Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fyrirtækið Ghostlamp var stofnað
árið 2014 sem markaðstorg fyrir
áhrifavalda á samfélagsmiðlum.
Reksturinn hefur vaxið ört og er
Ghostlamp núna með starfsemi í
New York, London, Amsterdam,
Dúbaí, nú síðast í borginni Natal í
Brasilíu.
Fyrr í mánuðinum gerði Ghost-
lamp samning við brasilíska kaffi-
framleiðandann Eugenio Café um
að markaðssetja kaffi þar í landi.
„Það er óneitanlega merkilegt að
íslenskt fyrirtæki skuli fást við að
selja kaffi í í þessum heimshluta –
eða er ekki sagt að kaffi sé það
síðasta sem maður þarf að taka
með sér þegar ferðast er til Bras-
ilíu?“ segir Valgeir Magnússon,
stjórnarformaður Ghostlamp
Að sögn Valgeirs er starfsemi
Eugenio Café í örum vexti: „Bras-
ilískir kaffibændur hafa hingað til
stundað það að selja bestu baun-
irnar til erlendra fyrirtækja sem
hafa sín eigin vörumerki og selja
kaffið jafnvel aftur til Brasilíu, en
eftir sitja lélegri baunir fyrir inn-
lenda framleiðendur sem þykja
gera lakara kaffi. Eugenio Café
hefur spyrnt við fótunum og skap-
að eitt eigið brasilíska vörumerki
fyrir brasilískt úrvalskaffi,“ út-
skýrir Valgeir. „Vörur Eugenio
Café eru væntanlegar á Evrópu-
markað á næstu mánuðum og
stefnt á Bandaríkin á næsta ári, og
vonandi að Ghostlamp muni fylgja
þeim um heiminn.“
Margir smáir í stað eins stórs
Ghostlamp hefur milligöngu um
að áhrifavaldar á samfélagsmiðlum
auglýsi vörur og þjónustu. „Okkar
sérstaða er m.a. fólgin í því að
geta tengt seljendur við áhrifa-
valda með minni aðdáendahópa,
svk. „microinfluencers“. Í stað
þess að borga stórstjörnum á borð
við Kim Kardashian tugi milljóna
króna fyrir að kynna vöru má í
staðinn leita til nokkur þúsund
minni áhrifavalda og ná til stærri
hóps fyrir sömu fjárhæð. Minni
áhrifavaldarnir hafa líka þann kost
að fylgjendahópur þeirra þjappast
oft saman á tilteknum markaðs-
svæðum og hentar Ghostlamp því
vel fyrir staðbundið markaðs-
starf.“
Að sögn Valgeirs er áhrifavalda-
markaðssetning skammt á veg
komin í Brasilíu og áhugaverð
tækifæri sem bíða Ghostlamp þar í
landi. Er Ghostlamp í hópi sára-
fárra íslenskra fyrirtækja sem
hafa reynt að láta að sér kveða í
þessum heimshluta. „Landið er
stórt, með um 210 milljónir íbúa,
sem dreifast á nokkrar milljóna-
borgir. Þessar borgir eru eins og
stórar eyjar aðskildar frá hinum
borgunum því það sem gerist í
Natal hefur ekki endilega mikið að
segja í Rio de Janeiro eða São
Paulo . Ghostlamp er því kjörinn
vettvangur til að stunda stað-
bundna markaðssetningu í gegn-
um áhrifavalda á hverju svæði fyr-
ir sig.“
Í London, Hollandi og Samein-
uðu arabísku furstadæmunum er
Ghostlamp með umboðsmenn, en
hefur eigin starfsmenn á staðnum
í Bandaríkjunum og Brasilíu. Val-
geir segir samfélagsmiðlamark-
aðssetningu kalla á það að hafa
fólk á vettvangi, og þó svo að int-
ernetið sé alþjóðlegur miðill sé
ekki hægt að selja þjónustu
Ghostlamp frá Íslandi.
„Viðskiptavinir okkar eru aug-
lýsendur og auglýsingastofur og
þarf ákveðna nálægð í þeim við-
skiptum. Það fer líka töluverð
vinna í að fræða viðskiptavini okk-
ar um þennan nýja auglýsinga-
miðil og í nærri tvö ár hef ég verið
að þvælast á milli auglýsingastofa
um allan heim til að kenna þeim
að nota áhrifavalda og nota kerfið
okkar.“
Markaðstorg áhrifavalda
nemur land í Brasilíu
Ghostlamp hefur gert samning við brasilískan kaffifram-
leiðanda um markaðssetningu gegnum samfélagsmiðla
Ljósmynd / Ghostlamp
Sopi Valgeir Magnússon og Eugenio Ribeiro Neto handsala samstarfið.
