Morgunblaðið - 19.07.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
RITZENHOFF
Bjórglös og krúsir
Verð frá 2.150,-
ALESSI ANNA G
Vínupptakari – fleiri litir
Verð frá 6.950,-
RITZENHOFF
Vínglös
Verð frá 2.550,-
NUANCE
Vatnskanna – fleiri litir
Verð 13.790,-
Glæsileg gjafavara
KABUKI
Standlampi – fleiri litir
Verð 129.000,-
SKAGERAK DANIA
Skurðarbretti 50x27 cm tekk
Verð 11.500,-ROBERT WELCH
Hurricane kertastjaki
Verð frá 5.490,-
IITTALA KASTEHELMI
Kökudiskur 24cm
Verð 7.800,-
KARTELL BATTERY
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 19.900,-
KAY BOJESEN
Ástarfuglar
Verð 14.650,-
IITTALA TOIKKA WHOOPER
Verð 68.900,-
Styrmir Gunnarsson skrifar:
Það er óneitan-lega athyglis-
vert að fylgjast
með þeirri nokkuð
víðtæku gagnrýni,
sem er á meðal fólks á hátíðafund
Alþingis á Þingvöllum í dag.
Hún snýst aðallega um tvennt.
Að þetta séu fyrst og fremst há-tíðahöld fámenns hóps, sem
ekki sé ætlast til að almenningur
taki þátt í og hins vegar að kostn-
aðurinn við hátíðahöld þessa fá-
menna hóps, sem skattgreiðendur
borgi, sé óheyrilegur, þ.e. 80 millj-
ónir króna.
Í þessari gagnrýni birtist með sín-um hætti sú tilfinning að sam-
félagið skiptist í tvennt, „við“ og
„þau“. Og að „þau“, sem eru í að-
stöðu til, fari með fé skattborgar-
anna, eins og þeim henti hverju
sinni.
Það er eins og upplifun almenn-ings sé sú að þessi hátíðahöld
séu ekki í takt við tíðarandann.
Það er ekki gott að hátíðahöldvegna 100 ára afmælis fullveld-
isins veki upp slíkar tilfinningar.
Það væri hyggilegt fyrir þá nefnd,
sem hefur undirbúið hátíðahöldin að
skoða það sem eftir er í þessu ljósi.“
Það er illt að „elítan“ telji full-veldið ekki koma fólkinu við um
leið og hún bruggar því launráð á
Þingvöllum. Forsetinn staðfesti ný-
lega lög sem virtir lögfræðingar
sögðu að færu gegn stjórnarskrá og
eftir að rangfært var fræðilegt álit
um stöðu gagnvart henni.
Skuggi
formannafundar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.7., kl. 18.00
Reykjavík 11 alskýjað
Bolungarvík 11 alskýjað
Akureyri 13 skýjað
Nuuk 16 léttskýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 25 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 súld
Stokkhólmur 29 heiðskírt
Helsinki 27 heiðskírt
Lúxemborg 26 heiðskírt
Brussel 24 heiðskírt
Dublin 21 skýjað
Glasgow 19 léttskýjað
London 22 léttskýjað
París 27 heiðskírt
Amsterdam 22 heiðskírt
Hamborg 23 léttskýjað
Berlín 26 heiðskírt
Vín 21 rigning
Moskva 21 skýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 28 heiðskírt
Mallorca 33 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 32 léttskýjað
Winnipeg 26 skýjað
Montreal 19 léttskýjað
New York 21 heiðskírt
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 29 þrumuveður
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:54 23:15
ÍSAFJÖRÐUR 3:26 23:53
SIGLUFJÖRÐUR 3:07 23:38
DJÚPIVOGUR 3:16 22:52
Bandarískur karlmaður á sjötugs-
aldri hefur verið dæmdur í Héraðs-
dómi Suðurlands í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa
orðið valdur að banaslysi á Suður-
landsvegi í maí. Kona, sem var í bíl
sem ekið var úr gagnstæðri átt, lést
nær samstundis í slysinu.
Í ákæru er manninum gefið að sök
að hafa ekið yfir á rangan vegar-
helming á 101 kílómetra hraða og
framan á bíl sem kom úr gagnstæðri
átt. Kona sem ók þeim bíl lést.
Fram kemur í dómnum að mað-
urinn játaði skýlaust sök og komst
að samkomulagi við ættingja kon-
unnar um miskabætur. Litið var til
þess við ákvörðun dóms og þess að
hann hafi verið samvinnufús við lög-
reglu og samþykkt umbeðnar rann-
sóknir. Þá var litið til þess að atvikið
hefði „haft gríðarleg áhrif á heilsu“
hans, sem staðfest var með læknis-
vottorði.
Hann var því dæmdur í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi til
tveggja ára og sviptur ökuréttindum
í tíu mánuði. Þá var honum gert að
greiða útlagðan sakarkostnað, sam-
tals tæpar tvær milljónir króna auk
málsvarnarlauna verjanda síns.
Tveggja
mánaða
fangelsi
Valdur að bana-
slysi á Suðurlandi
Liðlega 2.000 færri ökutæki fóru
undir Hvalfjörð í júní í ár en í sama
mánuði í fyrra. Samdrátturinn nem-
ur 0,7%. Alls fóru 266.614 ökutæki
um göngin þennan mánuð.
„Skýring fylgir að sjálfsögðu
ekki þessum upplýsingum úr
umferðarteljurum ganganna en upp
í hugann hlýtur að koma rigning-
arsamt og þungbúið veðurlag á
sunnan- og vestanverðu landinu all-
an júnímánuð,“ segir í frétt á
heimasíðu Spalar, sem rekur göng-
in. Ótíðin kunni að hafa haldið
mörgum heima sem ella hefðu ekið
meira um þjóðvegina.
Í júní 2017 var umferð í göng-
unum 11,2% meiri en í júní 2016.
Þrátt fyrir að ótíðin hafi haldið
áfram inn í júlímánuð hefur ræst úr
umferðinni um göngin. Fyrrihluti
júlí er t.d. aðeins betri en sama
tímabil í fyrra, upplýsir Gylfi Þórð-
arson, framkvæmdastjóri Spalar.
Undanfarin misseri hefur verið
stöðug aukning umferðar um Hval-
fjarðargöngin. Undantekning var
febrúar á þessu ári þegar umferð
dróst saman um 7% í samanburði
við sama mánuð í fyrra. Linnulítil
ótíð, ófærð og aðrar samgöngu-
truflanir setttu mark sitt á umferð-
artölurnar þann mánuðinn.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um stefnir Spölur að því að ljúka
greiðslum allra lána vegna gang-
anna í september nk. Mun félagið
þá afhenda ríkinu göngin til eignar
og rekstrar. Jafnframt verður
gjaldtöku í göngin hætt en þau hafa
verið innheimt í 20 ár. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvalfjarðargöng Rigningarsamt
og þungbúið veðurlag var allan júní.
Færri um göngin vegna ótíðarinnar
Umferðin hefur tekið kipp í júlí