Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018 Þ að er nokkurt afrek að láta ald- arafmæli fullveldis þjóðar líða hjá án þess að nokkrum þyki mikið til koma. Meira að segja þingfundur á helgistaðnum hefði horfið með öllu ef sprell nokkurra þingmanna hefði ekki komið til. Sprellið virðist að vísu hafa verið reist á misskilningi. Allt er orðið breytt Það hafði farið fram hjá íslenskum þingmönnum að frændur okkar Danir voru nú fyrir allnokkru byrj- aðir að átta sig á því að umburðarlyndi gagnvart þeim sem launa það illa er vond fjárfesting, sér- staklega í þágu þjóðar sem hafði treyst þeim fyrir hagsmunum sínum. Það er alllangt síðan flokkar sem kallaðir voru öfga-hægriflokkar af ríkisreknum fánaberum ís- lensks hlutleysis, stóðu einir fyrir kröfum um stefnu- breytingu í innflytjendamálum. Sjálft góða fólkið í réttu flokkunum erlendis er nú í forystu fyrir því að nálgast sjónarmið sem áður voru fordæmd. Íslenskir stjórnmálaflokkar fylgjast illa með þróun annars staðar og láta flokka sem síst skyldi ráða ferðinni. Meira að segja Merkel í Þýskalandi er tekin að feta sig, án þess þó að viðurkenna það, í átt að bann- færðum sjónarmiðum AfD í innflytjendamálum. En það kemur ekki til af góðu. Hún þarf að bjarga póli- tísku lífi sínu og samstarfinu við systurflokkinn í Bæjaralandi. Fullveldi – lýðveldi – stjórnarskrá Jafnvel mótmælendur, sem fá jafnan athygli fjöl- miðla langt umfram öll efni, höfðu gleymt að haka við þennan fund á Þingvöllum í dagbókina og ruku því fáliðaðir til og náðu því ekki að gera sér fulla grein fyrir því hverju þeir voru að mótmæla. Þeir létu það þó ekki spilla jólagleði sinni frekar en fyrri daginn og settu því hávaðaflautuna í gang, því hún spyr ekki um tilefni. Hún, rétt eins og „bleika sósan“ í ungdæmi þeirra gömlu, gengur með öllu. Sagt er að vel hafi farið á því að halda fund á Þing- völlum í tilefni fullveldisins, án þess að gera ráð fyrir almenningi. Það er nýlunda að vísu en látum það vera. Lýðveldisstofnunin á Þingvöllum var ekki endilega mikilvægasti stjórnskipulegi þáttur sjálf- stæðisbaráttunnar. En hún var endapunkturinn og hún var um leið staðfesting á nýrri stjórnarskrá sem nær allir atkvæðisbærir Íslendingar samþykktu. Þá sömu stjórnarskrá tóku menn að tilefnislausu að andskotast út í. Lengst gekk það þegar spað- urbassar héldu að þeir hefðu unnið í lottóinu í heims- kreppu og þeim þótti snjallt að láta íslensku stjórn- arskrána spila stóra rullu í ruglingslegri umræðunni um „hrunið“. Það var dálítið langt seilst. En það var gjarnan langt seilst um þær mundir enda prakkarar sem kunnu sér ekki læti látnir einoka hljóðnemann um hríð með bakstuðningi furðulegustu ríkisstofn- unar landsins. Ríkisstjórnir á sjálfstýringu Hrunstjórn þeirra Jóhönnu og Steingríms sat í tvö ár eftir að hún missti meirihluta sinn, tilgang sinn og tilverurétt. En síðan hafa þrjár stjórnir sest að kötl- unum þar sem kjötið var í gamla daga. Það vakti óneitanlega athygli, svo ekki sé sagt vonbrigði, þeg- ar í ljós kom að ríkisstjórnin sem tók við síðla árs í fyrra hafði það með í sínum næfurþunna sáttmála að áfram skyldi halda þessari skrítnu