Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  168. tölublað  106. árgangur  HARALDUR FRANKLÍN Í SVIÐSLJÓSINU ALDREI LÁNAÐ EINS MIKIÐ Í EINUM MÁNUÐI SEGULHARPA ÚLFS TILBÚIN TIL FJÖLDA- FRAMLEIÐSLU VIÐSKIPTAMOGGINN HLJÓÐFÆRI 3816 SÍÐNA SÉRBLAÐ  Nýtt 150 her- bergja Court- yard by Marriott- flugvallarhótel verður opnað við Keflavíkur- flugvöll á næsta ári. Fjármögnun hótelsins er að fullu lokið og verður fyrsta skóflustungan tekin í dag. Framkvæmdir hefjast strax í kjölfarið. Capital Hotels, sem rekur fjögur hótel í Reykjavík og eitt í Borgarnesi, verður sér- leyfishafi nýja hótelsins. Aðaltorg ehf. er byggingaraðili verkefnisins og hyggst félagið reisa fjölbreytt verslunar- og þjónusturými í grennd við hótelið. Courtyard-hótel Marriott eru staðsett við helstu flugvelli Evrópu en þau eru rúmlega 1.100 talsins. Marriott rís við Keflavíkurflugvöll Hótel Reisa á 150 herbergja hótel. Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.isa Íslenskur kvensjúkdómalæknir, Jón Ívar Einarsson, var hluti af teymi lækna á Indlandi sem græddu leg úr gjafa í ófrjóa konu í sjaldgæfri skurðaðgerð. Sérsvið Jóns Ívars er kviðsjár- aðgerðir, sem eru ívið minna inn- grip fyrir konurnar að hans sögn. Skoðar hann nú að innleiða slíka legígræðslu með kviðsjáraðgerð á spítala sínum, Brigham and Wo- men’s Hospital við Harvard-há- skóla. Jón Ívar segir að aðgerðinni geti fylgt ýmsir fylgikvillar fyrir líffæra- gjafann. Hafa læknar því reynt að græða leg úr látnum eða heiladauð- um konum í þær konur sem hafa ekkert leg eða ekki starfandi leg. „Það væri að mörgu leyti skárra, í aðgerð sem gefur líffæri sem ekki er lífsnauðsynlegt.“ Að sögn Jóns Ívars hefur slík aðgerð ekki enn gengið en bundnar eru vonir við það í náinni framtíð. »4 Leg látinna gjafa eru grædd í ófrjóar konur  Íslenskur kvensjúkdómalæknir tók þátt í skurðaðgerðinni Morgunblaðið/ÞÖK Skurðáhöld Gjafaleg var grætt í ófrjóa konu á Indlandi nýverið. Fremur fámennt var á Þingvöllum í gær þeg- ar þess var minnst að 100 ár voru liðin frá undirritun sambandslaganna, sem tóku gildi 1. desember 1918. Var mætingin undir vænt- ingum, þar sem búist hafði verið við nokkrum þúsundum gesta. Veður hélst sæmilegt allan daginn, þó að sólin léti ekki sjá sig. Meðal þeirra Íslendinga sem mættu ríkti þó mestmegnis jákvætt andrúmsloft gagnvart fundinum og fullveldisafmælinu en þó settu mótmæli nokkurn skugga á athöfnina. Fjöldi erlendra ferðamanna setti einnig svip sinn á hátíðarsvæðið, þó að ekki væru allir með það á hreinu hvað um væri að vera. Þótti þeim sem blaðamaður Morgunblaðsins náði tali af þó nokkuð til þess koma að hafa fengið að vera viðstaddir þennan atburð. Einungis eitt mál var á fundi Alþingis, þingsályktunartillaga um stofnun Barna- menningarsjóðs og smíði hafrannsóknarskips í tilefni fullveldisafmælisins og var full sam- staða um hvort tveggja á þinginu. Formenn flokkanna nýttu tækifærið í umræðum um til- löguna til þess að ræða stöðu Íslands og mik- ilvægi fullveldisins fyrir land og þjóð. Var gerður góður rómur að máli þeirra. Var til- lagan svo samþykkt með öllum greiddum at- kvæðum. Morgunblaðið/Hari Mætingin minni en gert hafði verið ráð fyrir Hundrað ára afmæli fullveldisins haldið hátíðlegt á Þingvöllum MFullveldi Íslands 100 ára »6  Mikið er að gera hjá Persónu- vernd þessa dagana, en stofnunin hefur tekið á móti um 120 tilkynn- ingum um ráðningar persónu- verndarfulltrúa síðustu tvær vikur. Þetta segir Helga Þórisdóttir, for- stjóri Persónuverndar, en fleiri póstsendingar hafa borist stofnun- inni í sumar en vanalegt er vegna gildistöku nýrra persónuverndar- laga. Persónuvernd hefur orðið vör við að fólk nýti rétt sinn til upplýsinga frá ábyrgðaraðilum, meðal annars stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Helga bendir á að ekki sé þörf á því að senda slíkar beiðnir til Persónuverndar fyrr en ljóst sé að viðkomandi aðili verði ekki við beiðninni innan tilskilins frests, 30 daga. »20 120 persónuvernd- arfulltrúar ráðnir Fallbyssukúlan sem fannst í Mos- fellsbæ laust eftir hádegi í gær kom á land í gegnum sanddæluskip og þykir ótrúlegt að hún hafi ekki sprungið einhvers staðar á leiðinni úr sjó og þangað sem hún endaði. Ásgeir Guðjónsson, sprengju- sérfræðingur á séraðgerðasviði Landhelgisgæslunnar, segir afar sjaldgæft að sprengjur sem þessar finnist í byggð og að gæta hafi þurft ýtrustu varkárni við meðhöndlun hennar og eyðingu. Sprengjuleitar- vélmenni Landhelgisgæslunnar lék stórt hlutverk á vettvangi, en kveiki- búnaður sprengjunnar var að sögn Gæslunnar mjög illa farinn. Ekki er vitað hvar sprengjan kom upp í sanddæluskipið og er rannsókn málsins ekki lokið. »2 Morgunblaðið/Valli Hætta Stórt svæði var rýmt í gær vegna hættu af fallbyssukúlunni. Hefði vel get- að sprungið „Í júnímánuði var sett met þegar fjöldi hundrað ára og eldri á lífi fór í fyrsta sinn yfir fimmtíu. Nú eru þeir 53, 15 karlar og 38 konur.“ Þetta segir Jónas Ragnarsson í innsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þá segir hann að elstu stað- festu upplýsingarnar um Íslending sem náði 100 ára aldri séu frá 1866 og að vitað sé um 725 sem orðið hafa hundrað ára. Jensína Andrés- dóttir er elst Íslendinga, 108 ára, en elstur karla er Theodór Jóhannes- son, eða 104 ára. »» 21 Metfjöldi hundrað ára og eldri í júní

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.