til skoðunar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Krónan Matvörusalan jókst um 1,3%
hjá verslunum Festi á rekstrarárinu.
Smásalan skilaði 1,7
milljörðum í hagnað
Festi seldi vörur
fyrir 39,8 milljarða