Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 19.07.2018, Síða 28
✝ Hreinn Eiríks-son fæddist á Miðskeri í Horna- firði 10. mars 1931. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skjól- garði 10. júlí 2018. Hreinn lauk prófum frá Iðnskól- anum í Reykjavík, sveinsprófi í húsa- smíði 1968, öðlaðist meistararéttindi 1974 og lauk kennaraprófi frá Kennara- háskóla Íslands 1992. Hreinn vann við húsasmíðar og smíðakennslu til 1987, var fastráðinn kennari við Nesja- skóla 1987-1996, kennari við Mýrarhúsaskóla 1996-1997 og var síðan aðstoðarskólastjóri við Nesjaskóla 1997-2001. Hreinn var um skeið byggingar- fulltrúi og fasteignamatsmaður í Nesjahreppi og virðingamaður fyrir Brunabótafélag Íslands. Hann sat lengi í barnavernd- arnefnd, sat í sóknarnefnd, var að kortleggja og skrásetja leiði í kirkjugarðinum við Laxá í Nesj- um og fleiri kirkjugörðum. Hreinn kvæntist Ragnheiði Hjartardóttur árið 1956. Þau skildu. Börn þeirra eru Eiríkur, kvæntur Þórunni Þorsteins- dóttur og eiga þau tvær dætur; Sigrún Helga, gift Héðni Ólafs- syni, hún á þrjár dætur. Hreinn kvæntist 24.10. 1964 eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Gísla- dóttur. Börn þeirra eru Regína, gift Klaus Kretzer, hún á tvo syni; Steingerður, gift Reyni Guðmundssyni, hún á tvö börn; Pálmar kvæntur Lindu Gutt- ormsdóttur og eiga þau tvö börn. Barnabörnin eru orðin ell- efu talsins. Foreldrar Hreins voru Eirík- ur Sigurðsson, bóndi í Miðskeri og Steinunn Sigurðardóttir, húsfreyja. Systkini Hreins, sem nú eru öll látin, voru Benedikt, kvæntur Hallgerði Jónsdóttur, Sigurður, kvæntur Ásu Finns- dóttur, Sigurbjörg, gift Sigfinni Pálssyni og Rafn, kvæntur Ástu Karlsdóttur. Útför Hreins fer fram frá Hafnarkirkju í dag, fimmtu- daginn 19. júlí 2018, kl. 14. meðhjálpari og söng í Samkór Hornafjarðar um árabil. Hreinn æfði og keppti í íþrótt- um á yngri árum, var virkur í starfi íþrótta- og ung- mennafélagshreyf- ingarinnar, starf- aði í Lions- klúbbnum Hæni í Nesjum, sat í stjórn Menningarfélags Austur- Skaftfellinga um skeið, var fyrsti formaður Leikfélags Hafnarkauptúns og síðar í leik- hópi Mána. Hann tók þátt í fjöl- mörgum leiksýningum í Nesjum og á Höfn og samdi einnig gam- anmál í bundnu máli og flutti við ýmis tækifæri. Hreinn var heiðursfélagi Ungmenna- sambandsins Úlfljóts og hlaut einnig æðstu viðurkenningu Lionshreyfingarinnar, Melvin Jones-skjöldinn, árið 2016. Þeg- ar hann lét af störfum tók hann að sér, ásamt eiginkonu sinni, Nú hefur hann elsku pabbi minn kvatt þetta jarðlíf eftir 87 innihaldsrík ár. Það var gott að vera samvistum við pabba. Hann hafði einstaklega hlýja nærveru, var einlæglega annt um sam- ferðafólk sitt og fór ekki í mann- greinarálit. Hann var afar greið- vikinn og ég held að hann hafi helst aldrei viljað segja nei, væri hann beðinn um eitthvað, jafnvel þótt hann væri störfum hlaðinn. Leiklistin var honum í blóð borin og hann naut sín líklega hvergi betur en á sviðinu. Í minninga- sjóðnum eru nokkrar eftirminni- legar persónur sem hann gæddi einstöku lífi. Pabbi var mjög lífsglaður, átti auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar á tilverunni og var oft hrókur alls fagnaðar þegar sá var gállinn á honum. Hann átti auðvelt með að setja saman hnyttnar vísur og sem krakki, fannst mér ekkert skemmtilegra en að fá að fylgjast með þegar þeir Nonni á Brekkubæ voru að æfa söngdagskrár fyrir þorra- blót Nesjamanna. Hann orti líka gjarnan vísur við tímamót í lífi fjölskyldumeðlima eða vina sinna og eru þar mörg gullkorn- in. Pabbi hafði gaman af