Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 25

Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 25
✝ Gísli Jón JuulEyland fæddist í Reykjavík 21. des- ember 1926. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Lög- mannshlíð á Ak- ureyri 8. júlí 2018. Foreldrar hans voru Gísli Jónsson Eyland, f. 27.6. 1886, d. 27.8. 1972, og Jenny Maria Ju- ul Eyland, fædd Nielsen, f. 25.8. 1896, d. 22.11. 1947. Alsystkini Gísla voru Olaf Juul Eyland, f. 20.10. 1920, d. 8.11. 2000; Henry Juul Eyland, f. 21.6. 1922, d. 21.2. 1984; Rudolph Juul Ey- land, f. 24.6. 1923, d. 17.2. 1981; Alma Fanny Juul Eyland, f. 20.11. 1929, d. 2.4. 1934; Gunnar Juul Eyland, f. 11.6. 1933, d. 15.4. 1980. Systir Gísla samfeðra er Guðrún Eyland, f. 2.2. 1951. Margrét Ólafsdóttir, f. 1.5. 1961, þau slitu samvistum. Þeirra barn er Einar Ólafur Eyland, f. 11.8. 1993, og dóttir Margrétar úr fyrra sambandi og stjúpdóttir Einars er Júlía Beatrice Harr- isson, f. 16.8. 1985. Barna- barnabörn Gísla eru orðin sex. Gísli bjó fyrstu árin í Reykja- vík en fluttist til Akureyrar 11 ára gamall þar sem hann bjó eft- ir það. Hann hóf störf hjá Póst- húsinu 16 ára gamall og var stöðvarstjóri Pósts og síma frá 1980 þar til hann lét af störfum sjötugur að aldri. Gísli vann ötullega að mál- efnum hjartasjúklinga, fyrst sem formaður Samtaka hjarta- sjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu og síðar var hann formaður Landssamtaka hjartasjúklinga, sem heita nú Hjartaheill. Einnig var hann starfandi innan Odd- fellow-reglunnar í yfir 60 ár. Úför Gísla fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, fimmtu- daginn 19. júlí 2018, klukkan 13.30. Gísli kvæntist 24. júní 1950 Dórótheu Júlíu Einarsdóttur Eyland, f. 28.7. 1929. Foreldrar hennar voru Einar Kristjánsson, f. 21.7. 1898, d. 27.10. 1960, og Ólöf Ísaks- dóttir, f. 21.9. 1900, d. 1.5. 1987. Börn Gísla og Dórótheu eru: 1) Ólöf Jenny Eyland, f. 5.5. 1951, eiginmaður Sigurður Bjarni Jó- hannsson, f. 12.2. 1949. Þeirra börn eru Jóhann Gísli Sigurðs- son, f. 4.5. 1971, og Karen Júlía Sigurðardóttir, f. 20.11. 1975. 2) Einar Eyland, f. 5.2. 1961, fv. eiginkona Svanhvít Halla Sig- fúsdóttir, f. 25.8. 1961, þeirra börn eru Gísli Eyland, f. 16.6. 1982, og Erla Eyland, 18.5. 1985. Seinni eiginkona Einars var Afstæður er aldurinn eins og dæmin sanna. Frábær ertu, faðir minn, fremstur góðra manna. (Bragi V. Bergmann) Vísan hér að ofan er úr 12 er- inda kvæðabálki sem við systkinin færðum pabba á 80 ára afmæli hans. Það er vel við hæfi að birta vísuna hér, þegar við feðgar kveðjumst að sinni. Það er nefni- lega svo ofboðslega mikill sann- leikur fólginn í þessu eina erindi. Pabbi var alla tíð mjög spræk- ur og lífsglaður maður, þótt heils- an gæfi sig smám saman undir það síðasta. Hann tók virkan þátt í lífi okkar systkinanna og studdi okkur með ráðum og dáð. Ég get með stolti sagt að pabbi var minn besti vinur og einstaklega góð fyr- irmynd – enda eðaleintak að öllu leyti. Pabbi og mamma kynntust árið 1949 og þræddu lífsveginn saman í tæp 70 ár, alltaf jafn samstíga og samstillt. Þau byggðu sér hús að Víðimýri 8 árið 1952 og bjuggu þar alla ævi. Nú er mamma þar ein og syrgir lífsförunaut sinn og sálufélaga. Pabbi hóf störf hjá Pósti & síma aðeins 16 ára gamall. Hann starfaði þar út starfsævi sína, vann sig smám saman upp innan fyrirtækisins og endaði sem stöðvarstjóri. Pabbi labbaði alltaf heim í mat í hádeginu og síðan í vinnuna aftur eftir að hafa fengið eitthvað gott að borða hjá mömmu, hlustað á hádegisfrétt- irnar og spjallað við þá sem heima voru. Þannig gengu hlutirnir fyrir sig áratugum saman. Ég var rosalega