Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 12
benni.is NOTAÐIR BÍLAR Reykjavík Krókháls 9 Sím i: 590 2035 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Opnunartímar: Virka daga 10-18 Laugar *ATH. lokað í júlí daga 12-16* Tilboð á bílum í ábyrgð! Nýlegir notaðir bílar, í ábyrgð og á frábæru tilboði á nýjum stað! Þú finnur þá á benni.is Birtm eð fyrirvara um m ynda-og textabrengl. Verðdæmi: SsangYong Korando HLX 4X4 2017 á aðeins 4.390.000 kr. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Nýjar vörur Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Í gær var dagur íslenska fjárhundsins haldinn hátíð- legur á Árbæjarsafninu í Reykjavík. Af því tilefni fjöl- menntu hundaeigendur á safnið í sæmilegu veðri með íslenska fjárhunda af öllum stærðum. Sólin lét ekki sjá sig við byrjun hátíðarinnar, en Brynhildur Brynj- ólfsdóttir hundaeigandi segir það bara ágætt fyrir hundana. „Þeim verður svo heitt í sólinni, þetta veður er mátulegt fyrir þá.“ Hún hefur mætt á hátíðina síðastliðin tvö ár með íslenska fjárhundinn sinn, hann Skugga-Baldur. „Hann er kallaður Skuggi. Hann er Rauðakrosshundur og heimsækir fólk með Alzheimer einu sinni í viku.“ Brynhildur segist hafa fengið sér ís- lenskan fjárhund vegna þess að hann henti mjög vel við íslenskar að- stæður, auk þess sem hann sé í þægi- legri stærð. „Hann er með tvöfaldan feld þannig að honum verður ekki kalt á veturna, elskar rok og rign- ingu. Maður burstar hann þegar hann fer úr hárum en annars er hann viðhaldslítill. Hann er ofboðslega fjöl- skylduvænn, mjög þægilegur inni á heimili og elskar krakka og í raun- inni alla – nema ketti. Þeir eru líka gáfaðir og vilja alltaf vera með manni. Jafnvel ef maður fer í Bónus, þá vilja þeir samt vera með.“ Mikið var um að vera á safninu og geltu hundarnir hver í kapp við annan. „Þetta er nýr staður fyrir þeim og mikil lykt hérna. Svo var ein lóðatík hérna sem var svolítið óþægi- legt þegar maður er með rakka, hann var dálítið spenntur.“ Íslenski fjárhundurinn barst til Íslands með landnámsmönnum. Hundarnir aðstoðuðu við gæslu og smölun fjár, nautgripa og hesta. Margt bendir til þess að tegundin sé ættuð frá Norðurlöndunum. Litlar heimildir eru til um hunda frá land- námi og eru engar lýsingar á fjár- hundum og hundum almennt í Ís- lendingasögum, að því er fram kemur á heimasíðu deildar íslenska fjárhundsins. Brynhildur segir hátíðina vera haldna 18. júlí vegna þess að þá fæddist breskur aðalsmaður sem stuðlaði að útbreiðslu íslenska fjár- hundsins. „Hann kom hérna upp úr miðri síðustu öld og hreifst svo af ís- lenska fjárhundinum. Nokkrum ár- um seinna kom hann aftur til lands- ins og sá enga íslenska fjárhunda. Þannig að hann leitaði nokkra uppi, flutti þá til Bretlands og hóf ræktun á þeim þar. Hann átti mikilvægan þátt í því að stofninn lifði af og hann er fæddur 18. júlí,“ segir Brynhildur. Núna er íslenski fjárhundurinn ekki í útrýmingarhættu þótt stofninn sé lít- ill. Dagurinn var haldinn hátíðlegur víða um landið. Á Árbæjarsafninu hófst dagskrá kl. 14 og stóð til 16. Þar var heimildarmynd um íslenska fjárhundinn sýnd og ræddi Guðrún Ragnars Guðjohnsen, fyrrverandi formaður Hundaræktarfélags Ís- lands, við gesti og svaraði spurn- ingum. Þá komu saman íslenskir fjárhundar og eigendur í miðbæ Reykjavíkur, Akureyrar, Ísafjarðar og á Selfossi og Grundarfirði. Íslenski fjárhundurinn heiðraður Dagur íslenska fjár- hundsins var haldinn há- tíðlegur í gær víða um landið. Í Árbæjarsafninu hófst dagskrá kl. 14. Prúðir Íslensku fjárhundarnir klæddust margir hverjir íslensku fánalitunum í tilefni dagsins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Púki Fleiri tegundir var að sjá en íslenska fjárhundinn. Þær Anna Dís og Bóel sátu á bekk ásamt Púka. Fjölmennt Brynhildur mætti á hátíðina með hundinn sinn, Skugga-Baldur, en hann er kallaður Skuggi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.