Morgunblaðið - 19.07.2018, Qupperneq 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2018
Þetta sumar hefur svo sann-arlega verið stútfullt afframhöldum og endur-vinnslum á vinsælum
myndum: Hin ótrúlegu 2, Dead Pool
2, Antman 2, Ocean‘s 8 og svo mætti
lengi telja. Af öllum þessum fram-
haldsmyndum er Sicario 2 – Day of
the Soldado líklega sú sem kemur
mest á óvart, þ.e.a.s. það vekur
nokkra furðu að það hafi verið ráð-
ist í gerð framhaldsmyndar Sicario.
Sicario gerðist í fremur afmörk-
uðum söguheimi og endirinn á henni
var afar „endanlegur“, maður fékk
ekki á tilfinninguna að það væri ver-
ið að skapa svigrúm fyrir framhald
eins og er stundum gert. En myndin
var vinsæl og ef eitthvað virkar einu
sinni þá er alltaf freistandi að reyna
að gera það aftur – alveg eins nema
með extra allskonar.
Fyrri myndin fjallaði um FBI-
konuna Kate Macer (Emily Blunt),
sem er fengin til liðs við hóp leyni-
þjónustumanna til þess að sinna
verkefni á landamærum Mexíkó og
Bandaríkjanna. Matt Graver og
Alejandro, leiknir af Josh Brolin og
Benicio del Toro, eru leiðtogar verk-
efnisins. Þeir eru dularfullir og virð-
ast ekki spila eftir reglunum og
Emily fer að gruna að hún sé flækt í
eitthvað vafasamt, sem hún er svo
sannarlega.
Nýja myndin gerist þremur árum
seinna. Eiturlyfjahringirnir í Mex-
íkó eru farnir að færa sig upp á
skaftið og eru nú teknir að smygla
hryjuverkamönnum yfir landamær-
in til Bandaríkjanna. Matt og Alej-
endro þurfa að sameina krafta sína
á ný og búa til áætlun til að koma
skikki á þetta. Áætlunin felur í sér
ólöglega íhlutun bandarískra yfir-
valda á mexíkóskri grundu: félag-
arnir leggja á ráðin um að ræna Isa-
bel Reyes, dóttur alræmds eitur-
lyfjabaróns. Á meðan þetta er í
gangi fylgjum við hliðarsögu um
dreng sem er að stíga sín fyrstu
skref sem glæpon og fær það hlut-
verk að smygla ólöglegum innflytj-
endum yfir landamærin.
Sicario númer eitt var virkilega
góð mynd. Leikstjóri hennar var
Denis Villeneuve, sem hefur sýnt
með myndum eins og Enemy, Arri-
val og Blade Runner, að hann er
einhver smekkvísasti leikstjórinn í
geiranum um þessar mundir. Kvik-
myndatakan var gríðarlega fín en
hana annaðist hinn rómaði Roger
Deakins, sem sannaði þar sem
aldrei fyrr hæfileika sína í að vinna
með náttúrulega lýsingu. Persónu-
sköpun og leikur var hrífandi og
sagan var sterk, hún fjallaði um
heim glæpamanna í Mexíkó og lög-
gæslumanna í Bandaríkjunum á
eina háttinn sem er ærlegt; með því
að sýna að aðferðafræði beggja
hliða er meingölluð. Tónlistin sem
Jóhann Jóhannsson samdi var al-
gjörlega frábær og hlaut hann Ósk-
arstilnefningu fyrir. Myndin var
sem sagt reglulega flott og vönduð
bíómynd.
Í Day of the Soldado er, eins og
við má búast, reynt að kalla fram
sömu áhrif og í fyrri myndinni. En
mjög margt er aðeins verra, lýsing-
in er ekki jafn náttúruleg, kvik-
myndatakan er ekki jafn sláandi og
handritið ekki eins öflugt. Það er
líka nýtt teymi á bak við þessa
mynd og því ekki að undra að stíll-
inn sé frábrugðinn. Tónlistin er hins
vegar stórglæsileg, líkt og í fyrri
myndinni. Hún er samin af tón-
skáldinu og sellóleikaranum Hildi
Guðnadóttur, sem kom einnig að
flutingi tónlistarinnar í Sicario. Tón-
listin byggist að miklu leyti á þung-
um og skerandi strengjum, sem er
búið að meðhöldla og magna upp.
Þetta er afskaplega vel af hendi
leyst og aðalstefið ómaði í höfðinu á
mér lengi eftir að ég yfirgaf bíóið.
Benicio Del Toro er leikari á
heimsmælikvarða. Hann er líka ein-
hver svalasta manneskja á jarðríki.
