Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 23

Morgunblaðið - 18.07.2018, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 Móðir mín Sig- ríður Reimarsdótt- ir, eða Sigga í Ás- garði eins og hún var oftast kölluð, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. júlí síðastliðinn og langar mig að minnast henn- ar í fáeinum orðum. Mamma var hóvær og lítillát kona sem miklaðist ekki af verkum sínum, þó að oft væri full ástæða til. Í Ásgarði hjá þeim foreldrum mínum voru ekki mikil veraldleg gæði en þeim mun meira af ást og hlýju sem við systkinin fengum að njóta. Það voru ekki bara við systkinin sem nutum ástúðar mömmu, heldur einnig þau börn og unglingar sem voru í sveit í Ásgarði og hafa þau sagt mér að þetta hafi verið ein af bestu árum ævi þeirra. Mamma var mikið náttúru- barn og naut hún sín best úti í náttúrunni. Hún þekkti flóru Íslands vel og ef maður þekkti ekki einhver blóm eða grös, stóð ekki á svari hjá henni. Mömmu gafst ekki kostur á langri skólagöngu í uppvextin- um og ef til vill þess vegna lagði hún áherslu á að við systkinin sinntum heimanámi okkar og passaði hún vel upp á það. Við mamma fórum oft saman að veiða en það þótti henni af- skaplega gaman og var hún mjög þolinmóður og góður veiðimaður. Eitt sinn man ég að við vor- um að veiða í Breiðdalsá, ánni okkar, sem við höfðum svo mik- ið dálæti á og vorum á svæði 4, Sigríður Reimarsdóttir ✝ Sigríður Reim-arsdóttir fædd- ist 8. desember 1935. Hún andaðist 4. júlí 2018. Útför Sigríðar fór fram frá Hey- dalakirkju í Breið- dal 14. júlí 2018. þ.e. ofan við Belj- anda í Suðurdal. Lögðum við bílnum við Efri-Beljanda að sunnanverðu og gengum upp með ánni. Þegar við komum að Vala- bakkahyl, þá segir hún að sig langi að renna í þann hyl og ég held því áfram upp með ánni. Nokkru síðar kem ég til baka með fáeina urriðatitti í poka. Situr hún þá ekki sæl og glöð með tíu punda hæng sér við hlið á klöppinni og gleymi ég aldrei svipnum á henni á þeirri stundu. Hún var ekki fyrir það að veiða og sleppa eins og nú tíðkast, fyrir henni var þetta matur sem hún fór með heim í Ásgarð og matreiddi. Mamma var hagsýn og úr- ræðagóð en hún þurfti líka að vera það. Ég held að það sé mjög erfitt fyrir fólk í dag að sjá fyrir sér þær aðstæður sem hún bjó við. Ekkert rafmagn, enginn ísskápur, né svo ótal- mörg þægindi sem við búum við í dag og finnst sjálfsagt og ómissandi. Alltaf sá mamma til þess að nægur matur væri til og minn- ist ég þess aldrei að svo hafi ekki verið. Síðustu ár mömmu voru henni erfið en hún var búin að fá blóðtappa nokkrum sinnum og lamaðist vinstra megin af þeim sökum. Það átti ekki við hana að þiggja aðstoð, það átti betur við hana að veita hana öðrum. 30. júní síðastliðinn hittumst við fjölskyldan og vinir, afhjúp- uðum minningarplatta föður okkar til heiðurs en hann hefði orðið hundrað ára á þessu ári. Við skoðuðum einnig gamlar myndir á breiðtjaldi í skemm- unni á Ásunnarstöðum og nut- um frásagnar Ástu frænku í Snæhvammi, sem rifjaði upp margt skemmtilegt og fróðlegt með myndunum. Mamma sagði að sig hefði aldrei grunað að hún ætti eftir að upplifa það að koma austur í litla Ásgarðinn sinn, sjá öll börnin sín samankomin og hitta ættingja og vini. Sitja á pall- inum sínum í því góða veðri sem var, njóta fegurðar dalsins og sofa í rúminu sínu. Ég er sæll og glaður að þú skyldir ná að upplifa þetta, elsku mamma. Þú kenndir mér að ég skyldi koma fram við aðra eins og ég vildi að aðrir kæmu fram við mig. Ég held áfram að reyna en mér tekst það sjálfsagt aldrei eins vel og þér. Þín verður sárt saknað og hafðu þökk fyrir allt, elsku mamma mín. Þinn sonur, Halldór Pétur Ásgeirsson. Elskaður faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN RAGNARSSON skipstjóri, Andrésbrunni 12, Reykjavík, lést föstudaginn 13. júlí. