Morgunblaðið - 23.07.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 23.07.2018, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekki sér ennfyrir end-ann á vandræðum Evr- ópusambandsins í flóttamanna- málum þar sem aðildarríkin keppast við að benda hvert á annað og samstöðu skortir. Þannig var í síðasta mánuði haldinn sérstakur leiðtoga- fundur um þessi mál sem end- aði með því að samþykkt var útvötnuð málamiðlun sem byggðist þó helst á tillögum Ítala um að aðildarríkin kæmu sér upp sérstökum móttökustöðvum fyrir flótta- menn. Með þeim stöðvum átti að vera auðveldara að tryggja að þeir sem fengju hæli innan sambandsins yrðu ekki allir fastir í fyrsta ríkinu þar sem þeir hefðu viðkomu sem er Ítalía í langflestum tilfellum. Ekki var þó skylda að reisa slíkar stöðvar og var blekið vart þurrt á samkomulaginu þegar bæði Frakkar og Aust- urríkismenn höfðu lýst því yf- ir að þeir myndu ekki taka þátt. Á móti vildi Evrópusam- bandið að Ítalir myndu sam- þykkja að taka aftur á móti fólki, sem bjargað hefði verið úr lífsháska á miðju Miðjarð- arhafi, en ný ríkisstjórn landsins hafði þá ákveðið að loka höfnum sínum fyrir skip- um sem hafa flóttamenn inn- anborðs. Á föstudaginn kváðu ítölsk stjórnvöld hins vegar upp úr um að þeir myndu ekki hvika frá núverandi stefnu, þar sem önnur aðildarríki sambandsins hefðu verið treg til þess að axla byrðarnar með Ítölum. Svo illa vildi til að sama dag ákvað Fayez al-Sarraj, forsætisráðherra Líbíu, að hafna hinni tillögunni sem kom út úr júnífundinum erf- iða: að Evrópusambandið myndi reisa „brottfarar- stöðvar“ fyrir flóttamenn í ríkjum Norður-Afríku til þess að gera það auðveldara að stöðva flóttamannastrauminn áður en fólkið legði á hafið. Sagði Sarraj ennfremur að land sitt væri alhliða mótfallið því að Líbía yrði notuð sem geymslustaður fyrir ólöglega innflytjendur sem Evrópu- sambandið vildi ekki fá til sín. Hafnaði Sarraj um leið hug- myndum um að landið myndi taka við peningagreiðslum frá sambandinu í skiptum fyrir að halda flóttamönnunum hjá sér. Önnur ríki Norður-Afríku hafa sömuleiðis hafnað þess- um hugmyndum. Á meðan Evrópusambands- ríkin þrátta bæði innbyrðis og út á við um það hverjum beri skylda til þess að taka á móti flóttamönnunum, bitnar óá- kveðni sambandsins einna helst á fólkinu sem telur sig geta fundið betra líf innan Evrópusambandsins, jafnvel þó að flest aðildarríkjanna séu ófús til þess að taka á móti því. Nú, þegar sú málamiðlun sem lögð var til í júní virðist standa á brauðfótum í besta falli, er spurning hvort aðild- arríkin hafa þrótt til þess að bregðast við áður en í enn meira óefni er komið. Innflytjendastefnu ESB hafnað á Ítalíu og í Líbíu} Enn eitt áfallið Svar fjármála-og efnahags- ráðherra við fyr- irspurn Óla Björns Kárasonar alþing- ismanns um þróun á skattbyrði árin 2009-2017 veldur töluverðum vonbrigðum. Svarið kemur þó því miður ekki á óvart. Á það hefur ítrekað verið bent, meðal annars á þessum vettvangi, að vinstristjórnin sem sat á fyrstu árunum eftir fall bank- anna hækkaði skatta óhóflega og að þær stjórnir sem á eftir hafa komið hafa ekki undið ofan af þeim skattahækkunum. Afleiðingin er sú að með batn- andi efnahag og hækkandi launum landsmanna hefur rík- ið aukið stórkostlega hlutdeild sína í þjóðarkökunni. Óli Björn bendir á í samtali við Morgunblaðið á föstudag að skattbyrði á tekjur ein- staklinga hefur aukist gríðarlega. Þetta verður að sjálfsögðu að leið- rétta og vekur furðu að ekki skuli unnið að því með markvissum hætti að létta aft- ur byrðarnar af launamönnum. Óli Björn bendir líka á að fyrirhugað sé að lækka trygg- ingagjaldið enn frekar, en lækkun á því hefur gengið afar hægt sem er