Morgunblaðið - 01.08.2018, Síða 16
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Icelandair Group tapaði 25,7 millj-
ónum dollara, jafnvirði 2,7 milljarða
króna á öðrum fjórðungi þessa árs,
samanborið við 15,5 milljóna doll-
ara hagnað, jafnvirði 1,6 milljarða
króna á núverandi gengi, yfir sama
tímabil í fyrra. Félagið hefur ekki
skilað tapi á öðrum fjórðungi síðan
2010. Þá nam tapið 161 milljón
króna.
Heildartekjur samstæðunnar
námu 399 milljónum dollara á fjórð-
ungnum, jafnvirði tæplega 42 millj-
arða króna. Jukust þær um 9% frá
fyrra ári þegar þær námu 367,3
milljónum dollara. Á sama tíma hef-
ur rekstrarkostnaður aukist veru-
lega og nam rúmum 384 milljónum
dollara, 40,4 milljörðum króna,
samanborið við 327 milljónir dollara
árið á undan. Kostnaðurinn jókst
því um 17,6% milli tímabila. Þar af
jókst launakostnaður um 15,3% en
flugrekstrarkostnaðurinn um 23%.
Eignir upp á 174 milljarða
EBITDA yfir fjórðunginn dróst
saman um 64% frá fyrra ári. Nam
hún 14,7 milljónum dollara, jafn-
virði 1,5 milljarða króna en var 40,6
milljónir dollara eða tæpir 4,3 millj-
arðar króna á sama tíma 2017.
EBITDA-hlutfallið á fjórðungn-
um reyndist 3,7%, samanborið við
11% í sama fjórðungi í fyrra.
Um mitt árið námu eignir Ice-
landair Group 1.655 milljónum doll-
ara, jafnvirði 174 milljarða króna og
höfðu aukist um 16,3%. Skuldir
félagsins stóðu í 1.126 milljónum
dollara, jafnvirði ríflega 118 millj-
arða króna. Eigið fé félagsins var
529,7 milljónir dollara, jafnvirði
55,7 milljarða króna. Eiginfjárhlut-
fallið stóð í 32% og hafði lækkað um
2 prósentustig frá sama tíma ári
fyrr.
Í tilkynningu frá félaginu segir
að þrýstingur á fargjöld, lakari
sætanýting og einskiptiskostnaður
vegna truflana í flugáætlun skýri
lakari afkomu en á sama tíma í
fyrra. Þá er haft eftir Björgólfi
Jóhannssyni að afkoman sé lakari
en áætlanir hafi gert ráð fyrir.
„Spár okkar um hækkandi með-
alverð á síðari hluta ársins hafa
hingað til ekki gengið eftir. Þetta
gerist þrátt fyrir að olíuverð hafi
hækkað mikið. Samkeppnin á
mörkuðum hefur sjaldan verið
meiri sem kemur fram með þessum
hætti.“ Bendir hann þó á að félagið
geri ráð fyrir að hækkun á verði að-
fanga muni að lokum knýja flug-
félögin til að hækka meðalverð.
Hann segir að Icelandair sé í góðri
stöðu til að takast á við áskoranir og
að nýta þau tækifæri sem upp
kunna að koma við þær krefjandi
aðstæður sem séu uppi um þessar
mundir í rekstri flestra flugfélaga.
Hefur tapað 6,3
milljörðum í ár
Á fyrri helmingi ársins hefur Ice-
landair tapað 60,3 milljónum doll-
ara, jafnvirði 6,3 milljarða króna,
samanborið við 2,1 milljarðs tap í
fyrra. Tekjur félagsins námu yfir
tímabilið tæpum 667 milljónum
dollara, jafnvirði 70 milljarða króna
og jukust um 13%. Rekstrarkostn-
aðurinn var 670 milljónir dollara,
jafnvirði 70,4 milljarða króna og
jókst um tæp 20% milli ára.
EBITDA Icelandair
dróst saman um 64%
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Endurnýjun Icelandair hefur nú tekið þrjár nýjar Boeing 737 MAX-vélar í
notkun. Á næsta ári fjölgar þeim um 6, árið 2020 um 5 og 2 árið 2021.
Tap á öðrum ársfjórðungi í fyrsta sinn síðan árið 2010
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Cocoa Mint 2000 umgjörð
kr. 12.900,-
1. ágúst 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.45 104.95 104.7
Sterlingspund 137.45 138.11 137.78
Kanadadalur 80.03 80.49 80.26
Dönsk króna 16.436 16.532 16.484
Norsk króna 12.841 12.917 12.879
Sænsk króna 11.925 11.995 11.96
Svissn. franki 105.64 106.24 105.94
Japanskt jen 0.9358 0.9412 0.9385
SDR 146.63 147.51 147.07
Evra 122.46 123.14 122.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.9271
Hrávöruverð
Gull 1222.05 ($/únsa)
Ál 2053.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.31 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Vöruútflutningur á fyrri helmingi ársins var 43 milljörðum króna meiri en á sama
tímabili í fyrra og jókst verðmætið um 17,6% milli ára, reiknað á gengi hvors árs. Á
tímabilinu janúar til júní 2018 voru fluttar út vörur fyrir 287 milljarða króna.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um 40 milljarða króna á fyrri árshelmingi, sem
er 12,1% aukning á gengi hvors árs. Fluttar voru inn vörur fyrir 370,4 milljarða
króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 83,4 milljörðum króna á fyrri helmingi
ársins, reiknað á fob verðmæti, sem er 2,8 milljörðum króna minni halli en á
sama tímabili á síðasta ári. Án skipa og flugvéla nam vöruskiptahallinn 66,7 millj-
örðum króna, samanborið við 73,6 milljarða króna fyrstu sex mánuðina í fyrra.
