Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið KEBE Hvíldarstólar Tegundir: Rest og Fox Opið virka dag a 11-18 laugardaga 11-15 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Foreldrar 30 nýrra leikskólabarna á Seltjarnarnesi hafa fengið bréf um að ekki sé unnt að dagsetja upphaf aðlögunar barnanna á Leikskóla Seltjarnarness. Ljóst er að þau munu ekki hefja aðlögun fyrr en í fyrsta lagi um næstu mánaðamót vegna manneklu. 50 börn hefja að- lögun á leikskólanum á tilsettum tíma, hinn 7. ágúst. Alls bárust 80 umsóknir um leikskólapláss áður en umsóknarfrestur rann út 31. mars sl., þar af 20 í mars. 10 börn til við- bótar, sem fluttust á Seltjarnarnes í sumar, eru á biðlista eftir plássi á leikskólanum. Samkvæmt upplýsingum frá Sel- tjarnarnesbæ hefur börnum á leik- skólaaldri í bænum fjölgað úr 252 í febrúar á síðast ári í 283 í febrúar á þessu ári. Foreldrar lýst yfir óánægju Óánægju hefur gætt meðal for- eldra barna á leikskólaaldri á Sel- tjarnarnesi vegna upplýsingagjafar bæjarins um upphaf aðlögunar á leikskólanum. Fram kemur í um- ræðu í hópi bæjarbúa á Facebook, að margir þeirra hafi treyst á að börn þeirra hefðu tryggð pláss á leikskólanum í haust eftir að bærinn sendi þeim bréf þar um 6. apríl sl. Sumir þeirra munu hafa sagt upp dagvistunarplássi og munu því þurfa að taka launalaust leyfi frá vinnu. 15. júní fengu foreldrar annað bréf þar sem fram kom að ekki væri unnt að gefa út nákvæma upphafs- dagsetningu á leikskólaaðlögun hvers barns og dagsetningu á fyr- irhuguðum kynningarfundi. Uppgef- in ástæða var að ekki hefði tekist að manna deildir leikskólans. Í fyrradag barst svo nýtt bréf þar sem það sama kom fram, en einnig að bráðabirgðahúsnæði fyrir nýjar deildir leikskólans yrði ekki tilbúið fyrr en um mánaðamótin ágúst/sept- ember. Auglýst eftir fólki síðan í apríl Baldur Pálsson, fræðslustjóri Sel- tjarnarnesbæjar, segir að börnum hafi fjölgað mjög í bænum síðastliðið ár og bæjaryfirvöld hafi haldið þeirri stefnu að börn fái leikskólapláss við 14 mánaða aldur. Afleiðingin sé sú að auka þurfi pláss fyrir starfsemina og ráða fleira starfsfólk. Þegar hafa átta starfsmenn verið ráðnir, bæði til þess að mæta starfsmannaveltu og fjölgun á leikskólanum. Átta stöð- ur til viðbótar eru lausar á leikskól- anum. „Við höfum auglýst eftir starfsfólki síðan í apríl og erum enn að, en okkur vantar enn talsvert upp á að við getum opnað og tekið inn allan hópinn. Við vinnum að því eins og okkur frekast er unnt að hraða inntöku þessara barna. Bæjaryfir- völd samþykktu í sumar viðbótar- kjör til handa starfsfólki leikskóla, en það eru bara fáir sem sækja um störf í leikskólum. Við virðumst vera að líða fyrir það,“ segir hann. Aðspurður segir Baldur að tafir á uppsetningu húsnæðis undir leik- skólastarfsemina muni ekki einar og sér fresta inntöku barnanna. „Okkur vantar starfsfólk og þar stendur hnífurinn í kúnni. Húsnæðið verður komið upp undir lok ágústmánaðar, en við sjáum ekki fram á að verða komin með nægilega mikinn mann- skap þá,“ segir hann. Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar- stjóri Seltjarnarness, segir að bær- inn hefði mátt upplýsa foreldra fyrr og betur um stöðu mála. Gera hefði átt fyrirvara um að börnin fengju inni á leikskólum bæjarins að því gefnu að búið yrði að manna stöð- urnar. Hún nefnir að margar barna- fjölskyldur hafi flutt á Nesið á skömmum tíma. „Þetta eru börn á öllum aldri, allt frá 14 mánaða og upp í fimm ára, það er fjölgun í öll- um árgöngum. Við vonum að við náum að taka inn börn frá 14 mán- aða aldri eins og við höfum gert síð- astliðin fimm ár,“ segir hún. Spurð hvort bæjaryfirvöldum hafi ekki gefist nægt ráðrúm til að upp- lýsa um stöðu mála þegar mesta fjölgunin varð