því að kanna torfærur og fjallvegi og lét það ekki aftra sér að hann ætti aldrei jeppa. Þær ferðir enduðu kannski ekki allar eins og upphaflega planið var og ég man eftir að sitja í Cortínunni úti í miðri á og vatnið flæddi inn í bílinn, eða ganga niður Öxi eftir aðstoð þegar kom gat á olíu- pönnuna. Þessar ferðir eru sveipaðar ævintýraljóma í minn- ingum mínum þótt ég efist um að mömmu minni hafi alltaf verið mjög skemmt. Pabbi hafði alltaf tíma til að leika og spjalla við syni mína og leyfa þeim að vera með í því sem hann var að gera. Hann hjólaði um alla sveit með Brynjar á stýrinu á reiðhjólinu sínu, það er kannski ekki endi- lega til eftirbreytni í dag, en var mikið ævintýri fyrir fjögurra ára polla í þá daga. Þá var gaman að fylgjast með heimspekilegum vangaveltum Styrmis og afa hans um lífið og tilveruna, nöfnin á jólasveinunum og sitthvað fleira. Frá því ég man eftir mér þá voru börn mjög hænd að pabba og miklu fleiri en hans eigin barnabörn kölluðu hann afa í gegnum tíðina. Mér fannst það því frábær ákvörðun hjá honum að fara í kennaranám, þó seint væri á starfsævinni, því kennarastarfið og samvera með börnum, veitti honum mikla ánægju. Foreldrar mínir voru gift í yfir 50 ár og voru afar sam- rýnd. Þau áttu mörg sameigin- leg áhugamál í lífi og starfi og unnu saman að mörgum af sín- um hugðarefnum. Ég óska þess að góðu minningarnar gefi mömmu styrk á þessum erfiðu tímum. Ég mun alltaf hugsa til pabba með gleði og hlýju í hjarta. Regína. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Svo segir í Hávamálum. Það er misjafnt sem menn skilja eftir sig. Hreinn mágur minn sem nú hefur kvatt þennan heim hefur getið sér góðan orðstír sem aldr- ei deyr. Ég var svona rúmlega unglingur þegar Hreinn kom inn í Grímsstaðarfjölskylduna. Það er ekki auðveldasti hlutur í heimi að koma nýr inní fjöl- skyldu. Eins og allir vita er hver fjölskylda með sína sérvisku og sérkennilegheit. Það tók Hrein ekki langan tíma að aðlagast fjölskyldunni og ná góðu sam- bandi við alla. Ég hef örugglega ekki þakkað honum nóg í lifanda lífi fyrir alla gæskuna og um- hyggjuna sem hann sýndi tengdaforeldrum sínum. Pabbi, Gísli Björnsson, var ekki allra en Hreinn og hann náðu vel saman og þær eru ómældar stundirnar sem Hreinn gaf þeim foreldrum mínum alla tíð af mikilli elsku. Hreinn var smiður og smiður góður. Lengst af hafði hann sitt lífsviðurværi af smíðum. Margir minnast hans á verkstæði Guð- mundar Jónssonar við Bogaslóð. Þar var venjulega kátt á hjalla og margir sem lögðu leið sína þangað, ekki endilega til að láta smíða eitthvað fyrir sig heldur til að fá smá gleðistund. Hreinn söðlaði síðan um. Fór í kennara- nám, kominn af léttasta skeiði. En þar var Hreinn á réttri hillu. Það lét honum sérdeilis vel að uppfræða ungt fólk. Hann átti ótrúlega gott með að umgangast nemendur og koma fram við þá af virðingu. Fáa hef ég séð sem hafa átt jafn auðvelt með að tengja við unga krakka, ná til þeirra og spjalla við þau. Hreinn naut þess virkilega að umgang- ast ungt fólk og hjálpa því á þroskabraut. Ekki má nú gleyma að nefna leikarann Hrein. Þær eru margar gleði- stundirnar sem hann hefur gefið Hornfirðingum og öðrum með leik sínum, gamanmálum, upp- lestri og vísnagerð og leikhúslíf Hornfirðinga væri fátæklegra ef hann hefði ekki lagt því lið. Grímsstaðarfjölskyldan á Hreini svo ótal margt að þakka og við kveðjum hann með virðingu og þökk. Kristínu systur minni, börnum þeirra Hreins og öllum ættingjum votta ég dýpstu sam- úð. Baldur Gíslason. Í dag kveðjum við föðurbróð- ur minn Hrein