Vöruskiptahalli 83,4 milljarðar á fyrri árshelmingi
STUTT
N1 hefur hlotið heimild Samkeppnis-
eftirlitsins til þess að ganga frá
kaupum á Festi sem m.a. hefur í
rekstri Krónuna, Nóatún og Elko.
Með samþykki stofnunarinnar lýkur
ríflega árs löngu þrátefli milli N1 og
hennar um þau skilyrði sem fyrir-
tækinu er gert að undirgangast svo
samruninn mætti verða að veruleika.
Eggert Þór Kristófersson, for-
stjóri N1, segir í samtali við mbl.is að
hann sé mjög sáttur við að hafa náð
sátt við eftirlitið um þetta mál.
„Þetta er mikill áfangi í þróun N1,“
segir hann og bætir við að nú verði
hrundið af stað vinnu við að halda
hluthafafundi í fyrirtækjunum um að
sameina þau og gefa út hlutabréf í
N1 sem er hluti af kaupverðinu.
Er þeim aðgerðum sem N1 skuld-
bindur sig til að grípa til í kjölfar
samrunans skipt í sex þætti. Í fyrsta
lagi hyggst N1 selja tilteknar elds-
neytisstöðvar og vörumerkið „Dæl-
una“ til nýs aðila á þessum markaði.
Þar skulu að lágmarki fylgja með í
kaupunum 3 stöðvar Dælunnar og
stöðvar N1 við Salaveg í Kópavogi og
í Holtagörðum.
Í öðru lagi skuldbindur N1 sig til
að selja verslunina Kjarval á Hellu í
því skyni að „efla samkeppni utan
höfuðborgarsvæðisins,“ eins og það
er orðað í sáttinni. Í þriðja lagi skuld-
bindur N1 sig til að selja nýjum end-
urseljendum á markaði allar tegund-
ir eldsneytis í heildsölu á
viðskiptalegum grunni og að gæta
jafnræðis og hlutlægni gagnvart
þeim sem kaupa eldsneyti í heild-
sölu. Þá er N1 annar aðaleigandi Ol-
íudreifingar og sem slíkt skuldbind-
ur fyrirtækið sig til þess að grípa til
aðgerða sem megi verða til að
tryggja aðgengi seljenda að birgða-
rými og þjónustu fyrirtækisins.
Í fjórða lagi skuldbindur N1 sig til
að tryggja samkeppnislegt sjálf-
stæði sitt, m.a. með því að tryggja
sérstaklega sjálfstæði stjórnar og
lykilstarfsmanna og aðskilnað hags-
muna. Fyrirtækið mun setja sér
samkeppnisáætlun. Þá mun Sam-
keppniseftirlitið eiga viðræður við
stærstu hluthafa N1 sem einnig eiga
hluti í samkeppnisaðilum fyrirtækis-
ins, um mögulegar skuldbindingar
þeirra og nauðsynlegar aðgerðir til
að tryggja samkeppni á þessum
markaði. Samkvæmt sáttinni er það
niðurstaða stofnunarinnar að eignar-
haldið sem slíkt geti „leitt til rösk-
unar á samkeppni og að bregðast
verði við […]“
Í fimmta lagi hyggst N1 bregðast
við þeirri stöðu sem upp er komin
vegna samreksturs fyrirtækisins og
Samkaupa á þjónustustöðvum á sex
stöðum á landsbyggðinni. Verður
samstarfið tekið til skoðunar og N1
hyggst tryggja að upplýsingar sem
tengjast samstarfinu berist ekki til
þeirra stjórnenda og starfsmanna
N1 sem annast dagvöruverslun á
vegum N1. Í sjötta lagi skuldbindur
N1 sig til þess að fá óháðan kunn-
áttumann skipaðan til þess að fylgja
eftir og hafa eftirlit með þeim að-
gerðum og fyrirmælum sem kveðið
er á um í sáttinni.
Léttir fyrir fjárfesta
Markaðurinn tók afar vel í tíðind-
in, sem bárust í gegnum tilkynninga-
kerfi Kauphallar Íslands seint á
mánudagskvöld. Þannig hækkuðu
bréf N1 í viðskiptum gærdagsins um
11,5% í 568 milljóna króna viðskipt-
um. Áhrifanna gætti þó víðar. Þann-
ig hækkuðu bréf Haga um 5,5% í 209
milljóna viðskiptum. Er það vísast
rakið til þess að innan skamms verð-
ur tilkynnt hvort Samkeppniseftirlit-
ið samþykki þau skilyrði sem Hagar
hafa teflt fram vegna fyrirhugaðrar
yfirtöku á Olís. ses@mbl.is
Markaðurinn
fagnar samruna
N1 fær heimild til þess að kaupa Festi
● Um 90% Íslendinga undir þrítugu
hafa aðgang að Netflix, að því er
fram kemur í könnun sem MMR
gerði um
miðjan maí.
Tveir af
hverjum
þremur Ís-
lendingum
hafa aðgang
að Netflix á
heimili sínu, eða 67%. Það er aukn-
ing um 8 prósentustig frá sama tíma
í fyrra.
Óverulegur munur var á svörun
eftir kyni en íbúar höfuðborgar-
svæðisins, þar sem 70% eru með
áskrift á heimilinu, voru líklegri til að
segja einhvern á sínu heimili vera
með áskrift en íbúar á landsbyggð-
inni, þar sem hlutfallið var 62%. Þá
jukust líkur á að einhver heim-
ilismanna svarenda væri með áskrift
að Netflix með aukinni menntun og
heimilistekjum.
Níu af hverjum tíu undir
þrítugu eru með Netflix
Sjónvarp Um 67% lands-
manna eru með Netflix.