Morgunblaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Krónan
mælir með!
599 kr.pk.
Fylltir hamborgarar, 2x120 g
149 kr.pk.
Gestus snakk, 175 g
Gott með
borgaranu
m
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það sem af er þessu vatnsári hefur
tíðin verið hagfelld rekstri miðlana
Landsvirkjunar. Engin þörf á tak-
mörkun afhendingar á raforku er
fyrirsjáanleg, segir í frétt á heima-
síðu Landsvirkjunar sem ber fyrir-
sögnina „Landsvirkjun finnst rign-
ingin góð!“
Þetta er annað árið í röð sem
vatnsbúskapurinn á hálendinu er
fyrirtækinu afar hagfelldur.
Miðlun vatns til virkjana lauk 11.
maí sl. og síðan hefur gengið ágæt-
lega að safna vatni. Heildarinnihald
miðlana er nú um tveir þriðju af há-
marksfyllingu.
Í Hálslóni, sem er miðlunarlón
fyrir Fljótsdalsstöð, er vatnsstaðan
fimm metrum hærri en á sama tíma
í fyrra. Árið í fyrra var einnig mjög
hagstætt.
Í Þórisvatni, sem er miðlunarlón
fyrir virkjanir á Þjórsársvæðinu, er
vatnshæðin einum metra lægri en í
fyrra, sem var einstakt ár. Það
styttist í að Þórisvatn fari á yfirfall.
Í Blöndulóni, sem er miðlunarlón
fyrir Blöndustöð, er vatnshæðin ör-
litlu betri en í fyrra. Styttist í að
lónið fari á yfirfall.
„Gert er ráð fyrir að allar miðl-
anir verði fullar um miðjan ágúst.
Tímasetning fyllingar ræðst fyrst
og fremst af jökulbráðnun, sem
ekki er hafin enn,“ segir í frétt
Landsvirkjunar.
Morgunblaðið/Ómar
Raforka Búrfellsvirkjun stendur á
öflugu og vel nýttu virkjanasvæði.
„Landsvirkjun
finnst rigningin góð!“
Vel safnast í lón á hálendinu Góð-
ur vatnsbúskapur annað árið í röð
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ríkiskaup fyrir hönd ríkissjóðs aug-
lýstu í júní síðastliðnum eftir hús-
næði á höfuðborgarsvæðinu fyrir
skrifstofur Landspítalans.
Eitt tilboð barst og var það frá
fasteignafélaginu Reitum. Buðu
Reitir húsin Skaftahlíð 24 og 24a, þar
sem miðlar 365, Stöð 2, Bylgjan og
Fréttablaðið, hafa verið til húsa
nokkur undanfarin ár.
Samningaviðræður standa yfir og
er stefnan að ná niðurstöðu í þær í
lok ágúst, samkvæmt upplýsingum
Ingólfs Þórissonar, framkvæmda-
stjóra rekstrarsviðs Landspítalans.
Ingólfur segir að Ríkiskaup vinni að
þessu verkefni í nánu samstarfi við
Framkvæmdasýslu ríkisins.
Skrifstofur Landspítalans eru nú
á Eiríksstöðum við Eiríksgötu 5, rétt
við Hallgrímskirkju. Til stendur að
taka það húsnæði undir klíníska
starfsemi spítalans, en m.a. hefur
vantað húsnæði fyrir göngudeildir
spítalans.
Í auglýsingu Ríkiskaupa er tiltek-
ið að mikilvægt sé að hið nýja hús-
næði verði í nálægð aðalstarfsstöðv-
ar Landspítala við Hringbraut og í
Fossvogi. Húsrýmisþörf var áætluð
tæpir 5.000 fermetrar og miðað við
að húsnæðið verði tekið á langtíma-
leigu til 15 ára.
Húsin tvö við Skaftahlíð eru sam-
tals 5.030 fermetrar. Skaftahlíð 24,
norðurhús, er fjórar hæðir og kjall-
ari. Skaftahlíð 24a, suðurhús (gamli
Tónabær), er tvær hæðir og kjallari.
Þann 1. desember sl. tók Vodafone
(nú Sýn) yfir rekstur allra miðla 365
að Fréttablaðinu undanskildu. Til
stendur að færa starfsemi þeirra yfir
í nýjar höfuðstöðvar Sýnar á Suður-
landsbraut 8, en þær voru teknar í
gagnið í fyrrasumar.
Fréttablaðið mun flytja starfsemi
sína væntanlega í haust, samkvæmt
upplýsingum Kristínar Þorsteins-
dóttur, útgefanda blaðsins.
„Það ætti að koma í ljós fljótlega
hvert og nákvæmlega hvenær það
verður,“ segir Kristín.
Skrifstofur Landspítala
mögulega í Skaftahlíð
Fjölmiðlafyrirtæki 365 flytja úr húsunum á þessu ári
Morgunblaðið/Hari
Skaftahlíð Húsin tvö sem Reitir bjóða Landspítalanum til leigu eru rúm-
lega 5.000 fermetrar. Ef samningar nást flytja skrifstofur spítalans þangað.
Á fundi bæjar-
stjórnar Sam-
einaðs sveitar-
félags Sand-
gerðisbæjar og
Garðs í gær var
samþykkt til-
laga um að
Magnús Stef-
ánsson yrði
ráðinn bæj-
arstjóri í Sam-
einuðu sveitar-
félagi Sandgerðisbæjar og Sveitar-
félagsins Garðs kjörtímabilið 2018
til 2022. Kemur þetta fram í til-
kynningu sem birt er á heimsíðu
sveitarfélagsins.
Magnús er viðskiptafræðingur
(MBA) að mennt og fyrrverandi al-
þingismaður, ráðherra og bæjar-
stjóri. Magnús var valinn úr hópi
alls 14 umsækjenda um starf
bæjarstjóra og naut bæjarstjórn
aðstoðar Hagvangs við ráðning-
arferlið.
Magnús kemur til starfa 15.
ágúst næstkomandi og mun Róbert
Ragnarsson sinna starfi bæjar-
stjóra þangað til.
Magnús Stefánsson
ráðinn bæjarstjóri
Var valinn úr hópi 14 umsækjenda
Magnús
Stefánsson
Eftir langan rigningarkafla brá svo
við að Reykvíkingar fengu tvo sólar-
daga í röð í byrjun vikunnar. Slíkt
gerðist síðast í apríl, eða fyrir þrem-
ur mánuðum. Sól skein í 13,4 stundir
á mánudag og 14,2 á þriðjudag, sam-
tals 27,6 stundir – og þá 45,7 í mán-
uðinum í heild til þessa, samkvæmt
upplýsingum Trausta Jónssonar
veðurfræðings. Ekki er útlit fyrir að
sólin skíni skært allra næstu daga og
stefnir í að júlí í ár verði langt að
baki júlí í fyrra. Sólskinsstundir í
Reykjavík mældust þá 188,2.
Fyrri helming júlí í ár hefur úr-
koma í Reykjavík mælst 38,8 milli-
metrar, sem er vel yfir meðallagi. Er
úrkoman í ár nú þegar orðin meiri en
allan júlímánuð í fyrra . sisi@mbl.is
Tveir sólar-
dagar í fyrsta
sinn síðan í apríl