Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
v
595 1000
MAROKKÓ
Frá kr.
93.895
Frá kr.
99.695
ve
rð
ge
tur
br
e
st
fr
irv
ar
a
25. OKTÓBER Í 9 NÆTUR
HEILL HEIMUR ÆVINTÝRA
Þorgrímur Kári Snævarr
Arnar Þór Ingólfsson
Margt bar til tíðinda á Skál-
holtshátíð sem fram fór um helgina.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson lét af
embætti sem vígslubiskup á hátíð-
inni en í hans stað var sr. Kristján
Björnsson vígður af frú Agnesi M.
Sigurðardóttur, biskupi Íslands.
Í tilkynningu frá þjóðkirkjunni
segir Agnes þetta marka nokkurs
konar tímamót í Skálholti. „Ég vil
þakka Kristjáni Vali fyrir gott sam-
starf og góða þjónustu í kirkjunni,
bæði í Skálholti og annars staðar um
áratuga skeið,“ segir Agnes.
Kirkjan ræktar landið
Á Skálholtshátíð skrifaði biskup
einnig undir samning við Skógrækt-
arfélag Íslands um afnot af 230 hekt-
ara landi í eigu kirkjunnar í Skál-
holti. Ætlunin er að Skógræktar-
félagið fái afnot af jörðinni í heil 90
ár og að þar muni rísa skógur sem
verði útivistarmönnum til ynd-
isauka. „Þessi ákvörðun er í takt við
umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar um
að rækta landið og sporna við losun
gróðurhúsalofttegunda, sem við ger-
um meðal annars með skógrækt,“
sagði Agnes í tilkynningu á heima-
síðu þjóðkirkjunnar.
„Við höfum einnig endurheimt
votlendi á svæðinu með því að moka
ofan í skurði. Þannig hefur kirkjan í
Skálholti lagt sig fram um að varð-
veita jörðina og sköpunina.“
Meðal annarra dagskrárliða á há-
tíðarhöldum sem fóru fram í Skál-
holti á laugardaginn voru grasa-
kynning garðyrkjufræðingsins
Guðríðar Helgadóttur, kynning
fornleifafræðingsins Mjallar Snæs-
dóttur á uppgreftri og fuglakynning
fuglamerkingarmannsins Gunnars
Tómassonar. Daginn eftir voru org-
eltónleikar haldnir í Skálholtskirkju,
auk vígslu sr. Kristjáns.
Á hátíðarsamkomu síðdegis í gær
flutti erindi þau Ragnheiður Jóna
Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri
100 ára afmælisnefndar um fullveldi
Íslands, og dr. Ágúst Einarsson,
fyrrverandi alþingismaður og rekt-
or.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Biskupar Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, og Kristján Björnsson, nýr vígslubiskup, á Skálholtshátíðinni. Kristján tók við embættinu af Kristjáni Vali Ingólfssyni um helgina.
Vígslubiskup vígður í Skálholti
Fjölbreytt dagskrá fór fram á Skálholtshátíð um helgina Sr. Kristján Björnsson tók við af sr.
Kristjáni Vali Ingólfssyni sem vígslubiskup Samningur skrifaður við Skógræktarfélag Íslands
Gestir Sigríður Andersen dómsmálaráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson,
fyrrverandi forseti, voru meðal þeirra sem sóttu vígsluathöfnina í gær.
Athöfn Fjölmennt var við vígslu sr. Kristjáns Björnssonar í Skálholtskirkju
í gær. Vígsluathöfnin var hluti af fjölbreyttri dagskrá Skálholtshátíðar.
Axel Helgi Ívarsson
Alexander Gunnar Kristjánsson
„Við munum beita okkur fyrir því að
ráðstafanir vegna umferðaröryggis
á veginum um Mosfellsdal hefjist
sem fyrst,“ segir Bjarki Bjarnason,
forseti bæjarstjórnar í Mosfellsbæ, í
samtali við Morgunblaðið, aðspurður
hvernig bæjaryfirvöld hyggist taka á
umferðaröryggi í dalnum. Banaslys
varð á Þingvallavegi í fyrradag eftir
árekstur bíla við framúrakstur. Fyr-
ir tveimur árum lést bifhjólamaður á
Þingvallavegi í slysi sem rekja má til
hraðaksturs.
Vegaframkvæmdir áætlaðar
Til stendur m.a. að koma upp
tveimur hringtorgum á veginum
með það fyrir augum að draga úr
hraðakstri og hefur áhersla verið
lögð á samráð við íbúa, að því er seg-
ir á heimasíðu Vegagerðarinnar. Jó-
hannes Hilmarsson, sem situr í
stjórn Íbúasamtaka Mosfellsdals,
sagði í samtali við mbl.is í gær að
íbúar í dalnum væru orðnir þreyttir
á mikilli og hraðri umferð um svæð-
ið. Árum saman hefur verið kallað
eftir umbótum á veginum.
„Málið er tvíþætt. Annars vegar
er um að ræða veigamiklar skipu-
lagsbreytingar, eins og að setja upp
tvö hringtorg, sem liggur fyrir að
verði gert. Það er nokkuð langt ferli
og þess vegna vildum við taka um-
ferðaröryggismálin sérstaklega fyrir
á fundi skipulagsnefndar 9. maí síð-
astliðinn,“ segir Bjarki.
Einfaldast að minnka hraðann
Bjarki segir sér finnast persónu-
lega að minnkun hámarkshraða sé
góð hugmynd, þ.e.a.s að minnka há-
markshraðann í gegnum Mosfellsdal
úr 70 km/klst. í 50 km/klst. „Við hjá
Mosfellsbæ munum að sjálfsögðu
skoða og fylgja öllum hugmyndum
um bætt umferðaröryggi vel eftir,“
segir Bjarki Bjarnason að lokum.
Bærinn mun beita sér
Ódýrar aðgerðir til að bæta umferðaröryggi á Þingvalla-
vegi ræddar snemma í maí hjá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mosfellsdalur Umferðin á veginum
í gegnum dalinn er mikil og hröð.