fyrirferðar- mikill og stríðinn á yngri árum – og átti svo sem ekki langt að sækja stríðnina! Aðeins einu sinni á ævinni reiddist pabbi við mig en það var þegar ég, átta eða níu ára gamall, gekk fulllangt í stríðninni, ýtti til eldhússtólnum sem pabbi ætlaði að setjast á, með þeim af- leiðingum að pabbi endaði í gólf- inu. Þá skammaði hann mig dug- lega og ég lét mér lesturinn að kenningu verða. Ég minnist með þakklæti og eftirsjá allra samverustunda okk- ar feðganna og hversu mikið hann lagði á sig til að setja sig inn í áhugamál mín og sýna stuðning sinn í verki. Hann var Þórsari en ég KA-maður en samt mætti hann á flesta leiki sem ég tók þátt í og hvatti mig og KA-liðið áfram. Við horfðum oft saman á leiki úr ensku knattspyrnunni (viku- gamla, í svart/hvítu í sjónvarp- inu), ég Arsenal-maðurinn og pabbi, gallharður Liverpool-mað- ur. Áratugum seinna, þegar ég fékk áhuga á gönguskíðum á gam- als aldri, setti pabbi sig inn í allt sem viðkom þeirri göfugu íþrótt, studdi mig af alefli og hvatti mig til dáða. Pabbi reyndist líka frábær afi, þegar þar var komið sögu, enda bókstaflega fæddur í það göfuga en þýðingarmikla hlutverk. Ég kveð föður minn með sorg í hjarta. Ég er óendanlega þakklát- ur fyrir þau 57 ár sem ég fékk með honum og stuðning hans við allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur í lífinu. Við systkinin og fjölskyld- ur okkar munum kappkosta að styðja mömmu eftir fremsta megni, því missir hennar er sann- arlega mestur. Einar Eyland. Ef ég hugsa um mínar fyrstu minningar úr æsku koma minn- ingar um Gísla afa fljótt upp í hug- ann. Fyrstu árin bjó ég í Reykja- vík og ég man eftir því að þegar við fjölskyldan keyrðum norður spurði ég hvenær við kæmum til Akureyrar alveg þar til bílnum var lagt fyrir framan Víðimýri 8, enda var ég ekki komin til Akur- eyrar í mínum huga fyrr en ég kom þangað. Enn þann dag í dag er ég alltaf að koma „heim“ þegar ég kem þar inn um dyrnar en það er skrítin og sorgleg tilhugsun að afi muni aldrei aftur sitja þar við eldhúsborðið þegar ég kem inn. Á sama tíma er ómetanlegt að hafa fengið að hafa hann öll þessi ár og ég er þakklát fyrir að synir mínir náðu að kynnast honum vel og munu alltaf minnast hressa lang- afa sem hafði svo mikinn áhuga á fótbolta eins og þeir. Mínar minningar um afa eru margar og allar góðar. Þegar ég var lítil fannst mér gaman að fara með honum í vinnuna og tína teygjur upp af gólfinu inni á póst- húsi þar sem pósturinn var flokk- aður meðan hann spjallaði við starfsfólkið. Sem unglingur vann ég „hjá afa“ á sumrin, fyrst sem bréfberi og svo seinna við síms- vörun á Landsímanum og Síma- skránni. Það var ómetanleg reynsla og það var augljóst að starfsfólk almennt bar virðingu fyrir honum og ég var alltaf stolt af því að afi minn væri stöðvar- stjóri Pósts og síma. Í vinnunni var hann virðulegi afi en hressi brandarakallinn heima. Ég man líka eftir því að ég var hrædd og hafði áhyggjur þegar afi þurfti að fara í stóra hjartaaðgerð þegar ég var unglingur en trúði því nú samt að allt færi vel. Enda kom í ljós nokkrum árum seinna þegar ég vann á símanum að ég átti fullt í fangi með að halda í við afa á leið- inni upp stigana í vinnunni þó ég væri innan við tvítugt og hann að nálgast eftirlaunaaldur! Það er ekki hægt að hugsa um afa án þess að hugsa um ömmu í sömu andrá en hressari hjón er varla hægt að finna. Á framhalds- skólaárum mínum bjó ég hjá afa og ömmu í Víðimýri sem var ynd- islegur tími. Jafnvel þegar vin- konur mínar voru farnar að leigja húsnæði úti í bæ var alltaf vin- sælla að hittast heima hjá mér í Víðimýrinni og oft sátum við og spjölluðum frameftir við afa og ömmu