Morgunblaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.07.2018, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Sæbjúgu innihalda mikið kollagen og yfir 50 tegundir af næringarefnum sem hafa öll mjög jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi mannslíkamans ÍSLENSKA FRAMLEIÐSLA: Framleiðandi sæbjúgna er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fást á arcticstar.is . Arctic Star sæbjúgnahylki fást í flestum apótekum og heilsubúðum og í Hagkaupum. Arctic Star Sæbjúgnahylki Sæbjúgu eru þekkt fyrir: • Hátt prótíninnihald og lágt fituinnihald • Að minnka verki í liðum og liðamótum • Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni liðskemmda • Að bæta ónæmiskerfið og mótstöðu líkamans gegn ýmsum sjúkdómum • Að auka blóðflæði sem minnkar líkur á blóðtappa • Að koma í veg fyrir æðakölkun • Að auka orku líkamans, stuðla að myndun húðpróteins og insúlíns Tólf piltar og fótboltaþjálfari þeirra, sem var bjargað úr helli í Taílandi, lýstu eldraun sinni fyrir fréttamönn- um í fyrsta skipti í gær eftir að þeir voru útskrifaðir af sjúkrahúsi. „Þetta er kraftaverk,“ sagði einn þeirra um björgunina sem lauk 18 dögum eftir að þeir urðu innlyksa í hellinum. Piltarnir eru á aldrinum 11 til 16 ára og ætluðu að vera í hellinum í um klukkustund eftir fótboltaæfingu en komust ekki út vegna vatns sem flæddi í hann í úrhelli. Þeir voru þar án matvæla þar til kafarar fundu þá níu dögum síðar og drukku vatn sem draup af hellisveggjunum. „Við reyndum að grafa okkur út þar sem við töldum að við gætum ekki bara beðið eftir því að björg- unarmenn yfirvalda kæmust til okk- ar,“ sagði þjálfari piltanna, Ekkapol Chantawong. Einn piltanna, Adul Sam-on, sem er fjórtán ára, sagðist aðeins hafa getað sagt „halló“ í fyrstu þegar breskir kafarar fundu þá í hellinum. Hann er sá eini þeirra sem talar ensku. Piltarnir sögðust hafa lært mikið af þessari erfiðu reynslu. Einn þeirra lofaði að „vera varkárari hér eftir og lifa lífinu út í ystu æsar“. „Þessi reynsla hefur kennt mér að vera þolinmóðari og sterkur,“ sagði annar. Syrgja kafara Þjálfari piltanna sagði að þeir hefðu tekið það mjög nærri sér þeg- ar þeir heyrðu að einn kafara sér- sveitar taílenska sjóhersins hefði drukknað þegar hann undirbjó björgunina. „Hann fórnaði lífi sínu til að bjarga okkur,“ sagði hann. „Við vorum mjög hryggir. Okkur fannst við hafa valdið fjölskyldu hans sorg.“ Piltarnir sögðust ætla að lifa sem búddamunkar tímabundið til minn- ingar um kafarann sem lést. Þeir fóru til fjölskyldna sinna eftir blaða- mannfundinn. „Þetta er ánægjuleg- asti dagur í lífi mínu,“ sagði amma eins þeirra. bogi@mbl.is Segja að björgunin hafi verið kraftaverk  Reyndu að grafa sig út úr hellinum áður en þeir fundust AFP Björgunarmanns minnst Piltarnir tólf og þjálfari þeirra minnast kafara sem lést í björgunaraðgerðinni. Við góða heilsu » Læknar segja að piltarnir tólf og þjálfari þeirra séu við góða heilsu, andlega og líkam- lega, eftir að hafa verið á sjúkrahúsi. » Læknarnir hafa ráðlagt fjöl- skyldum piltanna að koma í veg fyrir að fréttamenn geti rætt við þá, a.m.k. næsta mán- uðinn, eftir blaðamannafund- inn í gær. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur dregið í land með ummæli sem hann viðhafði á blaðamannafundi með Vladimír Pútín Rússlandsfor- seta eftir viðræður þeirra í Helsinki á mánudaginn var. Hann segist núna hafa mismælt sig og hafa „fulla trú“ á bandarísku leyniþjónustunni sem komst að þeirri niðurstöðu að Rússar hefðu haft afskipti af kosningunum í Bandaríkjunum í nóvember 2016. Á blaðamannafundinum í Helsinki var Trump spurður hvort hann tryði niðurstöðu leyniþjónustu Bandaríkj- anna eða yfirlýsingum Pútíns um að Rússar hefðu ekki reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar. Trump segist nú hafa lesið afrit af ummælum sínum og séð að hann hafi mismælt sig í „mikilvægri setningu“. „Ég sagði orðið „myndi“ í staðinn fyrir „myndi ekki“,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í fyrrakvöld, 27 klukku- stundum eftir fundinn í Helsinki. Í svari sínu í Helsinki sagði Trump að Dan Coats, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, hefði sagt að það væru Rússar sem hefðu haft afskipti af kosningunum. Hann bætti síðan við: „Ég hef svo Pútín, hann var að segja að þetta væri ekki Rússland. Ég sé ekki hvers vegna það myndi vera Rússland.