verulega íþyngj- andi fyrir rekstur fyrirtækja í landinu, enda bætist trygg- ingagjaldið við miklar launa- hækkanir og umtalsverðar hækkanir á greiðslum í lífeyr- issjóði. Þessar hækkanir eru vissulega jákvæðar fyrir launamenn og sýna hve hlutur þeirra hefur batnað á liðnum árum, en ríkið á ekki að njóta þeirra með þeim óhóflega hætti sem verið hefur. Nauðsynlegt er orðið að draga úr óhóflegri skatt- heimtu hér á landi} Vaxandi skattbyrði vonbrigði Í apríl í fyrra sendi ég beiðni á tölvu- póstfang þingsins sem hjálpar til við uppsetningu þingmannamála. Ég vildi gera frumvarp þar sem það yrði til nýr dagskrárliður á þingfundum þar sem handahófskennt væri valið úr þjóð- skrá fólk sem gæti flutt ræðu á þingi. Svarið sem ég fékk var að það væri ekki hægt „með vísan til þess að Alþingi er samkvæmt stjórn- arskrá lýðveldisins fulltrúasamkoma þjóð- arinnar þ.e. þar eiga þjóðkjörnir fulltrúar einir sæti sbr. 31. gr. stjórnarskrár „Á Al- þingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri hlutbundinni kosningu til fjögurra ára.“ Slíkt frumvarp fer því í bága við stjórnarskrána og þá hugsun að þjóðin hafi rödd með vali á kjörnum fulltrúum sín- um“. Það var þó vísað í eina undantekningu frá þessari meginreglu í 51. gr. stjórnarskrár, þ.e. „Ráðherrar eiga samkvæmt embættisstöðu sinni sæti á Alþingi, og eiga þeir rétt á því að taka þátt í umræðunum eins oft og þeir vilja, en gæta verða þeir þingskapa. Atkvæðisrétt eiga þeir þó því aðeins að þeir séu jafnframt alþing- ismenn.“ Eftir ítrekun var svarið einfalt: „því miður, það getur enginn tekið til máls á þingfundi úr ræðustóli Alþingis nema kjörnir fulltrúar“. Ég fór því að undirbúa breytingar á stjórnarskrá til þess að þetta gæti orðið að veruleika en svo komu óvænt kosningar og málið endaði neðarlega á forgangslistanum mínum. Þetta mál rifjaðist hins vegar upp um dag- inn þegar utanaðkomandi aðila var boðið að flytja ræðu á þingfundi og nú þegar viðkom- andi aðili hefur haldið þá ræðu, hvort þetta hafi verið þingfundur eða hvort brotið hafi verið gegn stjórnarskránni. Á þessum fundi var önnur umræða um þingsályktunartillögu sem þingmenn greiddu atkvæði um. Það er samkvæmt þingskaparlögum og einungis gilt ef um þingfund er að ræða. Hins vegar var þarna aðili sem á sér engan stað eða und- anþágu í stjórnarskránni að halda ræðu. Virkar stjórnarskráin kannski fyrir danska kjörna fulltrúa? Af því að núverandi stjórn- arskrá Íslands er að undirlagi dönsk sko? Auðvitað gerir hún það ekki. Þetta er hins vegar svo dæmigert fyrir íslensk stjórn- mál og íslensku stjórnarskrána. Það virðist bara vera hægt að taka geðþóttaákvörðun um eitt eða annað og þar við situr. Annað dæmi um þetta eru óskrifuðu regl- urnar um störf þingmanna. Hvað sem því líður, þá hlakka ég til þess að klára þetta frumvarp mitt og sjá hvort það er rétt hjá lögfræðingunum að stjórnarskráin banni þetta eða hvort þetta er rétt hjá þingforseta að utanaðkomandi geti haldið ræðu á þingi. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Við landnám var talað umað Ísland hefði veriðskógi vaxið milli fjalls ogfjöru. Ekki fylgdi sögunni að hér væri í sama mund hægt að finna gull og græna skóga. Í dag eru nokkrir aðilar hins vegar full- vissir um að gull sé að finna í iðrum jarðar á Íslandi, meðal annars við túnfót höfuðborgarsvæðisins. Félagið Melmi hefur fengið framlengt leyfi Orkustofnunar til ársins 2023 vegna leitar og rann- sókna á svæði 14, sem kallast Esju- svæði, en þar innan er Þormóðs- dalur við Hafravatn. Mosfellsbær hefur hins vegar ekki veitt leyfi til rannsóknaborana í dalnum. Lengi hefur verið talið að gull sé að finna í Þormóðsdal en Einar Benediktsson stóð þar fyrir greftri