Morgunblaðið - 23.07.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018
Nýr stór
humar
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
Hvíthjálmarnir hólpnir
422 meðlimum sýrlenskrar sjálfboðahjálparsveitar forðað til Jórdaníu
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Ísraelskir hermenn hafa bjargað um
422 meðlimum sýrlensku sjálfboða-
hjálparsveitarinnar Hvíthjálmanna
og komið þeim yfir landamærin frá
Gólanhæðum til Jórdaníu. Frá þessu
var greint á fréttavefjum The Gu-
ardian, Reuters og BBC.
Að sögn Jeremy Hunt, utanríkis-
ráðherra Bretlands, fór aðgerð Ísr-
aela fram að beiðni ríkisstjórna
Bretlands, Frakklands og Kanada.
Ríkisstjórn Jórdaníu hafði neitað að
hleypa flóttamönnum inn í landið
með þeim röksemdum að flótta-
mannabúðir landsins væru yfirfullar
en féllst á að gera undantekningu
eftir að Bretar, Þjóðverjar og Kan-
adamenn skuldbundu sig til að veita
Hvíthjálmunum hæli innan þriggja
mánaða tímamarka.
„Hinir hugrökkustu
af þeim hugrökku“
Hvíthjálmarnir eru sjálfboðasam-
tök sem vinna að því að bjarga al-
mennum borgurum á stríðshrjáðum
svæðum í Sýrlandi eftir loftárásir.
Samtökin segjast hafa bjargað lífi
um 100.000 manns í borgarastyrjöld-
inni sem stendur yfir. Ríkisstjórn
Bashars al-Assad Sýrlandsforseta
og bandamenn hennar hafa sakað
samtökin um að vinna með uppreisn-
armönnum og jihadistum en á al-
þjóðavísu hefur starfi þeirra verið
hrósað í hástert og voru Hvíthjálm-
arnir meðal annars tilnefndir til frið-
arverðlauna Nóbels árið 2016.
Í yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni
kallaði Hunt Hvíthjálmana þá „hug-
rökkustu af þeim hugrökku“ og
sagði björgun þeirra vera „einn von-
argeisla“ í erfiðum aðstæðum. Í við-
tali við þýska vikublaðið Bild sagði
Heiko Maas, utanríkisráðherra
Þýskalands, að 50 Hvíthjálmanna
myndu hljóta hæli í Berlín.
Talsmaður innanríkisráðherrans
nefndi í þessu samhengi aðeins að
átta Hvíthjálmar og fjölskyldur
þeirra myndu fá hæli.
Að sögn ísraelska ráðherrans
Tzachi Hanegbi ákváðu Ísraelar að
hjálpa til við að bjarga Hvíthjálm-
unum þar sem „augljóst [væri] að
stjórn Assads væri á ný að ná tökum
í öllu Sýrlandi“.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Rannsóknardómstóll hefur verið
settur á fót í Frakklandi til þess að
rannsaka Benalla-hneykslið svokall-
aða. Frá þessu er sagt á fréttasíðum
Le Monde, Huffington Post og AFP.
Benalla-málið snýr að öryggis-
stjóranum Alexandre Benalla, sem
beitti mótmælanda grófu ofbeldi á
mótmælum sem brutust út 1. maí
síðastliðinn. Benalla var rekinn úr
starfi á föstudaginn eftir að mynd-
band var birt af honum í lögreglu-
búningi að slá mótmælandann í aug-
sýn lögreglumanna. Benalla er ekki
lögreglumaður og átti aðeins að
fylgjast með aðgerðum lögreglunnar
á mótmælunum. Er hann því sakað-
ur um að villa á sér heimildir auk
ákæru fyrir ofbeldið.
Krefjast afsagnar Collombs
Formleg dómsrannsókn hófst í
gærkvöldi á fimm mönnum sem
tengjast málinu, þeim Alexandre Be-
nalla, Vincent Crase (starfsmanni
La République en marche, stjórn-
málaflokks Emmanuels Macron
Frakklandsforseta) og þremur lög-
reglumönnum sem eru grunaðir um
að hafa sent Benalla myndband úr
eftirlitsmyndavél sem tók upp atvik-
ið 1. maí.
