Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 44

Morgunblaðið - 19.07.2018, Side 44
FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 200. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Rússar afbóka 100 milljóna … 2. Aron sendur heim úr … 3. Frikki Dór setti brúðkaupið í … 4. Gekk burt þegar Kjærsgaard … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Leikararnir Björgvin Franz Gísla- son, Björn Stefánsson og Katrín Hall- dóra Sigurðardóttir munu fara með stór hlutverk í söngleiknum Matthildi sem verður frumsýndur í mars á næsta ári í Borgarleikhúsinu, en þau fóru einnig með aðalhlutverkin í hinni vinsælu sýningu Elly í sama leikhúsi. Fjölmennar áheyrnarprufur fóru fram fyrir Matthildi þar sem leitað var barna sem gætu leikið í sýning- unni og voru Erna Tómasdóttir, Ísabel Dís Sheehan og Salka Ýr Ómarsdóttir valdar til að leika Matthildi sjálfa en aðrir leikarar í verkinu verða þau Arn- ar Dan Kristjánsson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir og Þorleifur Einarsson. Leikstjóri þess er Bergur Þór Ingólfsson, Gísli Rúnar Jónsson sér um íslenskun, danshöfundur er Lee Proud og tón- listarstjóri er Agnar Már Magnússon. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fara úr Elly yfir í söngleikinn Matthildi  Fabien Fonteneau, organisti og pí- anisti frá Toulouse í Frakklandi, og Hólmfríður Friðjónsdóttir, söngkona, söngkennari og kórstjóri, halda tón- leika í Digraneskirkju í kvöld kl. 20. Þau búa í Stykkishólmi og lágu leiðir þeirra saman sumarið 2007 og hafa þau haldið tónleika í Toulouse, Buda- pest og víða á Íslandi. Tónleikarnir verða ljúfir og sumarlegir og flutt verða orgel- verk eftir Buxtehude, Guilmant o.fl. ásamt nokkrum kirkjuaríum helstu meistaranna og frönskum og íslensk- um sönglögum, m.a. eftir Atla Heimi Sveinsson. Sumarlegir tónleikar í Digraneskirkju Á föstudag Sunnan og suðvestan 5-13 og rigning, en þurrt um landið austanvert fram eftir degi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norð- austanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg norðlæg og styttir upp og rofar til sunnan- og vestanlands en skýjað með köflum norðaustantil og stöku skúrir þar síðdegis. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi. VEÐUR Valsmenn voru örstutt frá því að slá út norska meist- araliðið Rosenborg og kom- ast áfram í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Vítaspyrna í upp- bótartíma færði Rosen- borg 3:1 sigur og sæti í 2. umferð en Valsmenn fær- ast yfir í Evrópudeildina og mæta meistaraliði Andorra. Þrjár vítaspyrnur voru dæmdar og allar mjög um- deildar. »2 Litlu munaði að Valur færi áfram „Menn vita í rauninni ekki hvað mun gerast hérna, meðal annars með til- liti til þess hvernig veðrið verður. Þar af leiðandi er óvíst hversu gott skor þarf til að kom- ast í gegnum niðurskurð keppenda. Enginn get- ur gert sér það í hugar- lund,“ segir golfþjálfarinn Ingi Rúnar Gíslason, sem er Haraldi Franklín Magn- ús til halds og trausts á Opna breska meist- aramótinu sem hefst í dag. »1 Veðrið hefur mikil áhrif á mótið í Skotlandi „Þjálfarinn hérna hefur tröllatrú á mér og ég er fyrirliði liðsins þannig að þegar ég settist niður og fór yfir stöðuna komst ég að þeirri niður- stöðu að það væri í raun bara heimskulegt að fara eitthvert annað á þessum tímapunkti,“ segir