sem lýsir því vel hvað þau voru hress og skemmtileg. Það eru svo margar minning- arnar sem skilja eftir bros og hlýju í hjartanu, t.d. laufa- brauðsgerð í Víðimýrinni á hverju ári alla mína barnæsku og vel fram á fullorðinsár; jólaböll í Odd- fellow, bæði þegar ég var barn og svo síðustu árin með sonum mín- um; afi úti að labba með Perlu, hundinn þeirra til margra ára; sorgin þegar Perla dó, afi á leið- inni í laugardagsgöngu með Fé- lagi hjartasjúklinga; hlegið og skálað í litlum og stórum veislum hjá afa og ömmu og svo einfald- lega að spjalla við eldhúsborðið og horfa á sjónvarpið með þeim. Afi var rólegur, yfirvegaður, jákvæð- ur, traustur og einfaldlega góð manneskja sem öllum leið vel í kringum. Ég veit að hann var orð- inn þreyttur og var tilbúinn að fara og að við erum heppin að hafa fengið að hafa hann svona lengi en sorgin er samt mikil og ég mun alltaf hugsa til hans og sakna hans. Karen Júlía. Kæri afi, það er komið að kveðjustund. Ég get talið mig mjög heppinn að fá að hafa þig sem afa í þau 47 ár síðan ég kom í heiminn. Margt höfum við brallað í gegnum tíðina og ég hef verið þeirrar gæfu að- njótandi að hafa lært mjög margt frá þér á lífsleiðinni. Frá því að ég man eftir mér þá vorum við duglegir að fara saman í bíó þegar ég var í heimsókn á Akureyri og þegar þú eignaðist vídeótæki þá kynntir þú fyrir mér mikið af skemmtilegu efni eins og Chaplin, Gög og Gokke, og ekki má gleyma Bugsy Malone. Það sem ég eftir að sakna mest er góða skapið þitt og húmorinn þinn, alltaf gastu komið með ein- hvern góðan brandara til að létta manni lund. En á sama tíma gefið manni hollráð. Þegar ég gerði mistök í lífinu, sem hafa verið all- mörg, þá varstu alltaf til staðar, ekki til að dæma heldur að hvetja mig áfram og segja mér að gefast ekki upp. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa manni og redda því sem redda þurfti, þú virtist þekkja alla og varst vinur allra. Þetta kom sér vel þegar ég og æskuvinur minn fengum þá hugmynd að vera með útvarpsstöð á opnum dögum í Glerárskóla (þá var bara til Rás 1). Eitt símtal til þín og nokkrum klukkutímum seinna var allt kom- ið á hreint varðandi hvað þurfti að gera. Greyið Vilberg skólastjóri gat ekki annað en samþykkt að leyfa okkur að vera með útvarps- stöð þar sem ég og Davíð vorum með svör við öllum andmælum, útvarpsleyfi – ekkert mál, búinn að tala við þennan – hér er formið sem þarf að fylla út, útvarpssend- ir – búinn að græja og útvarps- stöðin varð að veruleika. Eitt það mikilvægasta sem ég held þú hafir kennt mér er að njóta lífsins og hafa gaman af, en einnig að láta gott af sér leiða. Þú varst alltaf reiðubúinn að aðstoða alla sem leituðu til þín og varst öfl- ugur í félags- og góðgerða málum t.d. með Félögum hjartasjúklinga, Lions-hreyfingunni og ekki síst í gegnum Oddfellow þar sem þú varst virkur þangað til veikindin settu of mikið strik í reikninginn í fyrra. Þetta eru allt gildi, ásamt hressileikanum og húmornum, sem ég hef að leiðarljósi í dag og vonast til að geta kennt börnunum mínum sem þau geta haft að leið- arljósi í gegnum lífið. En fyrst og fremst takk fyrir samveruna, minningarnar og vinskapinn. Jóhann Gísli. Gísli var í raun meiri afi minn heldur en föðurafi minn og hef ég alltaf verið stolt af því að kalla Gísla afa minn, sem hann mót- mælti aldrei. Gísli og Lúllý buðu mig svo sannarlega velkomna með hlýju sinni og ást þegar ég kom inn í fjölskylduna 5 ára göm- ul. Breska fjölskyldan mín var alltaf frekar fjarlæg en Lúllý og Gísli buðu upp á ómetanlega um- hyggju og stöðugleika, þegar þess þurfti. Gísli sá alltaf til þess að ég væri velkomin í fjölskylduna og