Eiríksson. Með Hreini er genginn góður drengur, skemmtilegur og eftir- minnilegur persónuleiki. Okkur var alltaf vel til vina, höfum þekkst og verið félagar um margra ára skeið. Hreinn frændi minn var einn þessara manna sem gátu nánast allt að því manni fannst. Hann var bæði verklaginn og fjölhæf- ur enda tók hann sér ýmislegt fyrir hendur á langri starfsævi og sinnti mörgum og ólíkum störfum. Á árum áður vann hann sem trésmiður og byggingar- meistari og sinnti húsvörslu í fé- lagsheimilinu Sindrabæ á fyrstu starfsárum þess húss. Síðar meir tók hann kennarapróf og var eftir það kennari við Nesja- skóla. Það átti vel við hann enda bæði farsæll í starfi og vinsæll á meðal nemenda og samstarfs- manna. Hreinn var mikill áhugamað- ur um íþróttir og var keppnis- maður í frjálsíþróttum á yngri árum og var sigursæll á íþrótta- mótum í héraði og víðar. Eftir að keppnisferli lauk sinnti hann fé- lagsmálum í ungmennafélags- hreyfingunni auk þess sem hann var í forystu í félagsstarfi hinna ýmsu félaga og félagasamtaka. Hreinn var mjög virkur í starfsemi leikfélagsins á Horna- firði og lék þar mörg hlutverkin. Þeim skilaði hann öllum með miklum sóma hvort sem um var að ræða „kómík eða drama“. Oft- ar en ekki hlaut hann mikið lof fyrir túlkun og leik enda naut Hreinn þess að kljást við hinar ýmsu persónur leikbók- menntanna. Auk þessa var Hreinn eftirsóttur skemmti- kraftur á þorrablótum og skemmtunum. Þar flutti hann oftast frumsamið efni, gaman- vísur og fleira. Ég á margar minningar frá samverustundum okkar í gegn- um árin og allar eru þær góðar. Á unglingsárum og nokkur ár þar á eftir fékk ég að vinna með og undir handleiðslu Hreins. Fyrst um sinn starfaði ég með honum við byggingu Bjarnanes- kirkju. Það er eftirminnilegur tími í meira lagi. Kaffitímarnir urðu nánast heilagir og þar var farið eftir ákveðinni rútínu. Sest var niður undir kirkjugarðs- veggnum og eftir að hafa gert samanburðarmælingar á brauð- inu og bakkelsinu í nestisboxun- um okkar þann daginn var tekið til við að segja sögur. Ævinlega kútveltumst við um enda fannst okkur við vera óendanlega fyndnir og gátum hlegið enda- laust að vitleysunni hvor í öðr- um. Að lokum tók við kúluvarps- æfing, sem gat reyndar teygst á langinn enda fór okkur mikið fram í kúluvarpi þessi sumur. Við Hreinn héldum alltaf góðu sambandi, hittumst eða heyrð- um hvor í öðrum reglulega og lengi vel var það fastur liður að ræða saman á gamlársdag þar sem árið var gert upp. Síðast hittumst við í mars nú á þessu ári á Kanaríeyjum þar sem þau Kristín dvöldu í nokkrar vikur. Fyrir þá stund sem og allar aðr- ar sem ég átti með Hreini er ég ákaflega þakklátur. Elsku Kristín, Regína, Stein- gerður, Pálmar, Eiríkur og Sig- rún. Við Svana sendum ykkur, fjölskyldum ykkar og skyld- mennum innilegustu samúðar- kveðjur. Að leiðarlokum kveð ég þennan vin minn með söknuði. Farðu í friði góði vinur Þér fylgir hugsun góð og hlý. Sama hvað á okkur dynur Aftur hittumst við á ný. (Magnús Eiríksson.) Takk fyrir allt og allt. Karl Rafnsson. Haustið 1975 þegar við fjöl- skyldan fluttum úr Reykjavík austur í Nesjaskóla voru Kristín og Hreinn okkar fyrstu nábúar. Það tókst strax með okkur mikill vinskapur sem haldist hefur alla tíð síðan. Samskipti okkar Hreins og samvinna var býsna mikil í gegn- um árin og alltaf fór vel á með okkur. Hann gaf af sér afar hlýja og einlæga nærveru og grunnt var á skemmtilegheitunum. Minningarnar frá samleið okkar eru margar og allar ljúfar. Allt samstarfið í Nesjaskóla, fundirnir í Ungmennafélaginu Mána í Nesjum, allar