Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.08.2018, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 213. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Símtalið slitnaði skyndilega 2. Syndir með hræ kálfsins um hafið 3. „Óður til Kirkjufells“ 4. Heimir spenntur fyrir Basel »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, syngur íslenskar og erlendar kórperlur undir stjórn Harðar Áskelssonar í kirkjunni í dag kl. 12. Tónleikagestum verður boðið í kaffi og spjall við kórinn að tón- leikum loknum. Schola cantorum syngur í hádeginu  Tónlistarmaður- inn Teitur Magn- ússon býður til hlustunarteiti á Kaffi Vínyl, Hverfisgötu 76, í kvöld kl. 20. Þar mun Teitur setja á fóninn nýútkomna breiðskífu sína, Orna, og selja eintök af henni þeim er vilja. Teitinni lýkur um kl. 23. Hlustunarteiti með Teiti á Kaffi Vínyl  Enski pönkrokkarinn Billy Idol heldur tónleika í kvöld kl. 20 í Laugardalshöll og mun á þeim flytja þekktustu smelli sína ásamt fleiri lögum. Idol er orðinn 62 ára og naut hvað mestra vinsælda á ní- unda áratugnum. Yfir 40 milljónir eintaka af hljómplötum hans hafa selst á heimsvísu. Gítarleikarinn Steve Stevens er í hljómsveit- inni sem fylgir Idol en þeir hafa starfað saman í árafjöld. Idol rokkar í kvöld Á fimmtudag Suðvestlæg átt, 3-8, og skúrir, en þurrt og bjart suð- austan til. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast eystra. Á föstudag Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og dálít- il rigning á Norðurlandi, einkum við ströndina, en skýjað með köfl- um og síðdegisskúrir sunnan til. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast syðra. VEÐUR Knattspyrnumaðurinn Eyjólf- ur Héðinsson segir að Stjörnumenn hafi verið svo- lítið fastir í árinu 2014 en séu nú farnir að hugsa meira um að vinna titla á ný. „Núna er minna og minna talað um það. Félagið hefur gott af því að skapa nýjar minningar, vonandi er komið að því í ár,“ segir Eyjólfur sem er í liði 14. umferðar hjá Morgunblaðinu en það er birt í dag ásamt stöðunni í M-gjöfinni. »4 Minna og minna talað um 2014 „Draumurinn er auðvitað að spila í góðu liði í enn stærri deild en þeirri sænsku. Eins og staðan er í dag er ég leikmaður IFK Gautaborgar og ég er hérna til að bæta mig og hjálpa lið- inu. Ef maður stendur sig vel þá opn- ast alltaf einhverjar dyr,“ segir knattspyrnumaðurinn Elías Már Ómarsson sem skoraði þrennu á dög- unum og er meðal markahæstu manna í Svíþjóð. »1 Ef maður stendur sig opnast einhverjar dyr Þrír leikir fóru fram í 12. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Breiðablik vann stórsigur á HK/ Víkingi í Kópavogi, 6:1, og þá unnu Valskonur 3:0-sigur á Grindavík á Hlíðarenda. Stjarnan vann svo 3:0- sigur á Selfossi á JÁVERK-vellinum. Blikar endurheimtu þar með topp- sætið af Þór/KA og eru með 33 stig í efsta sæti deildarinnar. »2, 3 Blikar endurheimtu toppsætið með stórsigri ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Ingólfur Sveinsson geðlæknir og hlaupari er 79 ára en aldurinn er honum engin fyrirstaða. Hann hleypur í Barðsneshlaupi, 27 kíló- metra víðavangshlaupi, næstkom- andi laugardag í tuttugasta og ann- að sinn. Hann hefur því tekið þátt í hlaupinu frá tilurð þess. Ingólfur er upphafsmaður hlaupsins en hann er alinn upp á Barðsnesi sem er við Norðfjörð. „Allt fór í eyði á Barðsnesi árið 1955 og nú er bara eyðibyggð þar. Áður var þarna útgerðarstaður og smáþorp. Það var á tímum árabát- anna og þá var praktískt að róa það- an á sjó fremur en innan úr kaup- stað. Þegar vélbátarnir komu breyttist allt,“ segir Ingólfur. Í Barðsneshlaupinu er hlaupið um móa, mýrar, fjörur og tún. Til að byrja með eru keppendur ferjaðir með bát frá Hellisfirði yfir að Barðs- nesi. Eftir bátsferðina tekur við hlaup um Viðfjörð, Hellisfjörð, Norðfjörð og lýkur hlaupinu í Nes- kaupstað. Vaða þarf Norðfjarðará á leiðinni. „Þetta eru kindagötur og hestagötur og þetta er misjafnlega fært,“ segir Ingólfur. Oft taka um 50 manns þátt og þetta árið er fólk frá hinum ýmsu heimshornum skráð í hlaupið. „Það er einn skráður frá Spáni, tvö frá Mauritiusi og hjón frá Sviss,“ segir Ingólfur sem lætur sér ekki nægja að hlaupa Barðs- neshlaupið heldur stefnir hann einnig á að taka þátt í Reykja- víkurmaraþoninu. „Ég hljóp í fyrsta skipti í Reykjavíkurmaraþoninu árið 1984 og hef alltaf verið með í þeim. Ég reikna með að taka þátt í ár ef ég kem óskaddaður úr Barðsneshlaupinu.“ Maraþonin sem Ingólfur hefur hlaupið eru orðin all- nokkur. „Já, þau eru víst ein þrjátíu. Svo hef ég hlaupið Laugaveginn sjö sinnum og sitthvað fleira.“ Nátt- úruhlaup eins og Barðsneshlaupið eru í uppáhaldi hjá Ingólfi. „Það er svo gaman að skoða landið á þennan hátt og Ísland er ofboðslega flott land.“ Hann segir hlaup mikilvæg fyrir samfélagið. „Það skiptir miklu máli að það séu til svona hlaup og að það fyrirfinnist sú menning að hreyfa sig, skokka og hafa gaman af því. Það breytir heilu bæjunum þegar hlauparar eru úti að skokka þar sem annars myndi ekki sjást sála.“ Að lokum hvetur Ingólfur fólk til að drífa sig austur og taka þátt í Barðsneshlaupinu. Skoðar landið á harðaspretti  Hleypur 27 kíló- metra Barðsnes- hlaup í 22. sinn Ljósmynd/Barðsneshlaup Afrek Ingólfur kemur í mark í Barðsneshlaupinu 2016. Að hlaupinu loknu er boðið upp á súpu fyrir hungraða hlaupara. „Það er alveg svakalega gott að hafa einhvern mat í boði, ekki bara prins póló og kók,“ segir Ingólfur. Ingólfur starfar sem geðlæknir og á langan feril að baki. Hann segir geðlækningar hafa breyst mikið en ekki nóg. „Daninn Søren Kierkegaard sagði eitt sinn að maður lærði á lífið með reynslunni sinni en maður gæti ekki lifað aftur á bak. Fólk sem á að baki erfiða lífs- reynslu á þær minn- ingar og þær sitja í. Ég vil hreinsa til í minningasafni fólks og ég kalla það draug- hreinsun. Frekar en að fara enda- laust yfir sömu sorgarsöguna og vandræðin þá er betra að hreinsa þessar slæmu minningar burt. Þetta er aðferð sem mér finnst alls ekki vera notuð nóg en það er hægt að kenna hana á hálftíma. Það eru nokkrir sálfræðinemar sem hafa lært þetta og ég vona að þeir haldi áfram.“ Vill hreinsa burt gamla drauga GEÐLÆKNIRINN INGÓLFUR Ingólfur Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.