tilheyrði henni. Ég mun alltaf vera þakklát fyrir það. Gísla afa verður sárt saknað. Júlía Beatrice Harrison. Mágur minn, Gísli J. Eyland, andaðist 8. júlí á 92 aldursári. Hann hafði síðustu mánuði átt við veikleika að stríða og dvaldi á hjúkrunarheimilinu Lögmanns- hlíð og lést þar. Gísli var fæddur í Laugarnes- hverfi í Reykjavík 1926 en fluttist til Akureyrar 11 ára gamall og bjó þar síðan. Starfsvettvangur hans var Pósthúsið á Akureyri þar sem hann hóf störf 16 ára og varð þar stöðvarstjóri 1980. Í þvi starfi var hann þar til hann varð 70 ára. Gísli var vel látinn af öllum sem honum kynntust. Hann tók þátt í ýmsum félagsstörfum, var t.d. fé- lagi í Oddfellowreglunni í 60 ár og heiðursfélagi í stúku sinni á Ak- ureyri. Gísli vann af áhuga að málefn- um hjartasjúklinga og var for- maður samtakanna í Eyjafirði, og síðar formaður Landssamtaka hjartasjúklinga, Hjartaheilla. Á yngri árum var Gísli félagi í lúðrasveit Akureyrar og lék á kornett. Fjölskylda undirritaðs, foreldr- ar og við systkinin, Dóróthea, ætíð kölluð Lullý, þá 19 ára, und- irritaður Ólafur G., þá 16 ára, og Kristján Bogi, þá fimm ára, flutt- umst til Akureyrar frá Siglufirði 1948. Það voru auðvitað viðbrigði að flytja frá öllum æskufélögum sín- um á ókunnar slóðir. Enn gekk þetta þó vel, við kynntumst góðu fólki og kunnum fljótt vel við okk- ur. Vel þykist ég muna strákana í kringum systur mína og var ekki alveg sama. Man þó að ég kvað fljótt upp úr með að hún skyldi snúa sér að Gísla og skipta sér ekki af hinum. Hún gerði svo og taldi sig ekki þurfa leiðbeiningar frá mér. Þau voru gefin saman í hjóna- band 24. júní 1950 í Melstaðar- kirkju í Miðfirði, þar sem sr. Jó- hann Kr. Briem var prestur, kona hans, Ingibjörg, var móðursystir okkar krakkanna. Vegleg brúðkaupsveisla var svo haldin í Reykjaskóla í Hrúta- firði. Fyrstu árin á Akureyri bjugg- um við á Ráðhústorgi en svo í Oddfellowhúsinu á Brekkugötu, og þar varð einnig heimili Gísla og Lúllýjar um skeið, eða þar til þau fluttu í Víðimýri 8 þar sem þau hafa búið síðan 1953. Foreldrar okkar systkina bjuggu á Akureyri 1948-1958 en ég fluttist þaðan 1955. Alla tíð var afar náið og gott samband á milli fjölskyldna okkar. Ég minnist sérstaklega allra heimsókna til þeirra, venjulega tvisvar á sumri í þá áratugi sem ég fór til laxveiða í Þistilfjörð. Þá var gjarnan gist hjá þeim í Víðimýri og móttökur höfð- inglegar. Þessara samverustunda minntust félagar mínir fyrr á ár- um með miklum hlýhug, nefni ég þar einkum flugstjórana Þorstein E. Jónsson og Viktor Aðalsteins- son. Þau hjón tóku alltaf höfðing- lega á móti okkur og fóru stund- um með okkur til veiða. Gísli var einkar geðprúður og góður drengur. Samverustundum okkar fækkaði síðustu ára vegna veikinda. Og nú hefur hann kvatt. Ég sakna hans mjög og flyt kveðjur mínar og míns fólks til ykkar sem syrgið hann mest. Ólafur G. Einarsson. Með Gísla J. Eyland er genginn traustur, grandvar drengur sem gott var að eiga að vini. Hann átti farsælan starfsferil, var sam- viskusamur í hvívetna og þægileg- ur í samskiptum. Hann hefur áreiðanlega verið líkur föður sín- um, skipstjóranum Gísla Jónssyni Eyland, sem Gísli lýsir eins og hann sé að lýsa sjálfum sér: „Hann var með eindæmum ró- lyndur maður og man ég ekki eftir að hafa séð hann skipta skapi, hvorki heima né heiman. Á efri ár- um, þegar heilsan var farin að bila, reyndust taugar hans í besta lagi og hélt hann rólyndi sínu allt fram á síðasta dag. Hann var all- stríðinn og gamansamur.