Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Mikil eftirspurn er eftir nýrri ís- lenskri jurtamjólk sem kom í búðir síðastliðinn föstudag. Fyrsta upplag seldist upp á mánudag en ný sending er á leið í verslanir. „Við höfum orðið þess áskynja að það sé ákveðin viðhorfsbreyting hjá fólki í dag sem snýr að því að minnka neyslu á afurðum úr dýraríkinu og sáum þarna ákveðið gat á mark- aðnum sem okkur langaði að fylla í,“ segir Guðni Þór Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Býlið okkar, sem framleiðir jurtamjólkina. Fyrirtækið hefur sett tvær tegundir af mjólk á markaðinn undir nafninu Heiða; möndlumjólk og haframjólk. „Við erum síðan með tvenns kon- ar útgáfu af hvorri tegund, annars vegar með sætu og hins vegar ekki með sætu. Svo eigum við bara eftir að sjá hvernig markaðurinn tekur þessum vörum.“ Jurtamjólkin er ekki einungis fyrsta íslenska jurta- mjólkin heldur er með tilkomu henn- ar í fyrsta skipti hægt að fá ferska jurtamjólk á Íslandi en Guðni segir jurtamjólkina hafa minna kolefnis- spor og betra bragð en þá jurta- mjólk sem fæst hérlendis og er flutt langan veg. „Þar sem við flytjum bara inn þykkni af höfrum og möndlum en notum íslenskt vatn hefur Heiða minna kolefnisspor en önnur jurtamjólk á markaðnum.“ Guðni segir að fleiri afurðir úr höfr- um og möndlum gætu verið væntan- legar. „Án þess að lofa neinu erum við á fullu í þróun á alls kyns öðrum tegundum og við hlökkum gríð- arlega til að kynna þær til leiks.“ ragnhildur@mbl.is Íslensk jurtamjólk í búðir Morgunblaðið/Arnþór Fersk Nú er í fyrsta skipti hægt að fá ferska jurtamjólk á Íslandi.  Minna kolefnisspor  Fyrsta upplag seldist hratt upp Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 ÚTSALA! TÖSKUR - 30% - SKÓR - 40% Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Mix & Match sundföt Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Útsala Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR Skoðið LAXDAL.is Skipholti 29b • S. 551 4422 ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR ÚTSÖLUSPRENGJA Á GÆÐA MERKJAVÖRU Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.