Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018
Sir Cliff Richard er orðinn 77
ára gamall, fæddur 14. októ-
ber 1940. Hann sló ungur í
gegn sem dægurlagasöngvari
og hefur selt yfir 250 milljónir
platna á löngum ferli. „Áður
en Cliff og The Shadows
komu fram á sjónarsviðið var
ekkert í breskri tónlist þess
virði að hlusta á,“ er haft eft-
ir John Lennon en óumdeilt
er að Richard plægði akurinn
fyrir Bítlana.
Richard bjó lengst
af í Bretlandi en síð-
ustu árin ver hann
tíma sínum mest
í Portúgal og á
Barbados.
Það var tárvotur Sir Cliff Rich-ard sem yfirgaf dómshúsið íLundúnum í vikunni eftir að
breska ríkisútvarpið, BBC, hafði
verið dæmt í undirrétti til að greiða
söngvaranum skaðabætur vegna
umfjöllunar um að lögreglan í Suð-
ur-Jórvíkurskíri hefði framkvæmt
húsleit á heimili hans fyrir fjórum
árum vegna gruns um barnaníð.
Rannsóknin leiddi ekki til ákæru.
„Ég á ekki orð. Ég trúi þessu ekki.
Þetta eru dásamlegar fréttir,“ sagði
Richard þegar dómurinn hafði verið
upp kveðinn. Fyrir utan tók hópur
aðdáenda á móti sínum manni með
gamla slagarann „Congratulations“
á vörum.
Í máli dómarans kom fram að
Richard ætti rétt á einkalífi og að
BBC hefði brotið á þeim rétti án
þess að lagaleg réttlæting væri fyrir
hendi. „Þetta var gert með alvar-
legum hætti og með nokkrum gaura-
gangi. Ég hafna þeim rökum BBC
að það hafi haft rétt til að segja
fréttina í skjóli tjáningarfrelsis og
frelsis fjölmiðla,“ sagði hann við
dómsuppkvaðninguna.
Fékk bætur frá lögreglu
Samkvæmt dómnum þarf BBC að
punga út um 210 þúsund sterlings-
pundum, andvirði þrjátíu milljóna
króna, vegna fréttaflutningsins en
stofnunin er mögulega ekki búin að
bíta úr nálinni með þetta mál enda
gæti Richard í framhaldinu höfðað
annað mál vegna tekjutaps, meðal
annars vegna tónleika sem aldrei
urðu og bókasamnings sem var rift.
Lögreglan í Suður-Jórvíkurskíri
hafði áður greitt Richard skaðabæt-
ur að andvirði um 60 milljóna króna,
án aðkomu dómstóla.
Lögmaður Richards, Gideon
Benaim, fagnaði niðurstöðunni að
vonum en hann hefur verið mjög
harðorður í garð BBC og sagt að
söngvarinn hafi aldrei búist við því,
eftir sex áratugi í sviðsljósinu, að
einkalíf hans og mannorð yrði dregið
niður í svaðið með þessum hætti.
Undarlegt hafi verið að fylgjast með
BBC verja og réttlæta fréttina og
hanga á „skúbbinu“ sínu.
Ígildi nýrrar löggjafar
Dómurinn gæti haft mikil áhrif á
umfjöllun breskra fjölmiðla um lög-
reglurannsóknir í framtíðinni en
bæði ritstjórar og lögmenn dagblaða
í Bretlandi voru sammála um það í
vikunni að hann væri ígildi nýrrar
löggjafar. BBC, sem ætlar að áfrýja
dómnum, varaði við því í framhald-
inu að hann kæmi til með að binda
hendur fjölmiðla, þegar kemur að
því að nafngreina fólk sem liggur
undir grun eða sætir rannsókn í
sakamálum.
Dómarinn snupraði BBC meðal
annars fyrir að birta fréttina án við-
bragða frá Richard sjálfum í þeim
tilgangi að vera á undan keppinaut-
um sínum. Yfirdrifið hefði einnig
verið að leigja þyrlu til að fljúga yfir
heimili söngvarans og ekki í neinum
takti við aðgerðirnar sem voru í
gangi. Að mati dómarans fólst
stærsta brotið þó í því að nafngreina
Richard og upplýsa almenning um
að hann væri sá sem sætti rannsókn.
Eftir að dómurinn gekk spurði
íhaldsþingkonan Anna Soubry, sem í
eina tíð var blaðamaður, Theresu
May forsætisráðherra í neðri deild
þingsins hvort tímabært væri fyrir
stjórnvöld að setja lög, svokölluð
Cliff-lög, sem hreinlega bönnuðu
fjölmiðlum að birta nöfn grunaðra
brotamanna þangað til ákæra væri
komin fram. Í svari May kom fram
að það væri snúið mál þar sem nafn-
greining gæti hvatt fleiri vitni til að
gefa sig fram.
