Morgunblaðið - 10.08.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 10.08.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 Ólöf Erla Bjarnadóttir Guðrún Borghildur Valdís Harrysdóttir Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Góð veiði er í Hítárá á Mýrum, betri en á síðasta ári, þrátt fyrir breytingar á ánni í kjölfar berg- hlaupsins sem varð í Hítardal fyrir um mánuði. Nú stefnir í að fleiri laxar veiðist í Hítárá en á síðasta ári. Hítará var gruggug fyrstu dag- ana eftir að skriðan féll úr Fagra- skógarfjalli og yfir ána og meðan hún var að finna sér nýjan farveg. Fljótlega varð hún þó tær sem fyrr. Veiðarnar héldu áfram en stang- veiðimennirnir hafa einbeitt sér að neðri hluta árinnar, við Brúarfoss sem er við þjóðveginn og upp að ármótum Hítarár og Tálma en megnið af rennslinu sem áður fór um efri hluta Hítárár fer nú um Tálma. Efri svæðin, svokölluð haustveiðisvæði, eru alveg lokuð. Ari Hermóður Jafetsson, fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, segir að laxinn hangi mikið í kringum ármótin. Getur hann sér þess til að hann sé ringl- aður og viti ekki í hvora ána hann eigi að fara. Hindrun í nýjum farvegi Telur Ari að það taki nokkur ár að komast að því hvort og þá hvernig laxinn gangi upp í ána. Í nýja farveginum við skriðuna eru til dæmis hindranir, þar sem áin rennur undir hraun. Sex stangir eru í Hítará. Þar höfðu í gær veiðst 426 laxar, sam- kvæmt upplýsingum Lands- sambands veiðifélaga. Allt árið í fyrra veiddust 494 laxar í ánni. Ari Hermóður telur allar líkur á að Hítárá verði betri í ár en í fyrra, þrátt fyrir náttúruhamfarirnar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Veiðistaður Veiðimenn raða sér nú í kringum veiðihúsið Lund sem Jóhannes Jósepsson á Hótel Borg byggði. Liggur ráðvillt- ur við ármótin  Röskun á Hítará dregur ekki úr veiði Nemendum gafst kostur á að sækja um í tvo skóla í ár eins og áður. Nú fengu 89% umsækjenda skólavist í þeim skóla sem þeir settu í fyrsta val, 9% fengu skólavist í þeim skóla sem þeir settu í annað val en Menntamálastofnun sá um að útvega þeim sem ekki fengu skólavist í þeim skólum sem þeir settu í fyrsta eða annað val skólavist annars staðar. Samkvæmt frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins sóttu 95,6 % þeirra sem útskrifuðust úr grunnskóla síðasta vor um skólavist í framhaldsskólum, alls 3.930 nem- endur. Það er lægra hlutfall en í fyrra, þá sóttu 98,3% allra þeirra sem útskrifuðust úr grunnskóla um vorið um skólavist í framhaldsskólum eða 4.012. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Menntaskólanum í Hamrahlíð, MH, bárust flestar umsóknir um innritun nýnema haustið 2018, en 749 um- sóknir bárust skólanum. 350 nem- endur fá skólavist hjá MH, þar af kemur 291 nemandi beint úr grunn- skóla. Verzlunarskóli Íslands fékk næst- flestar umsóknir, eða 642. 325 nem- endur fá skólavist hjá skólanum. Menntaskólinn við Sund fékk fleiri umsóknir en áður eða hátt í 600 um- sóknir en 214 hljóta skólavist hjá skólanum. Már Vilhjálmsson, rektor skólans, telur fjölgun umsókna skýr- ast af því að skólinn bjóði upp á öðru- vísi námskrá og námstilhögun en aðrir bóknámsskólar. „Við erum með þriggja anna kerfi sem virkar þannig að skólaárinu er skipt í þrjár jafn langar annir í stað tveggja. Að auki er námskráin okkar allt öðruvísi og við erum ekki með lokapróf.“ Umsóknir sem bárust Mennta- skólanum í Reykjavík voru örlítið færri en vant er, að sögn konrektors skólans, Bjarna Gunnarssonar. Skól- anum bárust 360 umsóknir og fengu 220 nýnemar skólavist hjá skólanum. Morgunblaðið/Styrmir Kári Nemendur Stærstur hluti framhaldsskólanema fékk skólavist í þeim skóla sem þeir settu í fyrsta val. MH vinsælasti framhaldsskólinn  Færri sækja um skólavist í framhaldsskólum en í fyrra Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Sumir draga mjög lengi að láta jarðsetja duftker látinna ástvina, en þetta hefur þó stórlagast,“ sagði Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma, en Morgunblaðið hafði sam- band við hann til að kanna stöðuna. Fyrir fjórum árum var blaðið með ítarlega umfjöllun um málið, en brögð eru að því að það dragist úr hófi fram að láta jarðsetja kerin og safnast þau þá upp í geymslum kirkjugarðanna. Dæmi hafa verið um að duftker hafi beðið jarðsetn- ingar um árabil. Misskilningur um jarðsetningu „Algengur misskilningur er að gengið sé frá jarðsetningu sjálf- krafa eftir útförina og fólk hugar síðan ekkert meira að því. Við höf- um verið að reka svolítið markvisst á eftir þessu og þetta fer að komast í viðunandi horf en við erum ekki al- veg ánægð ennþá,“ segir Þórsteinn og bætir við að útfararstofurnar þurfi einnig að leggja sitt af mörk- um við að hjálpa aðstandendum lát- inna við að klára útför hins látna, sem alla jafna skuli enda með jarð- setningu. „Það er á ábyrgð aðstandendanna sem sáu um útförina að óska eftir því að duftkerin séu jarðsett eftir bálför, en grafreit fyrir duftker hins látna hefur þegar verið úthlutað við útförina,“ segir Þórsteinn. Eðlilegt sé að greftrun fari fram fljótlega eftir útför hins látna, nema ástæður eins og t.d. frost í jörðu komi í veg fyrir að það geti gerst, en slík tilfelli séu undantekningar. Duftker látinna gleymd í geymslu  Aðstandendur muni að láta jarðsetja Morgunblaðið/Þórður Í geymslum Duftker látinna sem bíða greftrunar á legstað sínum. 480 manns þreyttu A-prófið, aðgangspróf fyrir háskólastig, þetta árið. Það er rúmum ellefu prósentum meira en í fyrra en þá þreyttu 425 manns prófið. Háskóli Íslands gerði ráð fyrir aukningu í umsóknum þetta árið vegna styttingar á námstíma til stúdentsprófs. A-prófið er haldið tvisvar ár hvert og hafa lagadeild, hjúkrunarfræðideild og lækna- deild Háskóla Íslands stuðst við prófið undanfarin ár við inntöku ný- nema. Sigurður Ingi Árnason, verkefnastjóri Háskóla Íslands á kennslu- sviði, segir aðsókn í A-próf eftir væntingum. Færri þreyttu A-prófið í ár heldur en 2016. Aðspurður að því hvort það skjóti ekki skökku við segir Sigurður svo ekki vera. „Þegar 2016 er tekið inn í myndina þarf að hafa í huga að þá studdist hag- fræðideild einnig við prófið. Hún hætti því fyrir síðasta skólaár.“ Fleiri þreyttu A-próf þetta árið AUKIN AÐSÓKN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.