Morgunblaðið - 01.08.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Þín eigin skrifborðskæling!
Stjórnaðu hitastiginu við
vinnustöðina þína.
Kælitæki, rakatæki og lofthreinsitæki,
allt í einu tæki. Til í hvítu og svörtu.
Kynningarverð aðeins kr. 37.227 m.vsk.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
ota, Hyundai, Nissan,
, og fleiri gerðir bíla
ER BÍLLINN ÞINN
ÖRUGGUR
Í UMFERÐINNI?
Varahlutir í...
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Undirbúningurinn er bara á pari við
það sem við höfum gert undanfarin
ár, má segja. Þó ætlum við að reyna
að gera betur. Við ætlum að fjölga
myndavélum og allt er gert til þess að
auka öryggi gesta og þeirra sem eru í
Dalnum,“ segir Jóhannes Ólafsson,
yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum,
spurður um undirbúning lögreglu fyr-
ir komandi verslunarmannahelgi.
„Við förum alltaf vel yfir þetta eftir
hverja hátíð, hvað má betur fara og
erum þá með auknar áherslur eins og
við getum. Hluti af því er að fjölga
þessum myndavélum í dalnum,“ segir
Jóhannes.
Aðspurður hvort myndavélarnar,
sem hann segir að sé dreift víða um
Herjólfsdalinn á Þjóðhátíð, séu settar
upp til að reyna að sporna gegn kyn-
ferðisafbrotum svarar Jóhannes:
„Öllum afbrotum sem koma upp í
dalnum. Þessar myndavélar hafa
margsannað sig, sérstaklega gagn-
vart ofbeldisbrotum. Það hefur verið
mikill kostur að bæta við vélum.“
Á mestu álagstímunum verður
fjöldi gæslufólks um 200 talsins og
lögreglumenn á svæðinu 28. Þá verða
fíkniefnahundar lögreglunnar tveir til
þrír, líkt og verið hefur síðustu ár.
„Við höfum alltaf lagt mikla áherslu
á þennan málaflokk og það verður
ekki minna í ár en áður. Það eru lög-
reglumenn sem verða alveg eingöngu
í fíkniefnaeftirliti.“
Vinnulag lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum við miðlun upplýsinga
verður eins og síðustu þrjú ár þar sem
allar upplýsingar um verkefni lög-
reglu verða veittar um leið og búið er
að tryggja rannsóknarhagsmuni og
velferð mögulegra brotaþola, að því
er fram kemur í tilkynningu frá lög-
reglunni.
Fjölga mynda-
vélum í Dalnum
„Undirbúningur á pari við fyrri ár“
Morgunblaðið/Ófeigur
Margmenni Gæslufólk verður um
200 talsins á mestu álagstímum.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Ásthildur Sturludóttir hefur verið
ráðin í starf bæjarstjóra á Akureyri.
Tekur hún við af Eiríki Birni Björg-
vinssyni, sem hefur gegnt stöðu
bæjarstjóra undanfarin átta ár. Alls
sóttu 18 um starfið og þar af drógu
tveir umsóknir sínar til baka. Ákvað
meirihluti bæjarstjórnar á Akureyri
að ganga til samninga við Ásthildi
eftir úrvinnslu umsókna.
Ásthildur gerir ráð fyrir að taka
við starfinu í september og munu
þau fjölskyldan flytjast búferlum í
haust. „Við erum öll mjög spennt
fyrir komandi flutningum. Við höf-
um alltaf verið skotin í Akureyri og
þegar staðan kom upp fannst okkur
þetta tilvalið. Sonur okkar er á leið í
menntaskóla svo ég sá að þetta gæti
hentað okkur vel.“
Gjörólík sveitarfélög
Ásthildur var bæjarstjóri í
Vesturbyggð á tímabilinu 2010-2018
og hefur því góða reynslu af sveitar-
stjórnarmálum. Spurð hvort líkindi
séu milli þessara tveggja sveitarfé-
laga segir Ásthildur sveitarfélögin
verulega ólík, þó að starfið sé í
grunninn hið sama.
„Þó er svipað alls staðar að
stýra sveitarfélagi, held ég. Þetta
eru ólík samfélög og sér í lagi stærð
þeirra. Starfið er þó líklegast ekki
svo ólíkt. Bæjarstjórinn framfylgir
ákvörðunum meirihlutans hverju
sinni sem framkvæmdastjóri
sveitarfélagsins. En þessi tvö sam-
félög eru alveg gjörólík, ef það væri
ekki nema bara fyrir veðrið,“ segir
Ásthildur og hlær.
Hún segir margvíslegar áskor-
anir bíða sín í starfinu fyrir norðan.
„Það eru fjölmargar áskoranir
sem fylgja því að stýra stóru sveitar-
félagi sem er leiðandi á svæðinu og
margt sem þarf að vinna að. T.d. mál
flugvallarins, raforkumál, samskipti
ríkis og sveitarfélaga, til að nefna
einhver. Svo ekki sé minnst á fjöl-
mörg verkefni innan sveitarfé-
lagsins sjálfs,“ segir Ásthildur, sem
hlakkar til að hefja störf á nýjum
slóðum í haust.
Spennt fyrir starfinu
og „skotin“ í Akureyri
Morgunblaðið/Kristinn
Reynd Ásthildur lét af störfum í vor sem sveitarstjóri í Vesturbyggð. Hún segir margvíslegar áskoranir bíða sín.
Ásthildur Sturludóttir ráðin bæjarstjóri á Akureyri