Stjórn Fiat Chrysler tilkynnti á
sunnudag að Mike Manley, stjórn-
andi Jeep, muni taka við af Sergio
Marchionne sem forstjóri FCA.
Ákvörðunina bar brátt að en
Marchionne, sem stýrði Fiat frá
2004, Chrysler frá 2009 og samein-
uðu félagi Fiat og Chrysler frá
2014, liggur þungt haldinn á
sjúkrahúsi eftir að hafa gengist
undir skurðaðgerð fyrr í mánuðin-
um.
John Elkann, stjórnarformaður
FCA, sendi starfsmönnum félags-
ins bréf á sunnudag þar sem hann
færði þeim þau tíðindi að fylgikvill-
ar sem komu upp eftir skurðað-
gerðina hefðu orðið til þess að hinn
66 ára gamli Marchcionne gæti
ekki snúið aftur til starfa.
Bjargvættur Fiat
„Undanfarin 14 ár, fyrst hjá Fi-
at, svo hjá Chrysler og loks hjá
FCA, hefur Sergio reynst vera
besti forstjóri sem nokkur gæti
óskað sér, og fyrir mig persónu-
lega hefur hann verið lærifaðir,
samstarfsfélagi og náinn vinur,“
skrifaði Elkann í bréfinu. „Leiðir
okkar lágu saman á einu erfiðasta
tímabilinu í sögu félagsins og það
var með gáfum hans, þrautseigju
og leiðtogahæfni sem það tókst að
bjarga Fiat.“
Marchionne var einnig forstjóri
Ferrari og vinnuvélaframleiðand-
ans CNH. Hjá Ferrari hleypur Lo-
uis Camilleri í skarðið en hann hef-
ur setið í stjórn ítalska
sportbílasmiðsins og á einnig sæti í
stjórn Philip Morris International.
Hjá CNH tekur Suzanne Heywood
við sem forstjóri en hún kemur úr
stjórnendahópi eignarhaldsfélags-
ins Exor.
Að sögn FT hafði Marchionne í
hyggju að láta af störfum hjá FCA
í apríl á næsta ári en vera áfram
forstjóri og stjórnarformaður Ferr-
ari fram til ársins 2021. Marc-
hionne er eignaður heiðurinn af að
hafa snúið við rekstri Chrysler og
Fiat og tókst honum m.a. að losa
FCA við 12,5 milljarða dala skulda-
fjall á undanförnum fjórum árum.
Stjórn FCA segir að brottför
Marchionne muni ekki hafa áhrif á
þær áætlanir sem fyrirtækið
kynnti í júní síðastliðnum. Í þeim
er stefnt að því að árið 2022 verði
búið að tvöfalda hagnað félagsins
og fjárfesta fyrir 9 milljarða evra í
rafmagnsbílatækni. ai@mbl.is
AFP
Brotthvarf Sergio Marchionne tókst að bjarga bæði Fiat og Chrysler.
Nýr forstjóri valinn
í snatri hjá FCA
Marchionne þungt haldinn eftir
skurðaðgerð og snýr ekki aftur til starfa
● Í viðtali við
sjónvarpsstöðina
CNBC á föstu-
dag sagðist Do-
nald Trump
Bandaríkja-
forseti reiðubú-
inn að leggja
tolla á allan kín-
verskan inn-
flutning eins og
hann leggur sig. Er um að ræða vörur
fyrir samtals 500 milljarða dala.
„Það hallar verulega á okkur,“ sagði
forsetinn í viðtalinu og bætti við: „Ég
er tilbúinn að fara upp í 500 [millj-
arða]“.
Fyrr í þessum mánuði hækkuðu
bandarísk stjórnvöld tolla á 34 millj-
arða dala virði af innfluttum kínversk-
um varningi og kínversk stjórnvöld
svöruðu í sömu mynt með nýjum toll-
um á bandarískan varning.
Ummæli forsetans höfðu ekki góð
áhrif á markaði vestanhafs. Að sögn
Reuters lækkuðu stærstu hlutabréfa-
vísitölurnar og gengi bandaríkjdals
veiktist gagnvart helstu gjaldmiðlum.
ai@mbl.is
Trump hótar tollum á allan
kínverskan varning