Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018
meir fyrstu verðlaun fyrir hönd Ís-
lands á Alþjóðlega tónskáldaþinginu
í Prag, fyrir verk sem hann samdi og
spilaði á fyrstu frumgerðina. Úlfur
varð þar með fyrsti Íslendingurinn
til að vinna til verðlauna í keppninni.
Þrátt fyrir ungan aldur hafði Úlf-
ur í langan tíma verið að fikta við
hljóðfærasmíð áður en hann hófst
handa við að smíða segulhörpur og
hefur notið dyggs stuðnings föður
síns í þeim efnum. „Ég hef alltaf eytt
miklum tíma á vinnustofunni hjá
honum, og lært mikið varðandi hljóð
og tónlist gegnum fiðlusmíði og ver-
ið hrifinn af öllu kuklinu kringum
það. Ég hef komist að því að hljóð-
færi eru meira en bara efniviðurinn
sem þau eru smíðuð úr, það er eitt-
hvað yfirnáttúrulegt til staðar líka.“
VIÐTAL
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Ég sá hana allt í einu alveg fyrir
mér. Ég vissi að hún yrði að vera
hringlaga, úr hnotu, og að streng-
irnir ættu að vera innan í hljóðfær-
inu sjálfu en ekki utan á,“ segir Úlf-
ur Hansson, tónlistar- og uppfinn-
ingamaður, um aðdragandann að því
hvernig hann hóf smíði á rafstýrðri
segulhörpu. Úlfur hefur síðastliðin
ár þróað nýja tegund hljóðfæris; 25
strengja segulhörpu, en nú hafa þeg-
ar orðið til nokkur fullmótuð eintök
af hörpunni með rafkerfi sem knýr
strengi áfram við snertingu fing-
urgóma þess sem leikur á hörpuna.
„Það eru nokkur ár síðan ég varð
hrifinn af þessari hugmynd. Ég hef
verið að skissa og smíða hugmyndir
að nýjum hljóðfærum og hljóð-
gervlum í mörg ár en áður en verk-
efnið hófst gerði ég mér ekki grein
fyrir því hvað ég ætti margt eftir að
læra um segulsvið, rafsegulkjarna
og straummagnararásir,“ segir Úlf-
ur.
Rásirnar komnar á fjórtándu
kynslóð teikninga
Úlfur fékk árið 2011 styrk úr Ný-
sköpunarsjóði námsmanna frá
Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rann-
ís). „Þá smíðaði ég frumgerð að
hörpunni,“ segir Úlfur, en frumgerð
þessi var talsvert minni en hin full-
búna harpa dagsins í dag. „Sú segul-
harpa hangir enn uppi á vegg heima
hjá mér og er virkilega falleg, og
virkar ágætlega. Rafkerfið frá þeim
tíma var þó alls ekki jafn öflugt og
það er í dag, en rásirnar í nýju hörp-
unum eru komnar á fjórtándu kyn-
slóð teikninga,“ segir Úlfur en bætir
við: „Styrkurinn frá Nýsköp-
unarsjóði í upphafi gerði mér kleift
að byrja að takast á við þessa áskor-
un fyrir alvöru, og það tókst mjög
vel að koma hlutunum á hreyfingu.“
Verkefnið vatt fljótt upp á sig, og
Úlfur hlaut heiðursverðlaun forseta
Íslands fyrir verkefnið, og síðar
Möguleikarnir að koma í ljós
Úlfur hefur hlotið tvo styrki til
viðbótar frá Rannís, og hefur þannig
getað haldið þróun hörpunnar áfram
og stofnaði í kjölfarið fyrirtæki utan
um rannsóknarvinnuna.
„Það hefur verið stórkostlegt
ferðalag að fá að læra og uppgötva
ný hljóð í gegnum þetta ferli – og
ævintýrið er í raun og veru rétt að
byrja, því það er fyrst núna sem það
er fyllilega að koma í ljós hvað er
mögulegt að gera með segulhörp-
unni – og ótrúlega spennandi að sjá
hvernig aðrir tónlistarmenn munu
nálgast hana,“ segir Úlfur með bros
á vör og bætir við: „Rannís hefur
gert mér kleift að byggja upp mik-
inn arf nýrrar þekkingar, sem á eftir
að nýtast í hljóðfærahönnun og til-
raunum innan raftónlistarinnar í
framtíðinni.“
Tæknin á bak við hörpuna byggir
þó ekki einungis á rafsegultækni
Úlfs því hann hefur einnig hannað
stýriviðmót hljóðfærisins frá grunni.
