Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
H
rannar Hólm og Ásta
Stefánsdóttir standa
fyrir reglulegum
gönguferðum fyrir
Íslendinga í Kaup-
mannahöfn. Þau leiða hópa um
miðbæinn, koma við á Íslend-
ingaslóðum og segja sögur af Íslend-
ingum sem hafa sett mark sitt á
borgina.
„Þetta er búið að vera endalaust
gaman eins og veðrið er búið að vera
gott frá því í maí. Það er 20 til 25
stiga hiti á hverjum degi í borginni
og mjög margir Íslendingar hérna.
Maður heyrir það bara,“ segir
Hrannar. Þau Ásta hafa haldið úti
Facebook-síðunni Ferðir um Kaup-
mannahöfn og skipulagt ferðir síðan
í febrúar.
Byrjuðu að skoða borgina af
einskærri forvitni
Hugmyndin að verkefninu
kviknaði eftir að Hrannar hafði deilt
ferðalagi sínu og eiginkonu sinnar
um Kaupmannahöfn á Facebook.
Síða hjónanna, Halla og Hrannar á
göngu um Kaupmannahöfn, vakti
mikla athygli. „Í hvert skipti sem við
förum í göngu fylgjast margir með.
Fólk skoðaði myndirnar sem við vor-
um að setja inn og fór að spyrja
hvort við ættum ekki að taka hópa
með okkur í göngur. Við vorum að
gera þetta af einskærri forvitni og
vildum kynnast borginni en á end-
anum urðum við hálfgerðir sérfræð-
ingar í öllu sem viðkemur borginni
og kunnum að segja skemmtilegar
sögur. Góð vinkona Höllu, Ásta, kom
með mér í þetta þar sem Halla hefur
nóg annað að gera,“ segir Hrannar.
Þrátt fyrir að síðan Ferðir um
Kaupmannahöfn hafi verið stofnuð í
febrúar hefur Hrannar verið að taka
að sér hópa í leiðsögn um borgina
talsvert lengur eða í um eitt og hálft
ár. Hann hefur fyrst og fremst tekið
að sér hópa sem hafa samband.
„Núna erum við nýbyrjuð að bjóða
upp á skipulagðar ferðir sem ein-
staklingar geta skráð sig í,“ segir
Hrannar og bætir við að nálgast
megi nánari upplýsingar á heimasíð-
unni, ferdirumkbh.dk.
Hrannar og Halla hafa búið í
Kaupmannahöfn í níu ár, en Ásta í
um tuttugu ár og þau þekkja því
borgina vel. Þó segir Hrannar að það
sé ekkert mál að búa lengi á ein-
hverjum stað og vita lítið um sögu
staðarins.
Stöðugt að bæta við fróðleik
„Það þarf að setja sig inn í málin
ef maður ætlar að kynnast borginni
almennilega. Hér hefur verið líf og
fjör í um 850 ár, þannig að eitt og
annað hefur gengið á. Maður er stöð-
ugt að bæta við nýjum fróðleik, svo
hægt sé að segja fólki frá einhverju.
Það er gaman að vera með Íslend-
ingum og segja fólki sögur sem það
hefur aldrei heyrt áður, jafnvel þótt
það telji sig þekkja borgina vel.“
Hrannar segir engan vera svik-
inn af gönguferðunum og að mark-
miðið sé að þær séu líflegar og
skemmtilegar. „Við förum á slóðir
Jóns Sigurðssonar og Jónasar Hall-
grímssonar. Við förum yfir margt í
tengslum við háskólannn og sjálf-
stæðisbaráttu Íslendinga.“
Þá kíkja þau með hópa á staði
þar sem Íslendingar borðuðu saman,
drukku brennivín og duttu jafnvel í
sjóinn og drukknuðu, eins og Hrann-
ar kemst að orði.
Kaupmannahöfn er vinsæll
áfangastaður hjá Íslendingum allt
árið um kring að sögn Hrannars.
„Kaupmannahöfn var náttúrlega
höfuðborg Íslands í 500 ár og þetta
er fyrsta borgin sem margir Íslend-
ingar þekkja,“ segir Hrannar.
„Margir hópar koma um jólin og á
veturna. Svo eru margir Íslendingar
sem búa hérna og fá fólk í heim-
sókn.“
Samfélagið í Kaupmannahöfn
er fjölbreytt og menningin marg-
brotin. „Þú þarft ekki að ganga
nema nokkrar mínútur í eina átt eða
aðra, þá sérðu öðruvísi samfélag og
fólk. Þegar veðrið er gott þá er borg-
in engu lík, það eru baðstrendur, úti-
svæði og allir á hjóli.
Spurður um uppáhaldsstað sinn
í Kaupmannahöfn segir Hrannar
það vera Pissurennuna eða Pisser-
anden eins og staðurinn heitir á
dönsku. „Það er löng saga á bak við
hann en þetta er staður sem margir
kannast við,“ segir Hrannar.
Íslendinga-
slóðir kann-
aðar í Köben
Hrannar og Ásta taka að sér hópa í gönguferðir um
Kaupmannahöfn. Í ferðunum segja þau skemmti-
legar sögur úr borginni og heimsækja Íslendingaslóð-
ir. Leiðsögnin fer fram á íslensku.
Hjónin Hrannar og Halla hafa búið í Danmörku í 9 ár og þekkja borgina vel.
Nýhöfn Margir Íslendingar hafa lagt leið sína til Kaupmannahafnar í sumar og heimsótt Nýhöfn.
Hjólafólk Kaupmannahöfn er sannkölluð hjólaborg.
Kaupmannahöfn Ásta Stefáns-
dóttir gengur um með leiðsögn.
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com