Del Toro fer í flokk með Miles Davis
og Grace Jones, sumir fá bara kúlið
í vöggugjöf. Persóna Alejandros er
vel skrifuð og hún lifnar við í með-
förum Del Toros, það er unun að
horfa á svona frammistöðu. Þau
augnablik sem hann er á skjánum
eru bestu augnablik myndarinnar.
Sérstaklega var gaman að fylgjast
með senum þar sem hann og Isabel
eru í forgrunni, og ber að geta þess
að Isabela Moner er líka frábær í
sínu hlutverki og ljóst að hér er á
ferð afar efnileg ung leikkona.
Í þessari framhaldsmynd er Alej-
andro sumsé gefið meira vægi og
við kynnumst honum betur. Þetta er
vel heppnað en það sama er ekki
hægt að segja um Matt Graver, per-
sónu Josh Brolin. Í fyrri myndinni
var hann virkilega spennandi og
óvænt persóna, karl sem lítur út
eins og venjulegur úthverfapabbi en
er í raun útsmoginn og harðsvíraður
leyniþjónustumaður. Í þessari kvik-
mynd er persóna hans fremur flat-
neskjuleg.
Það er rosalega mikið ofbeldi í
myndinni, sem er að einhverju leyti
raunsætt þar sem það er vitað mál
að það ríkir vargöld í Mexíkó og í
kringum landamærin. Þetta er þó
fullmikið af því góða og maður finn-
ur fyrir því að það vantar eitthvað
siðferðislegt mótvægi. Fyrri myndin
var líka ofbeldisfull en það sem lyfti
henni upp á hærra plan var persóna
Emily Blunt, sem veitti mótvægi við
karlmennskuna og ofbeldið.
Sicario var framúrskarandi mynd,
gerð af stökustu smekkvísi og fag-
mennsku. Day of the Soldado er
ekki framúrskarandi en það er ekki
þar með sagt að hún sé ekki prýði-
leg, hún er flott bandarísk hasar-
mynd. Margt er vel gert, tónlistin
frábær, leikurinn góður og kvik-
myndin er æsispennandi. Það er
líka alveg þess virði að sjá hana til
þess eins að horfa á Benicio í tvo
tíma.
Lífsháski á landamærunum
Svalur Benicio del Toro er leikari á heimsmælikvarða og vel þess virði að horfa á hann í tvær klukkustundir.
Smárabíó, Háskólabíó
og Borgarbíó
Sicario: Day of the Soldado
bbbmn
Leikstjórn: Stefano Sollima. Handrit:
Taylor Sheridan. Kvikmyndataka: Dar-
iusz Wolski. Klipping: Mathew Newman.
Tónlist: Hildur Guðnadóttir. Aðalhlut-
verk: Benicio Del Toro, Josh Brolin, Isa-
bela Moner, Jeffery Donovan, Manuel
Garcia-Rulfo, Cathrine Keener. 122 mín.
Bandaríkin, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Á sunnudaginn gerðust þau merku
tíðindi að þegar tveimur Blockbust-
er-myndbandaleigum í Anchorage,
Alaska, var lokað var aðeins ein eftir
í gjörvöllum Bandaríkjunum og er
sú í bænum Bend í Oregon-ríki.
Á hápunkti fyrirtækisins voru
9.000 leigur víðvegar um landið og
árið 1989 var opnuð ný leiga á 17
mínútna fresti. Þá var Blockbuster
tákn hins notalega bíókvölds fjöl-
skyldunnar.
Er líða tók á fyrsta tug aldarinnar
var þeim hins vegar lokað með sama
hraða, þar sem Netflix og fleiri
efnisveitur tóku að fjarlægja við-
skiptavini myndbandaleiga.
Í dag kemur fólk aðallega inn til
að ganga með fortíðarþrá í hjarta
eftir göngunum og leita uppi ein-
hverjar furðumyndir. Fólk fær líka
kikk út úr því að ná seinasta eintak-
inu af nýjum vinsælum sjónvarps-
þætti. Eitthvað sem efnisveitur geta
ekki veitt manni.
Sumir fara hins vegar ekki inn,
heldur taka mynd af sér fyrir fram-
an leiguna, enda um einstakt minn-
ismerki um gamla tíma að ræða.
Þegar leigunum tveimur í Ancho-
rage var lokað mættu traustir við-
skiptavinir svartklæddir og kveiktu
á kertum á bílastæðunum fyrir
framan leigurnar.
Aðeins ein Block-
buster-leiga á lífi
AFP
Sú síðasta Seinasta Blockbuster-leigan er þessi, í bænum Bend í Oregon.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
ota, Hyundai, Nissan,
, og fleiri gerðir bíla
ER BÍLLINN ÞINN
ÖRUGGUR
Í UMFERÐINNI?
Varahlutir í...
ICQC 2018-20