Morgunblaðið - 18.07.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 18.07.2018, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 199. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Morðið á April litlu loks upplýst 2. Heimir hættur með landsliðið 3. Heimir stefnir á enskumælandi … 4. Mögulegir eftirmenn Heimis »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  The Metropolitan Flute Orchestra frá Boston og Íslenski flautukórinn halda tónleika saman í Norðurljósa- sal Hörpu í kvöld kl. 20. Á efnis- skránni eru verk eftir J. Sibelius, E. Grieg, F. Mendelssohn og Manuel De Falla auk verka eftir bandarísk 20. aldar tónskáld. Hljómsveitin leikur einnig í Skálholti á morg- un og í Hofi 21. júlí. Flautuhátíð í Hörpu Á fimmtudag Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað og lítils hátt- ar rigning öðru hverju, en skýjað með köflum A-lands og stöku skúrir síðdegis. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast S-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt 3-10 og þykknar upp S- og V- lands með dálítilli vætu við ströndina en síðan rigningu í kvöld. Víða bjartviðri fyrir austan. Hiti 9 til 19 stig. VEÐUR „Ég vissi að ég þyrfti að leggja mig allan fram hérna heima og það er það sem ég hef gert. Mér finnst ekki gaman að gera hlutina án þess að gera þá 100% og ég er ekki bara sátt- ur við mína frammistöðu held- ur liðsins í heild sinni. Við er- um á góðum stað í dag en það er mikið eftir af þessu ennþá,“ segir Sölvi Geir Ottesen, sem hefur leikið mjög vel með Vík- ingum það sem af er tíma- bilinu. »4 Við erum á góðum stað í dag Heimir Hallgrímsson er hættur með karlalandslið Íslands og er KSÍ á byrj- unarreit í leit sinni að arftaka hans. Sá verður undir gríðarlegri pressu að ná góðum árangri. Ekki liggur fyrir hvað Heimir sjálfur mun taka sér fyrir hendur en þó er ljóst að hugur hans stendur frekar til þess að þjálfa erlent félagslið en landslið, og það þyrfti helst að vera í ensku- mælandi landi. »1 Heimir hættur og arf- takinn undir pressu Íslandsmeistarar Þórs/KA komust á ný í toppsæti Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöld með yfir- burðasigri gegn Grindvíkingum, 5:0. HK/Víkingur og KR unnu mikilvæga sigra í baráttunni í neðri hluta deild- arinnar og KR-konur fengu þar fyrstu stig sín síðan í fyrstu umferðinni í vor. HK/Víkingur er komið upp í fimmta sætið. »2-3 Meistararnir komust aftur í efsta sætið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Skröltormar, múrmeldýr og skógar- eldar eru meðal þess sem hefur orð- ið á vegi Hrólfs Vilhjálmssonar á fyrstu 1.000 mílum tæplega 2.700 mílna göngu hans frá landamærum Mexíkó í suðri til landamæra Kan- ada í norðri. Hrólfur er 25 ára göngugarpur sem gengur nú hina frægu Pacific Crest-leið sem liggur m.a. í gegnum Sierra Nevada- og Cascade-fjallgarðana og um þrjú ríki; Kaliforníu, Oregon og Wash- ington. Hrólfur áætlar að gangan muni taka um fimm mánuði en hann tók fyrstu skref göngunnar fyrir um tveimur mánuðum og kemur að öllu óbreyttu aftur til Íslands í október. Tveggja ára undirbúningur „Fjölskyldan mín hefur alltaf ver- ið mikið göngufólk. Frá unga aldri hafa foreldrar mínir dregið mig og bræður mína í fjallgöngur út um allt land og jafnvel út fyrir landstein- ana. Ég hafði vitað af þessari gönguleið í nokkur ár og alltaf haft áhuga á henni. Svo fyrir um tveim- ur árum breyttist þessi áhugi í al- vöru og síðan þá hef ég unnið að því að safna fyrir henni ásamt því að búa til frítíma til að ganga hana,“ segir Hrólfur, spurður hvað hafi orðið kveikjan að því að hann ákvað að ganga hina löngu