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti föstudaginn 20. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Hafrún Kristjánsdóttir María Lúísa Kristjánsdóttir Sigurður Sverrir Jónsson Kristín Kristjánsdóttir Kristján H. Þorleifsson Sigurbjörg G. Kristjánsdóttir Sigurbjörn Kristjánsson Sigurlaug E. Kristjánsdóttir Björn F. Svavarsson Karen Elín Kristjánsdóttir Guðmundur H. Guðmundsson afa- og langafabörn Ástkær móðir okkar, DAGBJÖRT SÓLEY SNÆBJÖRNSDÓTTIR, andaðist á gjörgæslu Landspítalans föstudaginn 13. júlí. Útförin fer fram í Langholtskirkju fimmtudaginn 26. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast Dagbjartar eru beðnir að láta Öldrunardeild Vífilsstaða njóta þess. Guðrún Snæfríður Gísladóttir Pétur Blöndal Gíslason Elín Sigríður Gísladóttir tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, dóttir og systir, SVANHILDUR HELGADÓTTIR, Þorlákshöfn, lést miðvikudaginn 11. júlí á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju laugardaginn 21. júlí klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarreikning barna hennar: 0152-05-010189, kt. 250200-3580. Dagbjartur Sebastian Østerby Álfheiður Østerby Sigríður Ingibjörg Guðmundsdóttir Eggert Stefán Stefánsson Una Kristínardóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 ✝ SigursteinnSigurðsson fæddist í Reykjavík 18. júlí 1958. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 15. maí 2018. Foreldrar Sig- ursteins eru hjónin Sigurður S. Magn- ússon, yfirlæknir og prófessor, f. 16. apríl 1927, d. 21. október 1985, og Audrey Magnússon hjúkrunarkona og húsfreyja, f. 5. janúar 1932. Systur Sigursteins eru Ingi- björg, f. 21. júlí 1957, hún á fimm börn og fimm barnabörn, m. Þorleifur Stefán Guðmundsson, d. 1. september 2016. Anna María, f. 4. júlí 1960, búsett í Sví- Edinborgar í Skotlandi og þaðan til Svíþjóðar þar sem hún bjó í Köping og lengst af í Umeå. Hann lauk grunnskólagöngu í Sofiehemsskolan og Mimer- skolan í Umeå og flutti fjöl- skyldan aftur til Íslands árið 1974, þegar hann var 16 ára gamall. Sigursteinn varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1979 og vann sem innkaupa- fulltrúi og deildarstjóri hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga á árunum 1980-1991. Þá flutti hann til Stokkhólms í Svíþjóð þar sem hann bjó í 17 ár en hann stundaði einnig nám um tíma við Hälsohögskolan í Jönköping. Sigursteinn flutti aftur til Ís- lands árið 2008 og bjó í Reykja- vík. Frá árinu 2013 vann hann í Seljahlíð, heimili aldraðra, í Reykjavík, og starfaði hann þar til dauðadags. Aðalstarfsvett- vangur hans síðustu áratugina var við liðveislu og aðhlynningu. Útför Sigursteins fór fram í kyrrþey frá Háteigskirkju 4. júní 2018. þjóð, hún á þrjú börn, m.1 Niki Langhammer, d. 27. september 1999, m.2 Janusz Gross. Snjólaug Elín, f. 27. ágúst 1962, hún