árið 1905, án árangurs. Melmi fékk árið 2004 leyfi stjórnvalda til rannsókna og leitar að eðalmálmum á 14 svæðum á landinu. Árið 2010 felldi iðn- aðarráðuneytið niður leyfi Melmis á fimm svæðum. Nokkrum árum síðar óskaði Melmi eftir fram- lengdu leyfi fyrir hinum svæðunum níu. Fyrr í sumar var beiðni um átta svæði hafnað af Orkustofnun þar sem leitar- og fjármögnunar- áætlanir fyrir þau svæði lágu ekki fyrir. Hins vegar samþykkti Orku- stofnun að framlengja leyfi fyrir svæði 14, eins og áður segir. For- senda fyrir þeirri samþykkt var samningur Melmis við eigendur Iceland Resources um fjármögnun á leit og rannsóknum á svæðinu. Hefur Melmi sent inn erindi til Reykjavíkurborgar, Kópavogs- bæjar og Mosfellsbæjar þar sem óskað er eftir umsögn vegna áforma félagsins um leit og rann- sóknir á svæði 14. Hafa þær um- sagnir ekki verið afgreiddar. Sterkar vísbendingar Iceland Resources er með tvö gild leyfi Orkustofnunar til gull- leitar hér á landi, annars vegar í Öxnadal, Hörgárdal og víðar á Tröllaskaga og hins vegar í Vopna- firði og við Héraðsflóa. Félagið hef- ur sótt um leyfi fyrir sex aðra staði á landinu (sjá meðf. kort) en þær umsóknir bíða afgreiðslu Orku- stofnunar. Fyrrnefndar tvær leyf- isveitingar voru af landeigendum kærðar til úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála. Með úr- skurðum sínum í síðasta mánuði hafnaði nefndin kröfum landeig- enda um að fella leyfin úr gildi. „Við höfum sterkar vísbend- ingar um að gull sé að finna í Þor- móðsdal og víðar á landinu. Þess vegna viljum við halda rannsóknum áfram,“ segir Vilhjálmur Þór Vil- hjálmsson hjá Iceland Resources, IR. Hann er einn eigenda félagsins sem að langstærstum hluta er í eigu kanadíska félagsins St. Georges Eco-Mining. Hann segir Kanadamenn hafa tröllatrú á því að gull finnist á Ís- landi. Jarðfræðingar munu fara í yfirborðsrannsóknir í Vopnafirði og á Tröllaskaga í næsta mánuði og teknar verða gervihnattamyndir þegar snjóa leysir betur á þessum slóðum. Vilhjálmur Þór segir IR hafa gert samkomulag við Melmi um að framkvæma rannsóknir á svæði 14. Bora þurfi rannsóknarholur í Þor- móðsdal en Mosfellsbær hafi ekki viljað veita framkvæmdaleyfi vegna skipulagsmála sveitarfé- lagsins. „Þetta snýst ekki um að moka allt í tætlur heldur þurfum við að taka litlar rannsóknarholur, sem valda engu raski, til að skilja betur jarðfræðina,“ segir Vilhjálmur Þór. Gefast ekki upp í leit að íslensku gulli Gull er verðmætur málmur og ef tekst að finna það í vinn- anlegu magni hér á landi gæti verið eftir miklu að slægjast. Gullverð á markaði náði hæstu hæðum fyrir um tveimur árum en hefur eitthvað gengið til baka. Únsa af gulli selst í dag á um 1.230 dollara, eða um 130 þúsund krónur. Kílóið af gulli selst á um 40 þúsund dollara í dag, eða 4,2 milljónir króna. Á vísindavef Háskóla Íslands ritar Sigurður Steinþórsson prófessor grein og leitast við að svara því af hverju gull hafi ekki fundist í jörðu á Íslandi og hvort landið sé of ungt. Auð- unnar gullnámur séu nær upp- urnar og námufélög verði að leita fanga í æ rýrara málm- grýti. Í niðurlagi greinarinnar segir: „Það er frekar staða Íslands á miðhafshrygg en ungur aldur þess sem gerir landið fremur óvænlegt til gull- graftar.“ Gull í greipar Melmis? VERÐMÆTUR MÁLMUR Heimild: Orkustofnun/Iceland Resources Leyfi fyrir gullleit á Íslandi Arnarfjörður Þormóðsdalur Hveragerði Þingmúli Reykjanes Hörgárdalur/Öxnadalur Vopnafjörður/Héraðsflói Sælingsdalur Stóra-Laxá Leyfi Melmis ekki framlengd eða felld úr gildi. Umsóknir Iceland Resources bíða afgreiðslu. Framlengt leyfi til Melmis. Gild leyfi Iceland Resources. Ræða á þingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.