Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Myndasýning á Nesinu Liðin er sú tíð að bíða þurfi eftir því að fá myndir úr framköllun, því þær má skoða á skjánum strax eftir töku, jafnt á Seltjarnarnesi sem annars staðar. Ómar Undanfarna áratugi hefur þeim farið fjölgandi sem ná hundrað ára aldri. Í júní- mánuði var sett met þegar fjöldi hundrað ára og eldri á lífi fór í fyrsta sinn yfir fimmtíu. Nú eru þeir 53, 15 karlar og 38 konur. Eldra met, 49, var frá því í nóv- ember 2011. Áratugur er síðan fjöldinn komst fyrst upp fyrir fjörutíu og fjörutíu ár síðan hann fór yfir tíu. Elstu staðfestu upplýsingar um Íslending sem náði þessum aldri eru frá árinu 1866 og vitað er um 725 sem hafa orðið hundrað ára, þar af um fimmtíu í Vesturheimi. Karl- ar eru um fjórðungur hópsins. Jensína Andrésdóttir er elst, 108 ára, Guðrún Straumfjörð er í öðru sæti, 107 ára og Dóra Ólafsdóttir í þriðja sæti, 106 ára. Theodór Jóhannesson er fjórði elsti Íslend- ingurinn og elstur karla, 104 ára, og Guðný Baldvinsdóttir er í fimmta sæti, einnig 104 ára. Fjórir eru 103 ára, sex eru 102 ára og ellefu eru 101 árs. Nú eru 27 Íslendingar 100 ára, þar af hafa 17 náð þeim áfanga það sem af er ári. Og enn geta ellefu til viðbótar fagnað aldarafmæli fyrir árslok. Það er athyglisvert hve fæðingarárgangurinn frá 1918 er sterkur þegar haft er í huga að árið var þekkt fyrir frosthörkur í ársbyrjun og Kötlugos og spænsku veikina um haustið. Árið 1918 fæddust 2.440 börn hér á landi og er líklegt að rúm- lega 1% þeirra nái hundrað ára aldri. Fyrir aldarfjórðungi var þetta hlutfall um 0,6% og um 0,2% fyrir hálfri öld. Hagstofan spáir því að fjöldi hundrað ára og eldri fari yfir eitt hundrað eftir tuttugu ár. Eftir Jónas Ragnarsson » Vitað er um 725 sem hafa orðið hundrað ára, þar af um fimmtíu í Vesturheimi. Jónas Ragnarsson Höfundur hefur lengi safnað upp- lýsingum um langlífa Íslendinga. Fleiri en fimmtíu eru hundrað ára og eldri Margt bendir til þess að illa sé stjórnað hjá Reykjavíkurborg. Að minnsta kosti er margt sem aflaga fer. Stjórnkerfið hefur vaxið hratt og er bæði flókið og óskilvirkt. Er- indum er illa eða ósvarað. Í góð- ærinu hafa skuldir borgarsjóðs aukist gríðarlega. Geðþóttastjórn- un virðist ríkjandi í viðkvæmum málum. Um þetta þarf ekki mín orð. Nýlegir dómar og úrskurðir staðfesta að miklir meinbugir eru á stjórnun borgarinnar. Umboðsmaður Alþingis hóf frumkvæðisathugun vegna húsnæðisvanda þeirra sem eru utangarðs enda hefur þeim fjölgað um 95% á aðeins fimm árum. Og það í góðæri! Um- boðsmaður kemst að þeirri niðurstöðu sem birt var í síðustu viku að mjög skorti á að Reykjavík- urborg tryggi utangarðsfólki fullnægjandi aðstoð við lausn á bráðum húsnæðisvanda í samræmi við ákvæði laga, stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra mannréttindareglna. Ekki er það gott. Fyrr í þessum mánuði hafði kærunefnd jafn- réttismála komist að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg hefði brotið jafnréttislög við umdeilda ráðningu borgarlögmanns. Einhvern tíma hefði það eitt og sér verið stórt fréttamál. Í síðasta mánuði dæmdi síðan Héraðsdómur Reykjavíkur Reykjavíkurborg til miskabóta sam- kvæmt skaðabótalögum vegna framkomu skrif- stofustjóra skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Það þarf talsvert til að slíkt gerist. Allt þetta ber að sama brunni. Stjórnsýslan í Reykjavík gerist ítrek- að brotleg við bæði lög og reglur. Þegar stjórnun borgarinnar er með þessum hætti er hætt við því að fleira fylgi með. Eftir höfðinu dansa lim- irnir og þegar stjórnkerfið sjálft gengur ekki upp er hætt við að aðrir þættir eins og að þjónusta borgarana vel mæti afgangi. Um það vitna þjón- ustukannanir þar sem Reykjavík vermir botninn í ánægju íbúanna. Þessi mál öll og fleiri ættu að vera umhugs- unarefni þeim sem standa að því fjögurra flokka samstarfi sem nú er að verða tveggja mánaða. Ef engu er breytt er hætt við að vandinn haldi áfram að vaxa. Breytinga er þörf á mörgum sviðum enda varð krafa um breytingar ofan á í kosningunum 27. maí. Sú krafa hefur ekki horfið. Hún hefur frekar vaxið. Eftir Eyþór Arnalds » Breytinga er þörf á mörgum sviðum enda varð krafa um breytingar ofan á í kosningunum 27. maí. Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Stjórnlaus borg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.