á þrjú börn, m. Ragn- ar Hrafnsson. Hjör- dís, f. 13. október 1964, hún á einn son með fyrrverandi sambýlismanni, Þórarni Kristjánssyni, og eitt barnabarn. Dóttir Sigursteins er Alva Lí- ney Audrey Sigurdsson, f. 25. apríl 2000, búsett í Svíþjóð og er móðir hennar Annica Petters- son. Þegar Sigursteinn var tveggja ára flutti fjölskylda hans til Í dag, þann 18. júlí, hefði bróðir okkar og mágur, Sigursteinn Sig- urðsson, orðið sextugur en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 15. maí sl. Steini, eins og hann var jafnan kallaður, fæddist á Landspítalan- um í Reykjavík 18. júlí 1958. Vegna sérnáms og starfa föður, flutti fjölskyldan árið 1960 til Ed- inborgar í Skotlandi. Þaðan lá leiðin til Svíþjóðar, þar sem fjöl- skyldan bjó í Köping og í Umeå. Á æskuárum lék Steini knatt- spyrnu og þótti efnilegur sund- maður en hann æfði sund hjá Umeå simsällskap í mörg ár. Á veturna var farið á skíði og spilað íshokkí. Steini var duglegur að vinna sér inn aura, var m.a. óþreytandi við að selja happ- drættismiða og gekk í hús og seldi sunnudagsútgáfu Dagens Nyhe- ter snemma á sunnudagsmorgn- um ásamt eldri systur sinni. Hann var einnig í hlutastarfi hjá kaup- manninum á horninu, farbror Karlsson þar sem hann sinnti verslunarstarfinu af natni. Lífið breyttist sannarlega árið 1974 þegar fjölskyldan flutti til Ís- lands. Nýtt umhverfi, nýtt tungu- mál, nýir vinir, ný áhugamál, eng- ir hjólastígar, nýr skóli, allt voru þetta aðstæður sem þurfti að að- lagast. Steini var ávallt bjartsýnn og jákvæður og hélt ótrauður áfram í verkefnum dagsins þegar við systurnar fundum nýja heima- landinu allt til foráttu. Steina gekk vel að eignast vini enda var hann félagslyndur, for- vitinn og léttur í lundu, geðgóður og mikill brandarakarl. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1979. Þá eyddum við elstu systkinin löngum stundum á kaffihúsi Nor- ræna hússins sötrandi óteljandi kaffibolla, drekkandi í okkur skandinavískt yfirbragð og and- rúmsloft hússins og lúslásum sænsku dagblöðin, kannski til að viðhalda tengslum við „gamla“ landið. Það var svo gott að vera saman, hann var góður félagi og húmoristi. Á árunum 1980-1991 vann Steini sem innkaupafulltrúi og deildarstjóri hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga þar sem hann naut trausts og vinsælda meðal samstarfsmanna sinna. Ár- ið 1991 flutti hann til Stokkhólms í Svíþjóð og vann m.a. við liðveislu og aðhlynningarstörf hjá Stock- holms Stad, Nacka kommun og Riksbyggen. Samskiptin minnk- uðu en Steini hringdi reglulega og vildi fá fréttir af fjölskyldu, systra- börnum og vinum. Hann var í sambúð með Annica Pettersson í nokkur ár og eignaðist með henni dótturina Alva sem fæddist 25. apríl 2000. Annica og Steini slitu samvistum. Leiðin lá aftur til Íslands árið 2008. Á þessum tíma fór allt á hvolf á Íslandi og fór Steini ekki varhluta af erfiðleikunum en vann m.a. hjá Landspítalanum og Reykjavíkurborg. Hann var síðar í sambúð með Katrínu Guðjóns- dóttur til ársins 2018 er þau slitu samvistum. Frá árinu 2013 vann Steini í Seljahlíð í Reykjavík og starfaði hann þar til dauðadags. Hann var ánægður í vinnunni, vin- sæll og vel liðinn. Í dag viljum við minnast Steina bróður sem góðs drengs sem var góðum mannkostum búinn. Það geisuðu stormar í lífi Steina og hann barðist við skugga