Morgunblaðið - 18.07.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 18.07.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2018 Haukur Pálmason, tónlistarmaður og upptökutæknir, er fimmtugurí dag. Í símaskránni er hann titlaður „tónlistargagnagrunna-sérfræðingur“. Hljómmikið starfsheiti, enda segir titilberi í sam- tali við blaðamann að þetta sé „hálfgert grín“. Samt er starfsheitið lýsandi, því Haukur er bæði menntaður upptökutæknir og tölvunarfræðingur. Pabbi hans stofnaði Tónabúðina og þar vann Haukur í tuttugu ár. Hann er BS í tölvunarfræði frá HA 2004 og MS í tölvunarfræði frá HR 2011, þar sem lokaverkefni hans var sjálfvirk tegundarflokkun tónlistar í stórum tónlistargagnagrunnum. Loks sótti hann háskólanám við Fullsail Univers- ity í Florida í hljóðupptökutækni. „Í Bandaríkjunum lét ég að vissu leyti gamlan draum rætast. Ég er tónlistarmaður sjálfur og hafði því jafnan verið að taka eitthvað upp en þarna ákvað ég loks að læra það almenni- lega,“ segir Haukur. Nú er hann annars vegar fagstjóri Skapandi tónlistar við Tónlistar- skólann á Akureyri og hins vegar kennir hann eitt námskeið í tölvunar- fræði í HA. „Svo er ég töluvert að taka upp. Á þessu ári hef ég tekið þátt í upptökum á þremur bíómyndum og einni sjónvarpsþáttaröð með Sinfóníu Nord í Hofi hér á Akureyri, auk verkefna með öðrum norðlenskum tónlistarmönnum.“ Haukur fagnar fimmtugsafmælinu hraustur. Hann fer í Crossfit fimm sinnum í viku, ef hann getur. Hann stefnir meira að segja á að fara í há- deginu í dag, áður en veisluhöld hefjast. „Svo ætla ég að halda gamaldags pylsupartí eins og þegar maður var tíu ára. Framan af verða vöfflur og svo grillum við pylsur.“ Og hvernig er að verða fimmtugur? „Maður getur ekki kvartað. Það er annaðhvort að eldast eða drepast. Sennilega betra að eldast.“ Haukur er giftur Sigurbjörgu Ósk Sigurðardóttur, leikskólakennara, listamanni og markþjálfa, og saman eiga þau þrjú börn. Crossfittari út í gegn Haukur hefur verið í crossfit í hátt í átta ár, al- veg síðan Crossfit RVK hafði aðstöðu í bílskúr í Mosfellsbæ. Annaðhvort að eldast eða drepast Haukur Pálmason er fimmtugur í dag Ó lafur Gunnarsson fædd- ist 18. júlí 1948 í Reykja- vík og ólst upp í Skuggahverfinu. „For- eldrar mínir áttu sumarhús í Mosfellssveit, við fluttum þangað á vorin og aftur í bæinn þegar skólar byrjuðu á haustin.“ Ólafur var í Skóla Ísaks Jónssonar, Laugarnesskóla og lauk gagnfræða- prófi frá Lindargötuskóla vorið 1965. Þaðan lá leiðin í Verzlunarskóla Ís- lands og lauk hann verslunarprófi 1969. „Dvölin í Versló var einstakur hamingjutími og ég held enn góðu sambandi við marga skólafélaga.“ Ólafur stundaði verslunarstörf hjá Ásbirni Ólafssyni hf. 1965-71, var bif- reiðarstjóri læknavaktar 1972-78 og hefur sinnt ritstörfum frá 1974. „Ég byrjaði að velta fyrir mér skáldskap vorið 1967 og gaf út mína fyrstu ljóða- bók 1970. Ef frá eru talin ritstörfin þá kunni ég best við mig í starfi sem bíl- stjóri læknavaktar,“ en faðir Ólafs sinnti einnig því starfi. Ólafur flutti með fjölskyldunni til Kaupmanna- hafnar 1978, en hefur annars búið á Íslandi. „Það átti að verða ársdvöl en árin urðu sex. Þar skrifaði ég tvær skáldsögur.“ Meðal viðurkenninga sem Ólafur hefur fengið á ferlinum er viður- kenning úr rithöfundasjóði RÚV á gamlársdag 1999 og bóksala- verðlaunin og íslensku bókmennta- verðlaunin 2003 fyrir skáldsöguna Öxin og jörðin. Ritverk Ólafs eru þessi: Ljóð, 1970; Upprisan, ljóð, 1976; Hrognkelsin, saga, 1977; Milljón-prósent-menn, skáldsaga, 1978; Ljóstollur, skáld- Ólafur Gunnarsson rithöfundur – 70 ára Rithöfundurinn Ólafur fyrir utan heimili sitt á Stóru-Klöpp þar sem foreldrar hans áttu sumarhús. Skáldið á Stóru-Klöpp Lét drauminn rætast Einar Kárason og Ólafur við Pontiac-bílinn. Hrafnhildur Markúsdóttir og Sigrún Erla Þórarinsdóttir héldu tombólu við Nóatún og söfnuðu þar 1.930 kr. sem þær færðu Rauða krossinum að gjöf. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177 Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.