Benalla-málið virðist ætla að
verða stærsta hneykslismál í for-
setatíð Emmanuels Macron til
þessa. Meðlimir ríkisstjórnarinnar
hafa verið sakaðir um að hylma yfir
með Benalla áður en myndbandið af
honum var birt. Gérard Collomb
innanríkisráðherra mun sæta 10
klst. yfirheyrslu vegna málsins í dag
og stjórnarandstæðingar bæði til
hægri og vinstri hafa krafist þess að
hann segi af sér ef í ljós kemur að
hann vissi um málið en gerði ekkert.
Skæðasta hneyksl-
ismál Macrons
Formleg dómsrannsókn hafin
AFP
Brot Alexandre Benalla ræðst að
mótmælanda 1. maí 2018.
Meðlimir afganskrar öryggissveitar sjást hér liggjandi særðir á jörðinni eftir sjálfsmorðsárás sem gerð var við
innganginn að alþjóðaflugvellinum í Kabúl í gær. Frá árásinni er sagt á fréttavef AFP. Í sprengingunni létust 14
manns og um 60 særðust. Fjöldi fólks var samankominn fyrir utan flugvöllinn til að taka á móti Abdul Rashid Dost-
um, varaforseta Afganistans, sem hafði verið í útlegð í Tyrklandi. Íslamska ríkið lýsti yfir ábyrgð á árásinni.
Fjórtán látnir og um 60 særðir
AFP
Sjálfsmorðsárás við alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í Afganistan
Bandaríski
hjartalæknirinn
dr. Mark Haus-
knecht var myrt-
ur á reiðhjóli
sínu í fyrradag.
Frá þessu er sagt
á fréttavef CNN.
Hausknecht
hafði áður hlúð
að fyrrverandi
forsetanum George H. W. Bush.
Annar hjólreiðamaður skaut Haus-
knecht til bana er þeir mættust á
stíg í Houston, Texas. Í orðsend-
ingu vottaði Bush fjölskyldu Haus-
knecht samúð sína og sagðist
hryggur yfir andláti hans.
BANDARÍKIN
Læknir Bush myrtur
Mark Hausknecht
Ekkert lát hefur
verið á skógar-
eldunum sem nú
geisa í Svíþjóð.
Frá þessu er sagt
á SVT, sænska
ríkismiðlinum.
Slökkviliðsstjór-
inn, Johan Szym-
anski, hefur
ákveðið að
kveikja mótelda
til að hefta útbreiðslu skógareld-
anna áður en hitinn nær til Dalarna
í næstu viku. Móteldarnir munu af-
marka 800 hektara svæði og er því
um að ræða stærstu móteldaaðgerð
í nútímasögu Svíþjóðar.
SVÍÞJÓÐ
Undirbúa móteld
Sviðinn skógur í
Ljusdal í Svíþjóð.
Ellefu leigubílstjórar voru drepnir í
umsátri á leið til Jóhannesarborgar
í Suður-Afríku á laugardagskvöld.
Frá þessu er sagt á fréttavef BBC.
Jafnframt eru fjórir særðir og
liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi.
Skotið var á sendiferðabíl þeirra
er þeir voru á heimleið úr jarðarför
samstarfsmanns í strandhéraðinu
Kwa-Zulu Natal. Gengjastríð milli
leigubílstjóra hafa verið algeng í
Suður-Afríku frá níunda áratugn-
um. Rannsókn á málinu stendur yf-
ir. Árásin kom í kjölfar morðs á
leigubílstjóra í Jóhannesarborg
sem framið var á föstudaginn.
SUÐUR-AFRÍKA
Árás á leigubílstjóra
Verið er að deila
um nýja stjórnar-
skrá á ríkisþingi
Kúbu. Frá þessu
er sagt á fréttavef
The Guardian.
Þykir uppkastið
að henni merki-
legt, ekki síst
vegna þess að í
henni er samkyn-
hneigðum Kúbverjum í fyrsta sinn
leyft með lögum að ganga í hjóna-
band. Í nýju stjórnarskránni er
hjónaband skilgreint sem samband
tveggja einstaklinga án tillits til kyns.
Meðal annarra breytinga í stjórn-
arskránni er viðurkenning á eignar-
rétti einstaklinga. Jafnframt hefur
setning verið fjarlægð þar sem tekið
var fram að markmið ríkisins væri að
skapa kommúnískt samfélag.
Stjórnlagaráð Kúbu á eftir að kjósa
um stjórnarskrána. Hún verður síðan
lögð fyrir þjóðina í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Kúbverjar
ræða nýja
stjórnarskrá
Hjónabönd
samkynhneigðra
lögleidd í uppkasti
M. Díaz-Canel
forseti Kúbu