sem lit- uðu ævi hans. Hann er nú kominn í var. Nu är du fri gode broder. Vila i frid. (Núna ertu frjáls góði bróðir. Hvíldu í friði). Ingibjörg (Inga), Anna, Snjólaug Elín (Lóló) og Ragnar (Raggi). Fyrst sá ég Steina þegar við vorum báðir 7 ára gamlir í Umeå í Svíþjóð. Foreldrar Steina höfðu boðið okkur að koma frá Lycksele í heimsókn. Steini bauð mér að koma með sér að leika og sýna mér hjólið sitt. Ég þáði ekki boðið að sinni útaf feimni. Við Steini hlógum stundum að þessum fyrsta fundi okkar og ég skamm- aðist mín pínulítið fyrir þetta. Ári síðar fluttist fjölskylda mín til Umeå. Ég byrjaði í sama skóla og sama bekk og Steini og árið var 1967. Stuttu áður en skólinn byrj- aði átti Steini frumkvæði að því að kynna mig fyrir tilvonandi bekkj- arfélögum mínum. Fjórum árum síðar flutti ég til Lundar sem er u.þ.b. 1.400 km sunnar í landinu. Við vorum ekki lengur bekkjarfélagar en við vor- um nánir bernskuvinir og þeir gleymast aldrei. Sumarið 1972 fékk ég að fara til Íslands og búa hjá ömmu minni. Ég hreifst svo af landinu og ætt- ingjum að ég fékk að fara hvert sumar eftir það. Á Íslandi hitt- umst við Steini aftur af tilviljun á sameiginlegum vinnustað. Eins gott, því við hefðum aldrei þekkst á götu útaf hárlubbunum á höfð- um okkar, sem þá var orðin vinsæl „klipping“. Við Steini töluðumst alltaf sam- an á sænsku. Ástæðan var sú að Steini lærði ekki íslensku fyrr en hann flutti til landsins sem táning- ur. Þessi vani fór í taugarnar á fólki en ég útskýrði þetta með því að við þekktumst á sænsku. Þetta var okkar samverumál frá byrjun og erfitt að skipta um tungumál. Sumarið 1974 vorum við Steini 16 ára gamlir og því ekki með bíl- próf. En við vorum heppnir því að Ingibjörg, ein af mörgum (fjórum) systrum Steina, var með bílpróf. Með leyfi foreldranna, Audrey og Sigurðar, fékk hún að nota Austin Mini-bíl að vild og keyrði okkur allt sem við vildum fara. Við alla bíltúra, sumarkvöld og nætur, hlustuðum við stanslaust á út- varpsstöðina „Kanann“ sem sendi út lítið annað en popptónlist, nýja og gamla. En oft vorum við auðvit- að heima og hlustuðum á plötur og spiluðum þá oft loftgítar. Sum lög flytja mig í huganum samstundis aftur til Steina og systur hans og minna á ferðir okkar um nágrenni Reykjavíkur í litla bílnum. Við vorum oft keyrðir í bíó og á tíma- bili vorum við búnir að sjá ná- kvæmlega allt sem bíóin höfðu til sýningar. Ekki skrýtið að frændi minn færi til mín að fá bíóráð það sumar. Ég flutti til Íslands og við vor- um nánir vinir í MR. Eftir stúd- entspróf bjuggum við langt hvor frá öðrum og hittumst sjaldan. En þegar við hittumst var alltaf eins og við hefðum talast við í gær. Þannig er það milli góðra vina. Það var um kvöld þann 15. eða 16. maí sem ég sat við tölvuna mína og varð hugsað til Steina. Langt síðan ég heyrði í honum eða af honum. Hvernig ætli hann hafi það? Faðir hans dó á svipuðum aldri, varð mér hugsað. Hræðilegt væri ef hann dæi og ég fengi ekk- ert að vita. Seint sunnudagskvöld 20. maí barst mér tölvupóstur frá Snjólaugu systur hans um lát Steina. Daginn eftir fór ég í kirkju og bað fyrir sál vinar míns Steina og fann nærveru hans. Ég sendi fjölskyldu Steina mín- ar einlægu og sorgmæddu samúð- arkveðjur. Guðmundur Arnarsson (Blue boy), Svíþjóð. Sigursteinn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.