Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég er ekki í vafa um að ef ég hefði ekki verið utanríkisráðherra þegar mál Bobby Fischers kom upp og tek- ið það til mín hefði hann dáið í banda- rísku fangelsi. Heimurinn hefði ekki haft mikinn sóma af því,“ sagði Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætis- og ut- anríkisráðherra og nú ritstjóri Morg- unblaðsins, í ávarpi sem hann flutti sl. laugardag í Laugardælakirkju í Flóa. Í kirkjugarðinum þar er leg- staður Fischers og á Selfossi er Fisc- hersetrið, sem er fimm ára um þess- ar mundir. Þeirra tímamóta var minnst um helgina en áður var efnt til samkomu í kirkjunni þar sem Dav- íð greindi frá atbeina sínum við að frelsa Fischer úr fangelsi í Japan á útmánuðum 2005. Snilligáfa en sjálfum sér erfiður Fjölmenni sótti samkomuna í Laugardælum þar sem Davíð sagði í upphafi frá ólíkindatólinu Fischer. Manni með snilligáfu sem var sjálf- um sér erfiður. Á heimsmeistara- einvíginu í skák á Íslandi árið 1972 eignaðist Fischer marga aðdáendur hér á landi þrátt fyrir bresti sína. „En samt fannst þessari þjóð við ysta haf vænt um Fischer og gekk út frá því að sú væntumþykja væri endur- goldin sem er ekki endilega víst. En það breytti engu því Fischer var og er orðinn einn af okkur,“ nefndi Dav- íð. Fischer var þekktur fyrir að fara eigin leiðir og virti í engu refsiað- gerðir gegn Júgóslavíu þegar hann tefldi einvígi við Spasskíj í Svart- fjallalandi árið 1992. Eftir það var hann eftirlýstur af Bandaríkjastjórn. „Viðbrögð hans við árásum á tví- buraturnana gerðu sjálfsagt útslagið um hve erfitt var að fá bandarísk stjórnvöld til þess að sýna honum mildi,“ útskýrði Davíð sem í forsætis- ráðherratíð sinni talaði máli Fischers meðal annars við Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, án þess að slíkt skil- aði árangri. Íslendingar ynnu ekki prik Um miðjan september 2004 tók Davíð Oddsson við embætti utanrík- isráðherra. Þegar þangað kom leit- uðu til hans ýmsir kappsamir vel- gjörðarmenn Fischers sem reyndu hvað þeir gátu að frelsa skákmeist- arann frá Japan. Hann sagðist hafa gert þeim mönnum ljóst að í nýju embætti væri svigrúm sitt ekki samt og var. Sem forsætisráðherra hefði hann eftir atvikum blandað sér í fag- mál annarra ráðherra. Nú væri ann- að uppi á teningnum. Sér hefði einnig verið ljóst að lítill áhugi væri hjá samráðherrum sínum á að sinna máli Fischers og mat margra að Íslend- ingar ynnu sér ekki prik með af- skiptum. „Það var sennilega rétt mat,“ segir Davíð sem telur alla þó hafa sinnt sínu af raunsæi og málefnalega. „Það var auðvitað fjarri því sjálfsagt að Ís- land blandaðist inn í mál Fischers og ekki miklar líkur á að neitt hefðist upp úr því krafsi.“ Þegar komið var fram á árið 2005, gaf Davíð sendiráði Íslands í Tókýó boð um að vinna í máli Fischers sem átti að bjóða til Íslands á vegabréfi útgefnu af utanríkisráðuneytinu. Þegar ljóst var að sú lausn myndi hugsanlega ekki duga gagnvart þeim sem héldu honum í Japan að beiðni Bandaríkjanna, var áhugasömum þingmönnum hér heima gert orð um að vera viðbúnir því að bregðast þyrfti við á Alþingi. Fór því svo að Alþingi samþykkti 21. mars 2005 með 42 samhljóða atkvæðum að veita Bobby Fischer íslenskan ríkisborg- ararétt. Hann flaug til Íslands tveim- ur dögum síðar hindrunarlaust, þrátt fyrir að handtökuskipun Bandaríkja- manna lægi fyrir á flugvöllum víða um heim. Bætti Davíð því raunar við í ræðu sinni að vegna þessa máls hefði hann átt samtöl við bandaríska erindreka sem töluðu mjög gegn þessari ráðstöfun. Rök sín hefðu þó verið alveg skýr. „Baráttuhópur vina Fischers vann mikið og aðdáunarvert afrek en án hans hefði þetta mál aldrei ratað inn á mitt borð eða í heila höfn yfirleitt,“ sagði Davíð enn fremur. Miklar tilviljanir Fischer átti við erfiðan nýrna- sjúkdóm að stríða síðustu misserin og lá undir það síðasta á sömu sjúkradeildinni á Landspítalanum og Davíð gerði sumarið 2004. Fyrir til- viljun kveðst hann hafa átt þangað leið nokkru síðar og spurði hvar Fisc- her hefði dáið og var þá sýnt inn í stofuna. „Svo hittist á að ég þekkti stofuna, sem reyndist vera sú sama og ég hafði heimsótt vin minn og fé- laga Halldór Ásgrímsson veikan á. Bobby Fishcer lést svo 17. janúar 2008, en þann dag varð ég sextugur. Þetta eru allt svo miklar tilviljanir. Fischer er og verður einn af okkur,“ sagði Davíð Oddsson að síðustu í ávarpi sínu í Laugardælakirkju. Fischer var og er einn af okkur  Skákmeistarans mikla minnst í Laugardælakirkju  Davíð Oddsson sagði frá atbeina sínum við frelsun Fischers  Barátta við Bandaríkjamenn  Lágu á sömu sjúkradeild á Landspítalanum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjölmenni Gott fólk í Laugardælakirkjugarði við leiði skáksnillingsins Bobby Fischers, sem lést 17. janúar 2008. Ræðumaður „Baráttuhópur vina Fischers vann mikið og aðdáunarvert af- rek,“ sagði Davíð þegar hann fór yfir atburðarásina í Fischersmálunum. Norski dráttarbáturinn Tandberg Polar hélt áfram för sinni í gær frá Kanada til Noregs með flak af skip- inu Maud í eftirdragi. Leiðangurinn kom til Vestmannaeyja sl. föstudag og lagði af stað að nýju í gærmorgun. Verið er að ferja skipið til Óslóar en þar á að koma því fyrir á safni. Um merkilegt skip er að ræða, sem norski landkönnuðurinn Roald Amundsen sigldi á um norðurhöfin fyrir rúmum 100 árum, að því er fram kom á fréttavefnum Eyjar.net. Leiðangri Amundsen um Norður- Íshafið lauk árið 1924 og dagaði skip- ið Maud uppi í Alaska. Ári síðar var skipið selt sem hluti af þrotabúi Amundsens. Þá var Maud nýtt sem flutningaskip við norðurströnd Bandaríkjanna og Kanada. Í kjölfarið nýttist Maud sem geymslurými auk þess að hýsa útvarpsstöð þar til hún sökk árið 1930 við norðurströnd Kan- ada. Flakið náðist upp af hafsbotni árið 2016 og var ákveðið að koma því aftur til Noregs. Ljósmyndir/Óskar Pétur Friðriksson Dráttur Tandberg Polar lagði af stað í gær frá Eyjum með flakið af Maud. Fornt skipsflak dregið til Noregs Skip Svona leit leiðangursskipið Maud út fyrir um 100 árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.