gönguferð- irnar, þrettándabrennurnar, íþróttamótin og æfingarnar og margt fleira að ógleymdum Leikhópi Mána. Við reistum hann úr dvala og setti leikhóp- urinn upp magnaðar leiksýning- ar í Mánagarði. Fyrsta sýningin var Deleríum búbónis veturinn 1981-1982, settum aðsóknarmet og enduðum á frábærri sýning- arferð til Reykjavíkur þar sem sýningin var einn af allra síðustu viðburðunum í gamla Hafnarbíói við Barónsstíg. Síðasta stórvirk- ið var þegar leikhópurinn setti upp Fiðlarann á þakinu veturinn 2008 í tilefni 100 ára afmælis Mána. Leiklistin var Hreini beinlínis hjartkær, svo mjög unni hann gyðjunni þeirri. Og þó ég hafi ekki leikið í mörgum leiksýning- um þá átti ég engan betri mót- leikara en Hrein. Það má segja með sanni að við vorum leik- félagar góðir, sama hvert sviðið var í lífinu hverju sinni. Ég kveð traustan vin með söknuði en um leið er ég fullur þakklætis fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Ásmundur Gíslason. Við hjónin vorum stödd í þröngu stræti Pragborgar þegar við fengum þær fregnir að fall- inn væri frá góður vinur og sam- starfsfélagi, Hreinn Eiríksson. Okkur langar því til að minnast Hreins með fáeinum minningar- orðum. Hreinn var samferða- maður okkar með margvíslegum hætti bæði í gegnum kennsluna og ekki síður leiklist þar sem Hreinn var oftar en ekki mikill senuþjófur enda afburðaleikari og þar skein sterkur persónu- leiki hans í gegn. Fyrstu kynni okkar af Hreini í gegnum kennslustarfið voru þegar við vorum starfandi í Mýraskóla þar sem Hreinn sá um smíðakennslu. Hann leysti það starf vel af hendi og eigum við þaðan góðar minningar. Það var svo haustið 1997 að náið samstarf hófst þegar við réðum okkur til Nesjaskóla sem hafði starfað í eitt ár í þeirri mynd að börnum í 1.-3. var kennt þar. Hreinn tók virkan þátt í því verkefni með okkur og varð aðstoðarskólastjóri. Það var ekki verra að honum fylgdi eiginkona hans Kristín sem var hokin af reynslu úr skólaum- hverfinu og lagði mikið af mörk- um, ekki síst til lestrarkennslu. Þau hjónin áttu drjúgan þátt í því að allt small saman, náið samstarf og vinátta. Hreinn átti einnig drjúgan þátt í því ásamt samstarfsfólki að skapa gott skólasamfélag í Nesjaskóla og fyrir það eigum við honum mikið að þakka. Allir minnast þess hve góður samstarfsmaður og stjórnandi Hreinn var. En hann var líka góður kennari og alltaf skein í gegn hversu mikla um- hyggju hann bar fyrir nemend- um sínum og allir tóku eftir því að nemendur hændust mjög að Hreini. Þetta var í þá daga að skólastjórarnir sinntu umsjón- arkennslu svo verkefnin voru ærin og oft þurfti að taka á mál- um og Hreini með sinni sam- skiptahæfni og jákvæðni tókst að leysa málin vel af hendi. Hreinn sinnti nemendum sín- um af kostgæfni. Það var ekki bara stritað í námsefninu heldur var brugðið á það ráð að setja upp leiksýningar og aðrar uppá- komur þar sem undirbúnings- ferlið var ekki síður skemmti- legt. Það gustaði af Hreini í leiklistinni og hann var í farar- broddi að fylgja þessum marg- slungnu sýningum eftir. Oftar en ekki sást honum bregða fyrir á sviðinu þegar einhver elskulegur nemandinn gleymdi sér eða til að hvetja leikarana til dáða. Að kenna með Hreini var því einstakt, það voru góðir undir- búningsfundir þar sem mikið var rætt um skólamál og spjallað. Og svo mátti ekki gleyma að nota fundina til þess að hlæja og gera grín að sjálfum sér. Þegar Hreinn hætti í kennslunni verð- ur því að segjast að það var ekki laust við að við fyndum fyrir frá- hvarfseinkennum enda söknuð- um við hans á þeim vettvangi. Hreinn