Fran Unsworth,
fréttastjóri BBC, bað
Richard afsökunar eftir
að dómurinn gekk og við-
urkennir að stofnunin
hefði mátt haga sér öðru-
vísi í einstökum þáttum
málsins. „Við hörmum þján-
ingarnar sem Sir Cliff hefur
mátt líða. Við skiljum að
þetta mál hefur haft djúp-
stæð áhrif á hann. Dómarinn hefur
komist að þeirri niðurstöðu að ólög-
legt var að nafngreina Sir Cliff. Það
hefði ekki breytt niðurstöðu hans
þótt við hefðum ekki notað þyrlu og
slegið fréttinni upp með svona afger-
andi hætti. Gildir þá einu að við fór-
um með rétt mál,“ sagði hún og á þar
við að söngvarinn hafi sannarlega
sætt rannsókn enda þótt grunurinn
hafi ekki verið á rökum reistur.
Varar við afleiðingunum
Hafandi sagt það varaði Unsworth
við afleiðingum dómsins. „Það er
okkar skoðun að þetta samrýmist
ekki almennu tjáningarfrelsi og
frelsi fjölmiðla, sem þessi þjóð hefur
haft að leiðarljósi gegnum tíðina. Af
þeim sökum er mikið prinsipp hér í
húfi.“
Tony Gallagher, ritstjóri The Sun,
tók í svipaðan streng. „Ekki verður
greint frá handtökum. Grunaðir
munu njóta vafans. Lögreglurann-
sóknir verða hindraðar. Þetta er sig-
ur fyrir (meinta) glæpamenn og fjár-
gráðuga lögmenn. Hræðilegt fyrir
fjölmiðla.“
Clifftir út
Dómur í máli sem Cliff Richard höfðaði á hendur
BBC fyrir að ryðjast inn í einkalíf sitt gæti haft af-
drifaríkar afleiðingar fyrir fjölmiðla. Framvegis
verður ekki auðvelt að nafngreina fólk sem liggur
undir grun eða sætir rannsóknum hjá lögreglu.
Forveri
Bítlanna
Cliff Richard á
tónleikum í Laug-
ardalshöll 2007.
AFP
Ímynd Sir Cliff Richard laskaðist vegna rannsóknar lögreglu og umfjöllunar BBC. Ekki reyndist fótur fyrir ásökununum.
’
Það er okkar skoðun að þetta samrýmist ekki
almennu tjáningarfrelsi og frelsi fjölmiðla, sem
þessi þjóð hefur haft að leiðarljósi gegnum tíðina.
Fran Unsworth, fréttastjóri BBC
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
INDLAND
BOLLYWOOD Leikkonan Rajshri Deshpande er
með óbragð í munninum eftir að hún komst að því
að ástaratriði úr Netfl ix-seríunni Sacred Games
hefur verið dreift í netheimum sem klámi og hún
kölluð klámstjarna á samfélagsmiðlum. Hún hvetur
fólk til að hugsa sig tvisvar um áður en það dreifi r
myndefni án samhengis.
ÍTALÍA
FENEYJAR Tilkynnt hefur verið
að tunglmyndin First Man muni
opna Feyneyjahátíðina síðar á árinu.
Myndin fjallar um lendingu Apollo
11 á tunglinu fyrir réttum 49 árum
og fer hjartaknúsarinn Ryan Gosling
með hlutverk Neils Armstrongs,
sem steig fyrstur manna á tunglið.
Leikstjóri er Damien Chazelle sem einnig leikstýrði Gosling í La La Land.
BANDARÍKIN
MENLO PARK Mark
Zuckerberg, stofnandi
Facebook, varði í vikunni
rétt notenda samfélagsmið-
ilsins til að afneita helförinni
á þeim forsendum að þeir
væru ekki viljandi að fara
með rangt mál. Í nafni tján-
ingarfrelsisins hefur Zucker-
berg ekki heldur amast við
veru öfgasamtaka, eins og
Infowars, á Facebook; slíkar
síður verði aldrei ritskoð-
aðar enda þótt ekki verði
ýtt undir dreifi ngu.
SPÁNN
MADRÍD Stjórnvöld íhuga nú að setja
ný lög sem eiga að vera til þess fallin
að eyða vafa í nauðgunarmálum. Kjarni
laganna yrði „já þýðir já” og allt annað,
þar með talin þögn, þýðir nei. Kynmök
án ótvíræðs samþykkis yrðu fyrir vikið
skilgreind sem nauðgun. Kornið sem
fyllti mælinn var þegar fi mm menn voru
sakaðir um að hafa nauðgað 18 ára stúlku á Pamplona-hátíðinni.