Morgunblaðið - 23.07.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.07.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 2018 21 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Ganga um nágrennið kl. 11, félagsvist með vinningum kl. 13. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Félagsvist kl. 13.00. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar. Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30- 15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11 og Sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13. Vitatorg sími: 411-9450 Gjábakki kl. 9.00 handavinna, kl. 13.00 Canasta. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, frjáls spilamennska kl. 13, stólaleikfimi og slökun kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl.9-16, ganga kl.10, handavinnu- hornið kl.13, félagsvist kl.13.15, síðdegiskaffi kl. 14:30, allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í síma 411-2790 Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11 gönguhópurinn kl.14, bíó á 2.hæð kl.15.30.Uppl í s.4112760. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl: 10:30, leikfimi í salnum Skólabraut kl. 13:30, ganga frá Skólabraut kl:14:30, vatnsleikfimi Sundlaug Seltjarnarness kl. 18:30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin, hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Olíuskiljur - fituskiljur - einagrunarplast CE vottaðar vörur. Efni til fráveitulagna. Vatnsgeymar 100-50.000 lítra. Borgarplast.is, sími 5612211, Mosfellsbæ. Ýmislegt Glæsilegar eignarlóðir til sölu í Fjallalandi við Leirubakka. Kjarri og skógi vaxið land. Útsýni með því fallegasta sem gerist. Mikil veður- sæld. Aðeins 100 km frá Reykjavík og 60 km frá Selfossi. Uppl í s 8935046. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Jónas GrétarSigurðsson fæddist á Eskifirði 9. september 1933. Hann lést á öldr- unardeild Vífils- staða 7. júlí sl. Foreldrar hans voru Sigurður Jón- asson f. 1909 og Ingigerður Frið- rika Benediks- dóttir f. 1911. Þau bjuggu að Árbakka á Eskifirði. Jónas var elstur sex systkina. Systkini hans eftir aldursröð eru Borgrún Alda f. 1935, d. 2012, Hólmfríður María f. 1937, Kristbjörg f. 1941, Bene- dikt f. 1944 og Sigurgeir Þór f. 1946. Jónas ólst upp á Eskifirði og gekk þar í barnaskóla og gagn- fræðaskóla. Um tvítugt flutti hafði einnig gaman af tónlist og spilaði á harmóníku. Börn Jónasar og Gróu eru 1) Magnús fæddur 7. apríl 1957, fyrrverandi eiginkona Ingi- björg Elísabet Jakobsdóttir. Börn þeirra eru: Hörður Hólm f. 1982, Sædís Hólm f. 1983, Sverrir Grétar Hólm f. 1988, fyrrverandi sambýliskona er Kristín Gunnarsdóttir, barn þeirra er Heiðrún Sif f. 1996. 2) Sigurður f. 22. apríl 1962. Eig- inkona hans er Hlíf Garð- arsdóttir og börn þeirra eru: Jónas Grétar f. 1990 og Krist- inn Arnar f. 1995. 3) Ragnheið- ur f. 4. apríl 1963. Fyrrverandi sambýlismaður er Gísli Gunn- arsson og börn þeirra eru: Heiða Ósk og Helen Ósk f. 1985 og Gunnar f. 1993. Núverandi eiginmaður hennar er Sig- urður Þorsteinsson. 4) Ingi- gerður f. 30. ágúst 1965. Eigin- maður hennar er Róbert Róbertsson og barn þeirra er Vigfús Hreiðar f. 2002. Útför Jónasar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 23. júlí, klukkan 13. Jónas til Reykja- víkur og fór að læra trésmíði. Í Reykjavík kynntist hann konu sinni Gróu Magn- úsdóttur og giftust þau 12. janúar 1957. Þau bjuggu fyrstu árin á Ljós- vallagötu 24 en fluttu síðar í Kópa- voginn í Hlégerði 19. Jónas byggði einbýlishús að Ásenda 11, Reykjavík og fluttu þau inn í það árið 1968. Jónas starfaði við húsasmíðar hjá ýmsum meisturum, m.a. var hann einn af þeim sem byggðu Bændahöllina svokölluðu eða Hótel Sögu. Hann starfaði að- allega sjálfstætt við húsasmíð- ar á seinni árum. Jónas hafði áhuga á sögu og var víðlesinn, Jæja, stóri bróðir, þá ertu far- inn. Þú sem varst í okkar augum alltaf svo stór og sterkur. Okkur langar til að tæpa á nokkrum minningabrotum. Þegar við vorum smápollar, löbbuðum við með þér inn í bæ og þú leiddir okkur. Við litum upp til þín og þú varst sannur stóri bróð- ir. Þú fórst ungur að snudda í kringum trillukarlana, beita og fórst oft með þeim á sjóinn. Þú varst til að mynda kornungur há- seti á Seleynni hjá Jóni Jónssyni. Seinna fórstu á stærri báta, svo sem Víði, Svöluna og Goða- borgina, sem okkur þótti þeir flottustu. Svo keyptir þú jeppann, Willys U-150 með blæjunni, sem þú smíðaðir síðan þetta fína hús á. Margar ferðirnar fórum við með þér og fannst okkur þær miklar