Morgunblaðið - 10.08.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Ilmur hinnar
gullnu stundar
Terre de Lumière
L’Eau
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Undantekning
hefur verið gerð
á ströngu banni
sem ríkir í
Þýskalandi gegn
notkun haka-
krossins og ann-
arra táknmerkja
nasista svo leyfi-
legt verði að not-
ast við þau í
tölvuleikjum. Hvatinn að lagabreyt-
ingunni er Wolfenstein-tölvu-
leikjaserían þar sem leikmaðurinn
berst gegn nasistum. Komist hefur
verið að þeirri niðurstöðu að leik-
irnir séu listaverk og fái því undan-
þágu frá banninu.
ÞÝSKALAND
Hakakross Merk-
ið leyft í tölvu-
leikjum.
Leyfa hakakrossinn
New York Times, eitt virtasta dag-
blað Bandaríkjanna, býst nú við því
að áskrifendur þess nemi bráðum
fjórum milljónum. Fyrirtækið hefur
bætt við sig um 109.000 rafrænum
áskrifendum á fyrsta fjórðungi árs-
ins. Alls eru um 2,89 milljón áskrif-
endur að rafrænni útgáfu blaðsins
en áskrifendurnir alls eru um 3,8
milljónir. Þeim hefur fjölgað veru-
lega frá lokum ársins 2016.
BANDARÍKIN
NYT Skrifstofa New York Times.
4 milljónir áskrifta?
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Öldungadeild argentínska þingsins
hafnaði í gærmorgun frumvarpi um
lögleiðingu frjálsra fóstureyðinga
fram á fjórtándu viku meðgöng-
unnar. Þingmenn deildu um frum-
varpið í rúmar fimmtán klukku-
stundir en kusu að endingu með 38
atkvæðum gegn 31 að fella það.
Fulltrúadeild þingsins hafði sam-
þykkt frumvarpið í júní og forseti
landsins, Maurico Macri, hafði lýst
yfir að hann myndi skrifa undir
lögin ef þau hlytu staðfestingu á
þingi.
Frumvarpið naut nokkuð víð-
tæks stuðnings argentínskrar al-
þýðu en kaþólska kirkjan hafði
mótmælt því og hvatt þingmenn til
þess að hafna því. Frans páfi, sem
nýtur talsverðra áhrifa í stjórnmál-
um heimalands síns, hafði sjálfur
lýst yfir andstöðu við það.
Skiptar skoðanir
Andstæðingar frumvarpsins
fögnuðu með húrrahrópum og skutu
upp flugeldum þegar tilkynnt var að
því hefði verið hafnað. „Atkvæða-
greiðslan sýnir að Argentína er enn
land sem styður gildi fjölskyldunn-
ar,“ sagði einn þeirra við Reuters.
Aðrir voru ekki eins himinlifandi.
Mariela Belski, formaður Amnesty
International í Argentínu, kallaði
höfnun frumvarpsins „ófyrirgefan-
legt skref aftur á við“ og bætti við:
„Löggjafarmenn kusu í dag að snúa
baki við hundruðum þúsunda
kvenna og stúlkna sem hafa barist
fyrir kynferðis- og líkamsréttindum
sínum.“
Fóstureyðinga-
frumvarp fellt
AFP
Barátta Stuðningsmenn lögleiðingar fóstureyðinga hugga hver annan í
fyrrinótt eftir að frumvarpinu var hafnað á þingi Argentínu.
„Ófyrirgefanlegt skref aftur á við“
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Fjölmargir almennir borgarar, þar á
meðal börn, létu lífið í loftárás á far-
þegarútu í bænum Dahyan í Sa’ada-
sýslu í norðurhluta Jemens í gær að
sögn Alþjóðanefndar Rauða kross-
ins. Tala látinna hefur ekki verið
staðfest en sjónvarpsstöð Húta, sjía-
íslömsku uppreisnarhreyfingarinnar
sem ræður yfir norðvesturhluta
Jemens, sagði að 39 hefðu látið lífið
og 51 særst, aðallega börn. Rauði
krossinn taldi lík 29 barna og 48
særða, þar af 30 börn.
Hernaðarbandalag jemensku
ríkisstjórnarinnar undir forystu
Sáda neitaði í fyrstu ábyrgð en
gekkst síðan við árásinni og sagði
hana hafa verið „réttlætanlega hern-
aðaraðgerð“ sem ætlað hefði verið að
svara eldflaugaárás Húta á borgina
Jizan í Sádi-Arabíu á miðvikudaginn.
Í þeirri árás tókst Sádum að skjóta
niður eldflaug Húta áður en hún
komst til Jizan. Einn Jemeni lést og
ellefu særðust þegar brot úr eld-
flauginni féllu til jarðar á byggð fyrir
neðan.
Að sögn sjálfstæða rannsóknar-
hópsins Yemen Data Project gerði
hernaðarbandalag Sádi-Arabíu og
Sameinuðu arabísku furstadæm-
anna 258 loftárásir á Jemen í júní-
mánuði einum. Þar af var um þriðj-
ungur árásanna á byggð svæði.
Frétt AFP greinir á móti frá því að
Hútar hafa skotið 165 eldflaugum frá
því borgarastríðið byrjaði árið 2015.
Friðarviðræður í september
„Ég horfi með hryllingi á myndir
og myndbönd frá Sa’ada í Jemen og
ég á ekki til orð. Hvernig getur þetta
verið hernaðarlegt skotmark? Hví er
verið að drepa börn?“ skrifaði Me-
ritxell Relano, umboðsmaður UNI-
CEF á svæðinu, á Twitter-síðu sinni.
Martin Griffiths, erindreki Sam-
einuðu þjóðanna í Jemen, sagði ör-
yggisráði SÞ hinn 2. ágúst að stefnt
væri að fyrstu friðarviðræðum stríð-
andi fylkinga í Jemen í tvö ár. Ætlað
er að fulltrúar þeirra hittist í Genf
hinn 6. september.
AFP
Dahyan Barn liggur á sjúkrahúsi eftir loftárás Sáda á yfirráðasvæði Húta í
Sa’ada í gær. Árásin var svar við elflaugaárás Húta á miðvikudaginn.
„Hví er verið
að drepa börn?“
Eldflaug skotið á rútu í Jemen