Morgunblaðið - 01.08.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2018
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.
ICQC 2018-20
Mission: Impossible – Fallout
Sjötta myndin í syrpunni um Ethan
Hunt og félaga í hinni leynilegu
sérsveit Bandaríkjanna sem kölluð
er til þegar hætta steðjar að heim-
inum og leysa þarf verkefni sem
virðast með öllu óleysanleg. Hunt
kemst í hann krappan enn eina
ferðina eftir að verkefni sem hann
átti að leysa fer úrskeiðis og hann
lendir á milli steins og sleggju, þarf
að stöðva hryðjuverkamenn sem
hyggjast sprengja þrjár kjarnorku-
sprengjur og öðlast um leið traust
samstarfsmanna sinna á ný. Tom
Cruise fer sem fyrr með hlutverk
Hunt og leikur að vanda sjálfur í
áhættuatriðum sínum, en hann slas-
aðist við tökur á myndinni þegar
hann stökk á milli bygginga. Aðrir
helstu leikarar eru Henry Cavill,
Ving Rhames, Simon Pegg, Re-
becca Ferguson, Alec Baldwin,
Angela Bassett og Vanessa Kirby.
Metacritic: 86/100
Rotten Tomatoes: 97%
Hunt leysir óleysanlegt
verkefni í sjötta sinn
Bíófrumsýningar
Hamagangur Tom Cruise hangandi í þyrlu í Mission: Impossible – Fallout.
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Celebrating David Bowie heitir tón-
listardagskrá sem ferðast hefur víða
og er nú á leið til Íslands. Tónleikar
verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu
7. og 8. október, og þar mun koma
fram átta manna fjölþjóðlegt band
auk íslenskra listamanna. Í bandinu
eru meðal annarra gítarleikarinn
goðsagnakenndi Adrian Belew, sem
túraði tvisvar með Bowie, og Todd
Rundgren gítarleikari, sem var á há-
tindi feril síns á sama tíma og Bowie
og hefur verið mikill pródúsent síð-
ustu ár. Einnig þeir Angelo Moore,
saxófónleikari og söngvari í Fish-
bone, og Paul Dempsey, söngvari og
gítarleikari áströlsku sveitarinnar
Something for Kate.
Topptónlistarfólk fyrir Bowie
Angelo Bundini, hljómsveitar-
stjóri bandsins og einn af gítarleik-
urunum, skipulagði fyrstu tón-
leikana fyrir tveimur árum, mánuði
eftir að Bowie féll frá.
„Ég er þekktur í Los Angeles fyr-
ir að skipuleggja meiriháttar við-
burði með stórum stjörnum, og það
kom strax þrýstingur á mig að gera
eitthvað vegna andláts Bowies. Ég
hafði samband við tónlistarfólk sem
hafði spilað með honum, og líka við
leikarann Gary Oldman, sem vildi
endilega gera eitthvað, en þeir
Bowie voru vinir í 30 ár og töluðu
saman á hverjum sunnudags-
morgni,“ segir Bundini, sem stóð
fyrir fjögurra klukkustunda tón-
leikum í Roxy Theatre í Los Angeles
og fékk til liðs við sig um 70 tón-
listarmenn, sem komu og fóru af
sviðinu.
„Strax daginn eftir voru tónleik-
arnir komnir á netið og ég var beð-
inn um að halda fleiri tónleika.
Þannig vatt þetta upp á sig og nú er-
um við á leið til Íslands,“ segir
Bundini.
„Þetta er algjört topptónlistar-
fólk, því Bowie á það skilið. Belew
tekur aldrei þátt í neinu svona en
var til í að vera með, því það er ein-
stakt tækifæri að fá að spila þessi
lög aftur, lög sem Bowie gerði að
klassík og verða leikin í framtíðinni
eins og aðrar frábærar tónsmíðar.“
Algerlega ólíkir tónleikar
Ethan Schwartz er annar skipu-
leggjenda tónleikanna.
„Ég er mikill aðdáandi
hljómsveitarinnar Sigur Rósar og
fyrir um tíu árum sá ég heimildar-
myndina Heima. Mig hefur síðan þá
alltaf langað að taka eitt af bönd-
unum sem ég vinn með þangað, en
það tókst aldrei fyrr en ég stakk upp
á hugmyndinni við Bundini,“ segir
Schwartz, sem vonast til að fólk
komi utan úr heimi á tónleikana.
„Tónleikarnir verða haldnir á
sama tíma og Yoko Ono lýsir upp
friðarsúluna í Viðey, og fólk gæti
haft áhuga á að sjá það og jafnvel
norðurljósin. Þetta er algjörlega
ótrúlegt land sem þið eigið.“
Schwartz segir ekki hlaupið að því
að fá tónlistarfólk á borð við Todd
Rundgren og Adrian Belew til að
taka þátt, en þeir voru báðir mjög
spenntir fyrir því að spila á Íslandi.
„Það verða tvennir tónleikar sem
verða mjög ólíkir. Fyrra kvöldið
verður þetta átta manna band, og
síðan sama bandið kvöldið eftir
ásamt Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands og kór sem Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson stjórnar. Við Bundini
vildum gera þessa tónleika ólíka öllu
öðru sem við höfðum gert áður, og
við höfðum samband við Þorvald
Bjarna, sem tók vel í ósk okkar og
hlutirnir gengu upp. Þannig að fyrra
kvöldið verða rokk- og sálar-
tónleikar, og á seinni tónleikunum
verður einblínt meira á stór-
fenglegar lagasmíðar Bowies.“
- Þannig að maður verður að fara
á báða tónleikana?
„Já, við vonum að fólk geri það.
Þeir verða algerlega ólíkir og ættu
að vera þess virði.“
Vilja vinna með Íslendingum
Bundini segir að allir fjórir aðal-
mennirnir skiptist á að syngja.
„Það er svolítið merkilegt að þeir
eru allir með sama raddsvið og
Bowie og þeir eru alveg frábærir.
Rundgren og Belew hafa aldrei unn-
ið saman áður og ætla nú að syngja
lag saman sem Bowie og Belew
sungu á sínum tíma saman um allan
heim og Belew hefur aldrei sungið
það síðan.“
Seinna kvöldið kemur fram fleira
íslenskt tónlistarfólk en kórinn og
sinfóníuhljómsveitin.
„Við viljum endilega vinna með
innlendu listafólki. Það er öruggt
með einn íslenskan tónlistarmann og
við erum að tala við fleiri. Þetta
verður aðalkvöldið og það verður
ekkert smá! Það verða sum sömu
lögin báða dagana en túlkuð á mjög
misjafnan hátt, þannig verða tón-
leikarnir og upplifunin ólík. Líka
fyrir tónlistarmennina, sem eru allir
að gera þetta fyrir skemmtunina og
tækifærið til að fá að vinna hver með
öðrum,“ segir Angelo Bundini, sem
hlakkar til að fylla Eldborg.
Goðsögn Adrian Belew er gítarsnillingur í ham.
Lög sem verða leikin í framtíðinni
David Bowie-tónleikar verða haldnir í Hörpu í október með erlendum og innlendum listamönnum
Morgunblaðið/Ásdís
Stjarnan sjálf David Bowie kom til Íslands árið 2002, og nú koma lögin hans í flutningi vina og aðdáenda.
Ljósmynd/Carl Lenger
Töffari Todd Rundgren, gítarleikari og söngvari.