starfaði mikið að kirkjumálum enda góður trú- maður og sinnti trú sinni vel, meðal annars með því að hafa umsjón með Bjarnaneskirkju og kirkjugarðinum við Laxá. Einn- ig var hann virkur félagi í kirkju- kórnum þar sem hann lét sig aldrei vanta. Sár er missir Kristínar því þau hjónin voru sem eitt og alltaf góð heim að sækja. Við sendum Kristínu, börnum, barnabörnum og barnabarnabarni okkar dýpstu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Hreins Eiríkssonar. Þorvaldur og Magnhildur. Auk alls annars var Hreinn Eiríksson dyggur varðmaður kirkju og kristni. Studdi á mjög óeigingjarnan hátt við Bjarna- neskirkju og þá presta sem þar þjónuðu. Ómetanlegt var það fyrir fákunnandi ungan prest að njóta leiðsagnar hans, reynslu og kunnáttu. Minnisstæðir eru kaldir sunnudagsvetrarmorgn- ar, en kirkjan hitnaði seint og oft illa, einnig spjall á kennarastofu Nesjaskóla þar sem Hreinn kenndi og Kristín kona hans var skólastjóri. Hreinn var mikill að burðum, trúlega heljarmenni á yngri árum og það brakaði ein- hvern veginn í honum þegar hann talaði og það var ekki töluð nein vitleysan og húmor hafður í hávegum. Ég var svo heppinn að hitta hann nokkrum sinnum í seinni tíð og rifjaði hann þá upp fyrir mér löngu gleymd samtöl okkar og jafnt skondin atvik sem erfið úr kirkjustarfinu. Ég þakka fyrir góða samfylgd ráð- holls manns og harma það eins og alltaf að stundirnar urðu ekki fleiri en gleðst yfir góðum kynn- um og sendi Kristínu og afkom- endum hans samúðarkveðjur. Baldur Kristjánsson. Hreinn var einstakur maður. Hann kenndi mér og öðrum börnum í Nesjaskóla svo margt. Hann kenndi mér að nota brennipenna til að brenna skraut í tré. Hann kenndi mér á rennibekk og að renna út skraut í kertastjaka. Hann kenndi mér að saga listaverk úr krossvið. Hann kenndi mér að vefja tága- körfu og að berja skraut í leður. Hann kenndi mér líka að synda í Laxánni. Hann gekk með mér á Meðalfellið þar sem við sungum „Við göngum svo léttir í lundu“. Hann söng með mér í kirkju- kórnum í Bjarnaneskirkju – eða, ég ætti nú frekar að segja að ég hafi sungið með honum. Það er honum að þakka að ég kann enn upphafsbænina í sálmabókinni utan að, „Drottinn, ég er kominn í þitt heilaga hús“. Í hvert skipti sem ég heyri þessa bæn, þá heyri ég röddina hans Hreins. Hreinn var einn af þessum góðu. Í litla samfélaginu okkar í Hverfinu áttum við krakkarnir nokkrar aukafjölskyldur og var fjölskyldan í Hæðagarði 13 ein af þeim. Hjá þeim bankaði mað- ur og labbaði inn án þess að bíða eftir að einhver kæmi til dyra, þar gátum við Steingerður búið til karamellu, poppað og fengið okkur Soda Stream með ginger ale-bragði. Það var sjálfsagt. Á ganginum héngu íþróttamedalí- ur barnanna uppi um alla veggi, þar var skrifstofa, baðherbergið var með baðkari á gólfinu og svo var sólbaðslaut í garðinum. Allt var einhvern veginn svo nútíma- legt, öðruvísi og flott – heima- smíðað sófasett og alls konar fí- nerí. Hreinn var svo mikill listamaður og smiður, allt lék í höndunum á honum og hann átti aðdáun okkar krakkanna ósvikna. Svo var hann líka leik- ari og svo söng hann svo fallega. Hann elsku Hreinn. Hann var hlýr og góður mað- ur sem mér og okkur öllum þótti mjög vænt um. Elsku fjölskylda, Kristín, Regína, Steingerður, Pálmar, Brynjar Smári og þið öll, innleg- ar samúðarkveðjur, Hreinn var einstakur maður sem við elsk- uðum öll og munum sakna sárt. Kolbrún Halldórsdóttir, Hraunhóli 8. Hreinn Eiríksson 28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018 Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.