leið. Hann segir að sér hafi þótt til- hugsunin um að ganga samfellda leið frá Mexíkó til Kanada ein- staklega spennandi en einnig hafi hann vitað að gönguleiðinni væri vel haldið við, þar sem hún er ein af 11 þjóðleiðum Bandaríkjanna (e. Nat- ional Scenic Trail). Sléttuúlfar og skógarbirnir Þrátt fyrir að Hrólfur hafi tjaldað á búsvæði skógarbjarna og heyrt sléttuúlfa ýlfra segir hann sig ekki hafa lent í neinum alvarlegum áföll- um enn. „Þetta hefur gengið eins og í sögu hingað til. Ég byrjaði til- tölulega seint á göngutímabilinu vegna þess að ég var ekki búinn í prófum fyrr en um miðjan maí,“ segir Hrólfur, sem lauk gráðu í ferðamálafræði nú í vor. „Ég hafði af því áhyggjur að allt of heitt yrði í S-Kaliforníu og að ég þyrfti því að ganga mikið á nótt- unni. Hins vegar hefur veðrið verið mér einstaklega hliðhollt og eyði- mörkin í S-Kaliforníu var alls ekki jafn heit og hefur verið síðustu ár. Ég hef líka verið heppinn með litla úrkomu, því það hefur á tveimur mánuðum rignt á mig í samtals tíu mínútur.“ Spurður hver hafi verið fallegasti hluti göngunnar hingað til nefnir Hrólfur Sierra Nevada-fjallgarðinn, sem hann hefur nú nýlokið göngu yfir. „Allur síðasti hluti göngunnar, Mið-Kalifornía, var ógleyman- legur.“ Þvær ef hann nennir Hann segist einnig vera þakk- látur fyrir sjálfboðaliðana á leiðinni sem gefa tíma og vinnu til aðstoðar göngufólkinu. „Hvort sem það er að viðhalda vatnsbirgðum á þurrustu hlutum leiðarinnar eða setja upp grillvagn á miðri leið og elda ofan í okkur sem erum hérna úti er ég alltaf jafn þakklátur fyrir slík góð- verk.“ Þar sem Hrólfur geymir allt sitt hafurtask á bakinu reynir gangan einnig á skipulagshæfileika hans. Hann hefur nokkrum sinnum þurft að fara svangur að sofa til þess að mataráætlun gengi upp og segir það lykilatriði að gleyma sér ekki í stóru atriðunum. „Eftir að ég fór að horfa skemmra fram í tímann og taka hvern legg út fyrir sviga einfald- aðist líf mitt til muna. Þessi ganga er í raun ekkert nema samansafn smærri gönguferða og því er bak- pokinn minn settur upp á sama hátt og ef ég undirbyggi vikulanga bak- pokaferð. Ég er með tjald, dýnu og svefnpoka, örfá raftæki og hrein- lætisvörur, aukaföt og mat eftir því hversu marga daga ég reikna með að leggurinn taki,“ segir Hrólfur og bætir við með brosi: „Þegar ég kem á næsta áfanga- stað þarf ég einungis að kaupa mat, fara í sturtu og þvo föt, ef ég nenni.“ Gengur yfir Bandaríkin  Hefur gengið yfir 1.000 mílur á tveimur mánuðum Ljósmyndir/Hrólfur Vilhjálmsson Stórstígur Hrólfur hefur nú gengið á hverjum degi síðan í maí. Hann áætlar að gangan taki um fimm mánuði. Garpur Hrólfur á toppi Forester- skarðs, í rúmlega 4.000 metra hæð.  Tina Dick- ow og Helgi Jónsson koma fram í tónleikaröð Norræna hússins í kvöld kl. 21. Bæði eru þekktir tónlistarmenn í heimalöndum sínum, en Tina er dönsk og hefur gefið út tíu plötur og Helgi Hrafn er þekktur sem söngva- skáld og fyrir að spila með ýmsum tónlistarmönnum, m.a. Sigur Rós. Tina og Helgi eru hjón og hafa undan- farin ár farið saman í tónleikaferða- lög og komið fram á nokkrum af stærstu tónlistarhátíðum Evrópu. Tina og Helgi leika í Norræna húsinu  Kvintett píanóleikarans Baldvins Snæs Hlynssonar kemur fram á tón- leikum djassklúbbsins Múlans í kvöld kl. 21 á Björtuloftum í Hörpu. Sveitin mun leika lög af nýjustu plötu Bald- vins, Renewal. Með Baldri leika Björg- vin Ragnar Hjálmarsson á saxófón, Bjarni Már Ingólfsson á gítar, bassa- leikarinn Sigmar Þór Matthíasson og Skúli Gíslason á trommur. Leika lög af Renewal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.