“ Á blaðamannafund- inum í Hvíta húsinu sagðist Trump hafa ætlað að segja: „Ég sé ekki hvers vegna það myndi ekki vera Rússland.“ Ósannfærandi leiðrétting Leiðréttingin virðist ósannfærandi og samrýmist illa öðrum ummælum forsetans á blaðamannafundinum í Helsinki. Ólíklegt þykir að hún sefi reiði repúblikana sem deildu hart á forsetann fyrir að nota ekki tækifær- ið til að gagnrýna Pútín. Þingmenn úr röðum repúblikana og demókrata höfðu gagnrýnt harð- lega umrætt svar Trumps og fleiri ummæli hans á blaðamannafundinum í Helsinki sem flestir eru sammála um að Trump hafi klúðrað herfilega, jafnvel sumir harðir stuðningsmenn hans vestanhafs. Repúblikanar höfðu deilt á hann fyrir að nota ekki tæki- færið á blaðamannafundinum til að gagnrýna Pútín fyrir afskipti Rússa af kosningunum í Bandaríkjunum og „yfirgang“ þeirra í fleiri löndum, m.a. íhlutun þeirra í Austur-Úkraínu. Frekar en að gagnrýna Rússa beindi hann spjótum sínum að Bandaríkjun- um sem hann sagði að hefðu verið „heimskuleg“. Áður hafði hann sagt á Twitter að tengsl landsins við Rúss- land hefðu „aldrei verið verri vegna margra ára flónsku og heimsku Bandaríkjanna“ og vegna „norna- veiða“, þ.e. rannsóknar bandaríska dómsmálaráðuneytisins og alríkislög- reglunnar FBI á afskiptunum af kosningunum. Hann gagnrýndi rann- sóknina einnig á fundinum í Helsinki og sagði hana „stórslys fyrir Banda- ríkin“. Í sjálfsleiðréttingunni í fyrrakvöld áréttaði Trump að aðstoðarmenn hans hefðu ekki verið í neinu leyni- makki við Rússa fyrir kosningarnar og að afskipti þeirra hefðu ekki haft áhrif á niðurstöðu kosninganna. Hann kvaðst hafa „fulla trú“ á leyni- þjónustu Bandaríkjanna en hélt áfram að draga niðurstöðu hennar í efa með því að bæta við að einhverjir „aðrir menn“ kynnu einnig að hafa haft afskipti af kosningunum, sem fól- ust m.a. í innbrotum í tölvupósta. Dró í land eftir harða gagnrýni  Donald Trump leiðréttir „mismæli“ Engin tímamörk » Donald Trump dró í gær í land með þá kröfu sína að stjórnin í Norður-Kóreu hæfi þegar í stað kjarnorku- afvopnun og gaf til kynna að ekki lægi á því. » „Viðræðurnar halda áfram og þær ganga mjög, mjög vel,“ sagði Trump. „Við höfum engin tímamörk. Við höfum engin hraðamörk.“ Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að sekta Google vegna Android-stýrikerfisins sem hún segir að netfyrirtækið hafi not- að með ólöglegum hætti til að styrkja ráðandi markaðsstöðu leitarvélar þess og vafra þess fyrir farsíma. Google ætlar að áfrýja ákvörðuninni. Margarethe Vestager, sem fer með samkeppnismál í fram- kvæmdastjórninni, sagði að sektin næmi 4,34 milljörðum evra, jafn- virði rúmra 540 milljarða króna. Þetta er hæsta sekt sem fram- kvæmdastjórnin hefur gert fyrir- tæki að greiða. Að sögn frétta- vefjar breska ríkisútvarpsins hefur Google vel efni á sektargreiðslunni því að varasjóður fyrirtækisins nemur nær 103 milljörðum banda- ríkjadollara, jafnvirði rúmra 11.000 milljarða króna. Vestager sagði að Google hefði fengið þrjá mánuði til að breyta viðskiptaháttum sínum í tengslum við Android-stýrikerfið, ella þyrfti fyrirtækið að greiða viðbótarsekt að andvirði allt að 5% af meðalveltu þess á dag. Að sögn framkvæmdastjórnar- innar felast brot Google meðal ann- ars í því að samningar við framleið- endur farsíma um notkun Android-- stýrikerfisins hafi innihaldið skilyrði um að hugbúnaður fyrir- tækisins nyti sérstaks forgangs í símum fyrirtækjanna. Vestager sagði að mikilvægt væri að far- símanotendur hefðu val. Talsmaður Google sagði að fyrir- tækið myndi áfrýja ákvörðuninni. „Android var búið til í þeim tilgangi að auka valfrelsi, ekki til að draga úr því,“ sagði hann. „Lifandi mark- aður, hröð nýsköpun og lækkandi verð eru sígild aðalsmerki virkrar samkeppni og Android hefur ýtt undir þetta allt.“ Google áfrýjar metsekt ESB  Refsað fyrir meint samkeppnisbrot AFP Sektað Margarethe Vestager sakar Google um samkeppnisbrot.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.