aðför að stjórn- arskránni. Það var eins og enginn hefði sagt þeim að Hörður Torfason, Þorvaldur Gylfason með hattinn, Illugi Jökulsson og aðrir tindátar sömu gerðar væru ekki lengur með stjórnarmyndunarumboð í landinu. Þeir höfðu vissulega fengið það frá Ríkisútvarpinu forð- um en nú hafa flestir áttað sig á því að það er ekki lengur gilt og var það aldrei. Það var enginn rökstuðningur fyrir því í þessum síðasta stjórnarsáttmála hvers vegna enn skyldi ráð- ist á stjórnarskrána svo eini kosturinn er að líta á þetta sem kæk. Það er viðurkennt að kækjum stjórna menn vart en svo vill til að auðvelt er að ná tökum á þessum. Hvorugur samfylkingarflokkanna situr í núver- andi stjórn og þeir eru einir um að ganga fyrir þessu hatri á íslensku stjórnarskránni. Endurkjörnir? En svo vill til að ríkisstjórnin hefur einmitt dregið þessa flokka að borðinu þar sem pukrast er með árásina á stjórnarskrána og reynt er um leið að leið- rétta þau mistök sem stjórnarsinnar virðast telja að kjósendur hafi gert í síðustu kosningum gagnvart samfylkingarflokkunum. Við þetta borð er leitað leiða til þess að gera megi þeim sem er fátt um full- veldið mögulegt að komast með hraði inn í ESB ef óvænt tækifæri kæmi upp. Það er svo sem ekki lík- legt í núverandi stöðu en viljinn er hinn sami og und- irmálin eru hin sömu. Áherslur Það er þekkt að við stór tækifæri í sögu þjóðar þykir fara vel á að slá í ákvörðun sem lengi verði í minnum höfð. Auðvitað þrýsta menn á um að áhugamál þeirra sjálfra fái forgang af svo góðu tilefni. Það fer ekki illa á því að veita Hinu íslenska bókmennta- félagi stuðning við myndarlega útgáfu bókar um myndlist sem tengist Þingvöllum. Það er prýðilegt að endurnýja á hafrannsóknaskip sem komið er á tíma og hafa undir þessum hatti. En veglegasta gjöf- in hefði verið sú að flokkar með fulla einurð gagn- vart fullveldinu hefðu samþykkt með miklum meiri- hluta að falla frá ógeðfelldu fálmi við Lýðveldis- stjórnarskrána og talað máli fullveldisins og gegn þeim öflum sem vilja farga því eða meiða. Þau sjón- armið að þarna hafi eingöngu mátt hreyfa málum sem eining væri um, færa andstæðingum fullveldis neitunarvald á þessum degi. Og í ljósi þess sem gerð- ist heldur það ekki. Heill þingflokkur mætti ekki til fundarins, sem er einstæður atburður og breytir ekki neinu þótt þingflokkurinn hafi ekki verið með á nótunum. Og þingmaður, sem ríkisstjórnin hóf í for- mennsku fyrir mikilvægri nefnd, fór svo með rassa- köstum um þinghelgina, öllum til ama. Hátíðarbyggingar Það hefur ekki endilega gefist vel að tengja stór- framkvæmdir við hátíðarhöld tengd sögulegum tímamótum. Þjóðminjasafn var tengt stofnun lýð- veldisins en hafði lengi verið á hrakhólum. Þar var bærilega að staðið en þó óneitanlega af nokkrum Nú er allt komið í annað veldi. Heimsveldið, full- veldið og feðraveldið ’Það vakti óneitanlega athygli, svo ekki sésagt vonbrigði, þegar í ljós kom að ríkis-stjórnin sem tók við síðla árs í fyrra hafði þaðmeð í sínum næfurþunna sáttmála að áfram skyldi halda þessari skrítnu aðför að stjórnarskránni. Reykjavíkurbréf20.07.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.