fót- boltamaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson, sem á góðu gengi að fagna með Zürich í Sviss. »4 Væri heimskulegt að fara eitthvert annað ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta enda er þetta frábær leið til að hreyfa sig,“ segir Helgi Þorvaldsson, þjálfari og einn for- sprakka gönguknattspyrnu, sem fram fer á Eimskipsvellinum í Laugardal. Gönguknattspyrna er ætluð eldri borgurum og öðrum til að stunda heilbrigða hreyfingu í góðum félagsskap. Íþróttin er til- tölulega nýkomin til landsins og hefur verið í miklum vexti undan- farin misseri. Spurður hvernig hugmyndin kviknaði segir Helgi að íþróttin hafi notið mikilla vinsælda erlend- is. „Þetta er mjög stórt erlendis og þykir afskaplega góð aðferð til að fá fólk til að hreyfa sig. Við erum auðvitað enn fá en við vonum að það fjölgi frekar í hópnum fljót- lega,“ segir Helgi og bætir við að hópurinn hafi upphaflega byrjað að æfa í Sporthúsinu í Kópavogi áður en hann flutti sig yfir á íþrótta- svæði Þróttar í Laugardal. „Við byrjuðum með þetta í september innandyra í Sporthúsinu. Þetta var síðan fært út í byrjun sumars en sökum veðurs hefur mætingin ver- ið mjög misjöfn. Við vorum upp undir tíu á veturna en þetta hefur rokkað mikið í sumar enda hefur veðrið verið fremur slæmt,“ seg- ir Helgi. Fólk á öllum aldri velkomið Öllum er frjálst að mæta á æfingar í gönguknattspyrnu og ekkert gjald er tekið af þeim sem mæta. Reglur göngu- knattspyrnu eru þó talsvert frá- brugðnar því sem þekkist í venju- legum knattspyrnuleikjum. „Við erum með misstóra velli eftir því hversu mörg við erum. Reglurnar er síðan þannig að vítateigurinn er heilagur og enginn má stíga þar inn nema markmaðurinn. Að öðr- um kosti er vítaspyrna dæmd. Þá má markmaður heldur ekki fara út úr vítateignum því þá er líka dæmt víti. Þess utan eru reglurnar eins og í venjulegum fótboltaleik,“ segir Helgi og bætir við að hann vonist til að sjá fleiri eldri borgara á næstu æfingum. „Við höfum verið að reyna að fá eldra fólk til að koma og vera með okkur í þessu. Þetta er auðvitað bara skemmtileg leið til að hreyfa sig og spila fót- bolta í góðum félagsskap,“ segir Helgi. Æfingar í gönguknattspyrnu fara fram á miðvikudögum klukk- an 12.15 í Laugardal, en eins og fyrr segir er fólki á öllum aldri frjálst að mæta. Vinsældir göngubolta aukast  Æfingar fara fram einu sinni í viku í Laugardal Morgunblaðið/Árni Sæberg Göngubolti Ellert B. Schram, heiðursformaður KSÍ og fyrrverandi forseti ÍSÍ, sýnir gamla takta. Upphaf gönguknattspyrnu má rekja til Bretlands, en þar hefur leikurinn notið mikilla vin- sælda. Fyrsta félagið sem bjó til sérstaka deild í kringum íþróttina var enska knattspyrnuliðið Chesterfield FC árið 2011. Í kjölfarið jukust vinsældir leiksins jafnt og þétt í gegn- um árin. Það var loks árið 2017, þegar sjónvarps- stöðin Sky Sports gerði þátt um íþróttina, sem hálfgert gönguknattspyrnu-æði varð í Bret- landi. Í dag bjóða fjölmörg félög um allan heim fólki að stunda íþróttina. Nú síðast auglýsti bankinn Barclays þjónustu sína með því að sýna frá leikjum í gönguknattspyrnu. Íþróttin hefur verið að ná fót- festu víða um heim og það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvort hún nær sömu hæðum hér á landi. Bretar fyrstir með göngubolta GÖNGUKNATTSPYRNA HEFUR NÁÐ FÓTFESTU VÍÐA UM HEIM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.