Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 31
vanefnum. Lengi hafði verið rætt um nauðsyn Þjóð- arbókhlöðu og ekki talið vansalaust fyrir „bókaþjóð- ina“ að skipa þeim þætti svo aumlega. Þegar hillti undir hátíðarhöld vegna ellefu alda byggðar í landinu óx þessi þungi og niðurstaðan varð sú að slíkt hús skyldi rísa af þessu tilefni. Alþingi gerði um það samþykkt árið 1970. Árið 1974 kom og fór. Holur voru grafnar og stundum var slegið í merina. En þó var það svo að 21 ári eftir samþykkt fyrrgreindrar tillögu ákvað ný stjórn, Viðeyj- arstjórnin sem svo var kölluð, að taka málið loks föstum tökum, eins og segir hjá Wikipedia: „Þegar leið á árið 1974 varð ljóst að ekki væru til nægir peningar til að hefja framkvæmdir og þar við það sat næstu ár. Árin 1972 og 1975 hafði ríkissjóður tekið aftur framlag sitt til byggingasjóðs.“ „Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, tók fyrstu skóflustungu að húsinu 28. janúar 1978.“ „1983 var húsið nánast fullsteypt. Það ár komu til landsins sérsmíðaðir álskildir sem klæða það að ut- an.“ „Þótt húsið væri nú nánast fullbyggt var ljóst að töluvert fé vantaði upp á til að ljúka við frágang að innan og utan. Framkvæmdafé var enn skorið niður en 1986 var ákveðið að hluti eignaskatts skyldi renna til byggingarinnar árin 1987-89. Þetta var kallað „þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu“. „Raunin varð hins vegar sú að einungis lítill hluti af eigna- skattsaukanum rann til byggingarinnar. Samt var það stóraukið fjármagn miðað við fyrri ár. Steininn tók svo úr 1989 þegar ríkisstjórnin samþykkti að helmingur framkvæmdafjár næsta árs skyldi koma frá Happdrætti Háskóla Íslands. Háskólinn mót- mælti þessari ráðstöfun á sjálfsaflafé skólans harð- lega.“ En svo segir: „Viðeyjarstjórnin ákvað 1991 að setja stóraukið fjármagn í síðustu áfangana til að verkinu lyki á til- settum tíma sem var áætlað árið 1994. 1991-94 var unnið hörðum höndum að frágangi hússins að innan. 1. desember 1994, á hálfrar aldar afmæli lýðveld- isins, var byggingin loks vígð og Landsbókasafn Ís- lands – Háskólabókasafn tók formlega til starfa.“ Loks segir: „Við opnun safnsins nam heildarbyggingarkostn- aður á þáverandi verðlagi 2,5 milljörðum króna. Yfir helmingur af því fé kom til síðustu fjögur ár bygg- ingartímans. Mikið var rætt um hinn langa bygging- artíma og var Þjóðarbókhlaðan borin saman við Kringluna sem var opnuð 1987 eftir aðeins þriggja ára framkvæmdir. Var þetta tekið sem dæmi um seinagang í opinberum framkvæmdum.“ Gamla sagan mun betri Það var þó ekki alveg sanngjarnt. Gamla Safnahúsið var stærsta og fegursta hús landsins þegar það var byggt. Hornsteinninn var lagður 1906 og húsið var opnað almenningi vorið 1909. Og aldarfjórðungi fyrr hafði verið byggt annað hús, líka mikið og fagurt. Það hús var langstærsta hús bæjarins og byggt á rúmu ári! Gengið var með kistu þeirra Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar frá bryggju og upp í Dóm- kirkju og síðar upp í kirkjugarð. Þurfti marga til að skiptast á um burð og voru 16 skólapiltar meðal ann- arra hópa. Kristján Albertsson segir: „Telja má víst að inspector scholae Hannes Hafstein hafi verið einn af þeim skólapiltum. Á leið í og úr kirkju var gengið hjá grunni þessa mikla húss. Mánuði eftir jarðarför Jóns forseta er hornsteinn lagður að Alþingishúsinu. Hilmar Finsen landshöfðingi leggur silfurskjöld í gróp steinsins sem á var letrað: „Sannleikurinn mun gera yður frjálsa. Jóh. 8-32“ en „síðan laust Pétur biskup steininn með hamri, þrjú högg og mælti: „Í nafni heilagrar þrenningar.“ Margt gerst. Mest gott Allt er þetta myndrænt mjög og ræður þó hver og einn mestu um þá mynd sem hann dregur upp í huga sér. Á þessu einstæða augnabliki ber ein sjálfstæð- ishetja aðra hjá grunni nýs Alþingishúss, sem miklar vonir voru bundnar við. Húsið er hlaðið úr höggnu íslensku grjóti úr Þingholtunum. Þetta var þá mesta hús landsins, stolt fámennrar bláfátækrar þjóðar og það tók ekki nema eitt ár í byggingu og hefur reynst prýðilega. Þetta hús er hluti af íslenskri þjóðarsál. Hvað svo sem mönnum finnst um það sem gerst hefur innan dyra þessi tæpu 140 ár sem eru liðin er borin mikil virðing fyrir því. Það var því mjög mörgum misboðið þegar skríll réðist á húsið fyrir tæpum áratug með grjóti og skít, og átti hlutdeildarmenn innan dyra, svo engu mátti muna. En sú gjörð lifir ekki. Hún á ekki líf skilið. Morgunblaðið/Valli 22.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.