Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
595 1000
ÁGÚST SPRENGJA
Frá kr.
49.795
28. ÁGÚST
GRAN CANARIA
Frá kr.
63.095
28. ÁGÚST
GRAN CANARIA
ðvv
er
ðg
et
.
ÚRVAL SÓLARFERÐA Á LÆKKUÐU VERÐI
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á
www.heimsferdir.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ótrúlegt þykir að 40 mm fallbyssu-
kúla með hásprengiefni hafi ratað á
Blikastaðanes í Mosfellsbæ þar sem
hún fannst í malarhrúgu. Sprengjan
kom á land í gegnum sanddæluskip
og er hún frá seinni heimsstyrjöld,
framleidd árið 1940. Allar líkur eru á
að hún hafi komið til Íslands fyrir til-
stilli breska eða bandaríska hersins.
Kveikibúnaðurinn illa farinn
Sprengjusveitir Landhelgisgæslu
Íslands og sérsveitar ríkislögreglu-
stjóra voru kallaðar út eftir hádegi
og ákveðið var að rýma hættusvæði
og eyða sprengjunni á staðnum.
„Hún var í mjög slæmu ástandi og
við treystum okkur ekki til að fjar-
lægja hana eða færa til svo henni
mætti eyða,“ segir Ásgeir Guðjóns-
son, sprengjusérfræðingur á sér-
aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar,
í samtali við Morgunblaðið.
„Kveikibúnaðurinn var þannig úr
garði gerður að það var ekki hægt
með neinum öruggum hætti að
óvirkja hann þannig að sprengjan
spryngi ekki. Þess vegna var ákveð-
ið að eyða henni á staðnum,“ segir
hann enn fremur.
Í ljósi þess að sprengjan fannst
nærri íbúðarbyggð sem var innan
200 metra hættusvæðis var ákveðið
að koma henni fyrir í holu með hjálp
sprengjuleitarvélmennis Gæsl-
unnar. Byrgt var fyrir holuna með
sandpokum og kúlan sprengd með
hleðslu.
„Það er eiginlega ótrúlegt að hún
hafi ekki sprungið á þessari leið, í
öllu hnjaskinu og þokkalega stóru
grjóti þaðan sem malarhaugurinn
kom. Hnjaskið gerði hana sér-
staklega hættulega og ummerkin á
kveikibúnaðinum gerðu það að verk-
um að annað var ekki hægt en að
eyða henni,“ segir Ásgeir og nefnir
að árlega fáist Gæslan við um 30-40
mál af þessum toga. „Yfirleitt eru
þessar sprengjur á gömlum her-
æfingasvæðum eða í sjónum. Það er
alls ekki algengt að þetta finnist í
íbúðarbyggð. Yfirleitt er hægt að
sprengja þetta á staðnum, úti í auðn-
inni. Það eru allnokkur ár frá því að
eitthvað þessu líkt fannst inni í borg-
inni,“ segir hann. Rannsókn málsins
er ólokið og óupplýst hvar sprengjan
kom upp í sanddæluskipið.
Morgunblaðið/Valli
Hætturadíus Um 200 metra radíus út frá sprengjunni var rýmdur og fallbyssukúlunni eytt með hleðslu.
Sjaldgæfur
fundur í byggð
Sprengja fannst í Mosfellsbæ í gær
Ósprungin eftir langt ferðalag
Vettvangur Sprengjusveit sérsveitar ríkislögreglustjóra og sprengjusveit Gæslunnar áttu í góðu samstarfi í gær. Holan Leifur Guðjónsson gröfumaður fann sprengjuna í malarhrúgunni.
Næsti fundur samninganefnda ljós-
mæðra og ríkisins, sem til stóð að
yrði haldinn á mánudag, verður í dag
klukkan 10.30 í húsakynnum ríkis-
sáttasemjara.
Upp úr slitnaði í viðræðum nefnd-
anna síðastliðinn miðvikudag og hófst
yfirvinnubann ljósmæðra á miðnætti
aðfaranótt miðvikudags.
„Mér skilst að þetta hafi gengið
stóráfallalaust fyrir sig en ástandið er
mjög erfitt,“ sagði Katrín Sif Sigur-
geirsdóttir, formaður samninga-
nefndar ljósmæðra, spurð hvernig
fyrsta vakt eftir að bann hófst hefði
gengið fyrir sig.
Hún segist ekki vita til þess að
nokkuð nýtt hafi komið fram sem gef-
ið hafi tilefni til þess að flýta fund-
inum en vonast til að eitthvað jákvætt
gerist í dag.
„Það var gefið
út að það yrði boð-
að til fundar fyrr
ef eitthvað nýtt
kæmi upp á borð
hjá deiluaðilum.
Við höldum bara í
þá von,“ sagði
Katrín í gær-
kvöldi.
Eins og greint
var frá í Morgun-
blaðinu í gær sagði Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans, það ekki
ganga að deiluaðilar funduðu einung-
is á tveggja vikna fresti og lýsti yfir
hættuástandi á Landspítalanum.
Spurð hvort hún telji fundinn í dag
vera svar ríkisins við þessu ákalli
frekar en að nýrra tilboða sé að
vænta svarar Katrín: „Ég vona ekki.
Ég ætla að leyfa mér að halda í bjart-
sýnina á að það sé ekki verið að draga
fólk á asnaeyrunum heldur að það sé
verið að boða okkur á fund til að
draga upp lausn í þessum deilum.“
Ræða alvarlega stöðu
Í samtali við mbl.is í gær sagði
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissátta-
semjari ekkert nýtt hafa komið frá
samningsaðilum enn. Kvaðst hún
hafa ákveðið að boða til fundarins,
meðal annars í ljósi þeirrar alvarlegu
stöðu sem upp væri komin að mati
bæði landlæknis og forstjóra Land-
spítalans. „Núna tel ég nauðsynlegt
að við komum saman til þess að ræða
þá alvarlegu stöðu sem virðist vera
uppi í deilunni og gera þá í leiðinni
stöðumat hvort það sé eitthvað nýtt,“
sagði Bryndís. teitur@mbl.is
Kjarafundinum flýtt
þrátt fyrir ekkert nýtt
Ríkissáttasemjari hefur boðað ljósmæður á fund í dag
Katrín Sif
Sigurgeirsdóttir