“ Þegar Gísli var tíu ára flutti hann með foreldrum sínum frá Reykjavík til Akureyrar, en faðir hans var þá skipstjóri á Snæfelli, skipi KEA. Á Akureyri kynntist hann og kvæntist Lúllý, frænku minni, sem hafði flutt með foreldr- um sínum frá Siglufirði. Samvera mín og fjölskyldu minnar með þeim hjónum varð veruleg þegar við fluttum til Akureyrar 1968 og bjuggum þar í nokkur ár. Hjálp- semi þeirra og greiðvikni var slík að fyrir það verður aldrei full- þakkað. Börn okkar sóttust eftir því að heimsækja fjölskylduna í Víðimýri 8 enda höfðu þau hjón einstaklega gott lag á börnum og hafði Gísli ekki síst aðdráttaraflið. Þótt Gísli væri borinn og barn- fæddur Reykvíkingur var Akur- eyri bærinn hans. Það var ekki einungis alltaf besta veðrið á Ak- ureyri heldur var mannlíf og um- hverfi betra þar en annars staðar. Þegar ég hallmælti holóttum göt- um á Akureyri sagði hann góðlát- lega: „Verra er það á Siglufirði.“ Þar með voru gatnamálin af- greidd. En þessi grandvari maður fékk reyndar á baukinn á Siglu- firði þegar hann ók þar um með föður mínum rakleitt fram hjá eina stöðvunarskyldumerkinu í bænum enda var slíkt umferðar- merki ekki til á Akureyri á þeim tíma. Var þetta á gatnamótum í sjónlínu frá lögreglustöðinni þar sem menn sátu við glugga. Hlupu þeir út og stöðvuðu ökufantinn frá Akureyri og sektuðu umsvifa- laust. Reyndar hentu þeir Gísli og faðir minn gaman að þessu atviki. Gísla var umhugað um ættar- nafnið Eyland sem faðir hans hafði tekið upp 1916 í samræmi við lög og skráð sem ættarnafn og verndað samkvæmt nafnalögum. Hann varð þess var fyrir nokkr- um árum að aðrir óskyldir honum fóru að nota nafnið Eyland eins og það væri þeirra ættarnafn. Reyndi hann að afstýra því án ár- angurs. Hann hefur sagt frá því að faðir hans hafi tekið ættarnafn- ið upp af illri nauðsyn. Thor Jen- sen hafði leitað til föður hans og beðið hann um að sækja togara til Englands. Vegna saka sem tengd- ust landhelgisbroti ensks togara við England sem hann hafði verið „flaggskipstjóri“ á taldi hann sér ekki fært að verða við beiðninni enda myndi hann verða fangels- aður færi hann til Englands. Thor Jensen kunni ráð við þessu. Ein- ungis þyrfti að breyta eftirnafni og málið þá leyst. Varð ættarnafn- ið Eyland fyrir valinu og notað æ síðan. Fyrir tæpum mánuði heimsótt- um við hjónin Gísla þar sem hann dvaldi í Lögmannshlíð. Þá hvíldi yfir honum þægileg ró eins og áð- ur og gamanseminni hafði hann ekki glatað. Bogi Nilsson. Síðast þegar ég kom til Akur- eyrar nú í vor heimsótti ég Hjúkr- unarheimilið Lögmannshlíð af því að mig langaði að sjá hvernig þar væri um fólk búið. Ég hafði gert mér háar hugmyndir en samt varð ég hissa yfir því, hversu vel var að öllu staðið og hlutunum vel fyrir komið – hugsað fyrir öllu, fannst mér. Þarna hitti ég gamla og góða vini. Þar á meðal Gísla og Dórótheu. Með okkur urðu fagn- aðarfundir. Og á svipstundu rifj- uðust upp leifturmyndir frá liðn- um áratugum. Það er bjart yfir þeim og oftar en ekki voru Hall- dóra og Jóhann Gunnar með í för. Það er nauðsynlegt fyrir stjórnmálamann að eiga vini að, sem hann getur treyst, eru hrein- skilnir hvernig sem á stendur. Gísli var mér þvílíkur vinur, – hann var glöggskyggn á fólk, ráðagóður og umfram allt ráðholl- ur. Þegar ég kveð hann nú með þessum fátæklegu orðum sé ég hann fyrir mér glaðan og reifan, þennan góða dreng sem ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst og átt að. Guð blessi minningu hans. Halldór Blöndal. Gísli J. Eyland MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR STEFÁNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 20. júlí klukkan 13. Ólafur W. Nielsen Guðrún Nielsen Vilmundur Guðnason Ólafur K. Nielsen Björg Þorleifsdóttir Þorgerður Nielsen Ágúst Böðvarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.