svaðilfarir og hlökkuðum alltaf til næstu ferðar. Okkur fannst hann vera flott- asti og drifmesti bíll á Austur- landi. Ungur fórstu suður að læra húsasmíði. En komst oft austur á sumrin og varst þá alltaf að end- urbæta og laga hús. Þá byggðir þú nokkur hús og ekki má gleyma því þegar þú steyptir utan á útstafninn á Ár- bakka. Við vorum að snúast í kringum þig og héldum að við værum að hjálpa til. En við vorum oftar en ekki fyrir og þá hvessti stundum í bróður. Í Reykjavík kynntist þú in- dælli, frábærri og hjartahlýrri konu, henni Gróu Magnúsdóttur, sem varð þinn lífsförunautur. Gróa kom alltaf með þér aust- ur á sumrin og var alltaf létt í kringum hana. Eftir að þú stofnaðir heimili fyrir sunnan og fjölskyldan stækkaði, fækkaði ferðunum austur. En við fylgdumst náið með fjölskyldunni og bílunum þínum. Eftir að Willysinn rann sitt skeið sótti að öllum mikill leiði. Þá kom Peugeout-tímabilið og síðan amerísku kaggarnir, sem okkur þótti mikið til koma. Þá varstu ógleymanlegur. Uppá- klæddur með hattinn á sunnu- dagsrúntunum. Við þökkum fyrir allt sem þú kenndir okkur og leiðbeindir okk- ur með. Takk fyrir samveruna. Nú dagur á enda er og lífið gjöfult verið þér. Frá okkur þakkir fylgi þér. Hvíl í friði ófarinn veg. Við vottum Gróu og aðstand- endum innilega samúð. Bræðurnir, Benedikt Sigurðsson og Sigurgeir Þór Sigurðsson. Það sækja margar mætar minningaperlur að huga, þegar mér berst sú harmafregn að Jón- as náfrændi minn kær og vinur vænn sé horfinn yfir móðuna miklu. Fregnin kom þó ekki á óvart, en sár er hún samt. Samt finnst mér svo stutt síðan við áttum tal saman og hann lét hið besta af sér, en karlmenni sem hann var þá var hann ekki kvartsár. Hugur reikar allt til berns- kuára. Það var sannkölluð hátíð heima í Seljateigi þegar Inga frænka, sú höfðingskona, var í heimsókn hjá systur sinni með börn sín og Jónas þar elstur og heldur betur ljómandi leikbróðir, átti þessa ágætu frásagnargleði og sagði svo vel frá ýmsu úr fjör- unni að það var líkt og maður fengi sjávarilminn í fang. Svo var Jónas þá þegar snillingur í hönd- unum og smíðaði báta og fleira fallegt sem við lékum okkur með. Hann var kátur, hraustur vel og sögur hans kryddaðar glettni. Það voru góðir dagar og í minn- ingunni alltaf sól og suðvestan- þeyr. Þegar þau fóru aftur heim á Eskifjörð fannst mér sem sól- skinið hefði ei lengur sama ljóma, svo kær var návist þeirra og sér- staklega samvistirnar við Jónas. Jónas var svo hjá Gísla frænda eitt síðsumar og haust og þá fékk hann vinnu í sláturhúsinu heima og vann þar 15 ára fullkomið karl- mannsverk, vísaði þannig á veg fram vöskum dreng, alltaf jafnvel verki farinn og harðduglegur. Við höfum oft rifjað upp þessa tíð, og ennþá man ég hversu ég öfundaði hann af því hve stelpunum leist vel á hann, enda kom það engum á óvart, einkar huggulegur og myndarlegur, hress í máli og óvíl- inn, sterkur og lét sig hvergi fyrir þeim sem eldri voru. Smiðsaugað glögga færði Jón- as til smíða, en margt hefði svo handlögnum og vel gefnum manni hentað, hvort sem var verklegt eða bóklegt, en þetta varð hans ævistarf sem hann innti af hendi af sérlegri verk- lagni og samviskusemi. En lífslán sitt eignaðist hann svo í henni Gróu, henni Gógó hans, prýðiskonu svo ágætra eðl- iskosta sem alltaf umvafði hann í kærleika og umhyggjusemi, henni kynntumst við núna á efri dögum okkar um leið og endur- nýjuð voru kynni við kæran frænda. Nú hefur hún svo mikils misst og ósköp finnst mér skammt síðan þau sátu hér við veisluborð hjá Hönnu, þar sem allra von var að slíkar, kærar samverustundir yrðu svo miklu fleiri. Bjartar eru myndir sem merla í huga þegar hann Jónas er kvaddur. Á sundnámskeiði á Eiðum þegar ég var hinn versti klaufinn og hæðst að af strákum, þá kom Jónas að og sagði: Helgi er frændi minn og meira þurfti ekki. Maður góðra mannkosta og mikilla heilinda er horfinn á braut og hans er víða saknað. Hann Jónas var drengur góður, veitull á gleði og vinmargur. Mikið vildum við Hanna að samfundir hefðu mátt vera fleiri og fagnaðarríkir eins og alltaf áð- ur. Að leiðarlokum er svo margt að þakka frænda og vini og fyrst og síðast sendum við Hanna henni Gróu hjartanlegar samúð- arkveðjur, börnum þeirra og öll- um aðstandendum. Sérstakar kveðjur yljaðar samúð eru send- ar systkinum hans, frændsystk- inum mínum kærum. Far heill á friðarvegi, frændi sæll. Helgi Seljan. Jónas Grétar Sigurðsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað út- förin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.