í mars og 20 umsóknir um pláss bárust, segir hún að rétt hefði verið að upplýsa um stöðu mála strax í bréfinu í apríl. „Það verður að segjast eins og er að það var ekki gert, en það er auðvelt að vera vitur eftir á. Hefði ekki verið rétt að tilkynna strax í apríl, þegar fyrsta bréfið var sent út um að fólk fengi inni, að það væri háð því að það yrði búið að manna? Við vorum bjartsýn um að þetta myndi takast, en þetta er eitthvað sem hefði verið rétt að gera,“ segir hún. 30 börn komast ekki í aðlögun  Foreldrar óánægðir með upplýsingagjöf  Bæjaryfirvöld reyna að bregðast við mikilli fjölgun barna  Átta starfsmenn vantar svo taka megi við börnunum  Bráðabirgðahúsnæði tilbúið um mánaðamót Morgunblaðið/Sigurður Bogi Seltjarnarnes Bæjaryfirvöld leita að starfsfólki á leikskóla bæjarins til að bregðast við mikilli barnafjölgun. Enn er leitað að starfsfólki í átta stöður. Þær störðu dreymandi á hafið mæðgurnar sem ljósmyndari Morgunblaðsins gekk fram á við Gróttuvita á Seltjarnarnesi. Skammt frá landi mátti sjá stórt skemmtiferðaskip sigla löturhægt út Faxa- flóa. Hafði skipið skömmu áður legið við bryggju í Reykjavík en heldur nú til móts við ný ævintýri. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Starað á hafið við Gróttuvita Björgunarsveit Slysavarnar- félagsins Lands- bjargar var köll- uð út síðdegis í gær eftir að smá- báturinn Glaður SH-46 strandaði á Breiðafirði. Tveir menn voru í bátnum, sem hafði verið á grásleppuveiðum, og amaði ekkert að þeim er björgunarmenn komu á staðinn. Talið er að stýri og skrúfa bátsins hafi skemmst við strandið, að sögn Einars Þórs Strand, björg- unarsveitarmanns í Stykkishólmi. Veður var með besta móti á slys- stað og var báturinn dreginn til hafnar um hálfsjöleytið í gærkvöldi. Hafði þá tekið að flæða aftur að, en mikill munur er á flóði og fjöru í Breiðafirði. Ekki er vitað nánar um skemmdir á bátnum. ernayr@mbl.is Smábátur strandaði á Breiðafirði Aðstoð Enginn slasaðist. Hvorki Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar ljós- mæðra, né Gunnar Björnsson, for- maður samninganefndar ríkisins, hafa verið kölluð á fund gerðardóms. Gunnar segist þó eiga von á að fulltrúar ríkisins verði kallaðir á fund nefndarinnar á allra næstu dögum og Katrín tekur í sama streng. Ljósmæður séu tilbúnar með gögn máli sínu til stuðnings. Fyrsti fundur gerðardóms í kjara- deilu ljósmæðra og ríkisins var hald- inn í húsnæði ríkissáttasemjara í gærmorgun, en gerðardómnum ber að úrskurða í seinasta lagi 1. sept- ember næstkomandi. Fulltrúar ljós- mæðra og ríkisins eiga báðir rétt á því að gera gerðardómi grein fyrir sjónarmiðum sínum. Bryndís Hlöð- versdóttir ríkissáttasemjari afhenti gerðardómnum kröfugerðir deilu- aðila, og önnur gögn sem fyrir liggja í málinu í upphafi fundar en að öðru leyti hefur hún ekki aðkomu að störfum dómsins. Gerðardómur sker úr um hver launakjör ljósmæðra skuli vera en hann skal við ákvarðanir sínar „hafa hliðsjón af kjörum og launaþróun þeirra sem sambærilegir geta talist í menntun, störfum, vinnutíma og ábyrgð og, eftir atvikum, almennri þróun kjaramála hér á landi,“ að því er segir í samkomulagi sem samn- inganefndir ljósmæðra og ríkisins undirrituðu 21. júlí. Í dómnum sitja þau Magnús Pétursson, fyrrverandi ríkissátta- semjari, Guðbjörg Andrea Jóns- dóttir, forstöðumaður Félags- vísindastofnunar Háskóla Íslands, og Bára Hildur Jóhannesdóttir, deildarstjóri mönnunar- og starfs- umhverfisdeildar Landspítala og ljósmóðir. Gerðardómur kom saman  Fyrsti fundur gerðardóms í kjaradeilu ljósmæðra fór fram í gærmorgun  Ljósmæður tilbúnar með gögn Morgunblaðið/Hari Fundur Gerðardómur kom saman í gær vegna kjaradeilu ljósmæðra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.