„Ég er mjög spenntur fyrir snerti-
skynjarakerfinu, sem er miðstýrt af
örtölvum sem nema hvern og einn
hnapp á hljóðfærinu. Hljóðfæraleik-
arinn verður beinlínis hluti af rafrás-
um segulhörpunnar við það að
snerta málmfletina, og þannig í raun
hluti af hljóðfærinu sjálfu.“
Langt og strembið ferli
Framleiðsluferlar á segulhörpu
Úlfs eru nú að fullu tilbúnir og ætlar
hann að afhenda fyrir fyrstu pant-
anir fyrir lok árs. Hann segir það
hafa verið langt og strembið ferli að
Segulharpa tónlistarmannsins Úlfs Hanssonar tilbúin til framleiðslu Styrk-
ur hljóðfærisins og fegurð liggur í því hversu undarlegt það er, segir Úlfur
Ljósmynd/Saga Sig
Falleg Segulharpan er sannarlega fallegt hljóðfæri og hljómurinn er eflaust fallegur líka.
Ævintýrið rétt að byrja
Glæsilegt úrval
af trúlofunar- og
giftingarhringa-
pörum
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Verð á pari: 239.181 kr.
Leikarinn Sacha Baron Cohen hef-
ur fengið misjafnar móttökur og
þónokkra gagnrýni fyrir nýjasta
háðsádeilusjónvarpsþáttinn sinn er
nefnist Who is America?, eða Hver
er Ameríka?
Í þættinum, sem var frumsýndur
á bandarísku sjónvarpsstöðinni
Showtime á sunnudaginn, bregður
Baron Cohen sér í hlutverk nokk-
urra fáránlegra persóna í þeim til-
gangi að finna höggstað á banda-
rískri pólitík og menningu.
Bandaríska stjórnmálafólkið sem
lét gabbast til að veita persónum
hans viðtal er ekki ánægt með þætt-
ina. Það segir Baron Cohen hafa
komið fram undir fölsku flaggi og
að það hafi orðið fyrir barðinu á
sjúkum einstaklingi.
Það hefur komið í hlut Show-
time-stöðvarinnar að verja Baron
Cohen, en hann hefur m.a. spjallað
við Sarah Palin og Bernie Sanders í
gervi hins „borgaralega blaða-
manns“ Billy Wayne Ruddick Jr.
sem ferðast um í rafhjólastól, og
Palin tók sem sjálfsögðu að væri
fyrrverandi hermaður. Fyrir það
sakaði leikarinn hana um að dreifa
falsfréttum.
Flestir gagnrýnendur þáttanna
eru sammála um að besti hluti þátt-
anna sé þegar ísraelska persónan
Erran Morad leggur til að öll skóla-
börn verði byssuvædd.
Þátturinn hefur verið sagður
„bitlaus“ og „fyndinn á köflum“.
Telegraph segir Baron Cohen
óvægnasta listamann nútímans, en
The Guardian finnst ekki ljóst
hvert skotmark þáttanna sé.
Óþekkjanlegur Sacha Baron Cohen í hlutverki Erran Morad í Who is America?.
Baron Cohen vekur misjöfn viðbrögð
Söngvarinn góðkunni Cliff Richard
stefndi bresku sjónvarpsstöðinni
BBC er hún flutti fréttir um að hann
lægi undir grun um kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum og að lög-
reglan hefði leitað gagna á heimili
hans í sambandi við rannsóknina.
Honum hafa nú verið dæmdar 30
milljónir kr. í miskabætur eftir tæp-
lega fjögurra ára lagastríð.
The Guardian telur að dómurinn
muni hafa mikil áhrif á hvernig
breskir fjölmiðlar fjalla um lög-
reglurannsóknir þar sem ákæra
liggur ekki fyrir.
Söngvarinn brast í grát er dóm-
urinn var kveðinn upp og fyrir utan
dómsalinn biðu aðdáendur sem
sungu fyrir hann hans eigin smell
„Congratulations“.
AFP
Sigur Cliff Richard stefndi BBC.
Cliff Richard vann
mál gegn BBC
Cher hefur látið
uppi að hún hafi
hljóðritað heila
plötu með Abba-
lögum eftir að
hún var fengin til
að koma fram í
söngvamyndinni
Mamma Mia!
Here We Go
Again, þar sem
hún syngur lagið „Fernando“ ásamt
Andy Garcia, sem leikur hótelstjór-
ann Fernando Cienfuegos. Cher
leikur hins vegar móður aðalpersón-
unnar sem Meryl Streep leikur, en
Cher er aðeins þremur árum eldri
en Streep.
Samkvæmt frétt The Guardian
segir Cher að lögin sín séu ekki of
Abba-leg, hún syngi þau á sinn eigin
einstaka hátt.
Cher
Cher tekur upp
Abba-plötu