Morgunblaðið - 10.08.2018, Qupperneq 8
Líney Sigurðaradóttir
Þórshöfn
Sumarvertíðin hófst um mán-
aðamótin hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja á Þórshöfn og búið að
taka þar á móti um 1.500 tonnum af
makríl. Að sögn skipstjóra Heima-
eyjar var nokkuð löng sigling á
miðin suðaustur af landinu, eða um
12 tímar.
Unnið er nú allan sólarhringinn í
vinnslunni og vertíðarbragur kom-
inn á bæinn.
Ísfélagið hefur verið í töluverð-
um framkvæmdum í vinnslunni á
Þórshöfn og mikil endurnýjun þar á
búnaði til vinnslu uppsjávarfisks og
með því er stuðlað að auknum gæð-
um framleiðslu og meiri sjálfvirkni
í vinnslunni.
Sumarver-
tíðin hafin
á Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney
Í höfn Heimaey og Álsey voru í höfn
um verslunarmannahelgina.
Sérstök regla veldur því að umsögn
nefndar sem fjallar um hæfi umsækj-
enda í dómaraembætti er birt opin-
berlega, að sögn Hafliða Helgasonar,
upplýsingafulltrúa dómsmálaráðu-
neytisins.
Morgunblaðinu var nýverið synjað
um aðgang að álitsgerð nefndar heil-
brigðisráðherra sem mat hæfni um-
sækjenda um Embætti landlæknis. Í
svari velferðarráðuneytisins, sem úr-
skurðarnefnd um upplýsingamál
staðfesti síðan, sagði að réttur al-
mennings til aðgangs að gögnum um
málefni starfsmanna næði ekki til
gagna í málum sem vörðuðu umsókn-
ir um starf, framgang í starfi eða
starfssamband að öðru leyti. Því væri
ráðuneytinu hvorki heimilt að veita
aðgang að niðurstöðum hæfninefnd-
arinnar né upplýsingar um hvernig
umsækjendur röðuðust samkvæmt
mati nefndarinnar.
Umsagnir hæfisnefnda um dóm-
araembætti eru jafnan birtar opin-
berlega og Hafliði segir eðlilega
skýringu á því. „Í áttundu grein
reglna um störf dómnefndar, sem
fjalla um hæfi umsækjenda í dóm-
araembætti, er kveðið á um að dóms-
málaráðherra skuli birta umsögn
nefndarinnar um umsækjendur um
dómaraembætti í heild á vefsíðu
ráðuneytisins. Þetta er því sérstök
regla sem á bara við um dómara.“
ragnhildur@mbl.is
Sérregla gildir um dómaraembætti
Reglur kveða á um að umsögn hæfisnefndar um dómara sé birt
Morgunblaðið/Golli
Dómarar Skipun þeirra er gagnsæ.
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16
Allir velkomnir
Odee
Boðskort
Sýningaropnun 10. ágúst kl. 14
Sýning í Gallerí Fold 10. – 26. ágúst
„Circulum“
Eyþór Arnalds segir frá því áNetinu að hann hafi verið í út-
varpsviðtali ásamt Heiðu Björg
Hilmisdóttur, formanni velferðar-
ráðs Reykjavíkur og varaformanni
Samfylkingarinnar. Þar hafi Heiða
ítrekað þá skoðun sína að „hátt
byggingargjald hjá
Reykjavíkurborg
hefði engin áhrif á
verð íbúða“.
Um þetta sagði Ey-þór: „Ef þessi
kenning væri rétt
hefðu opinber gjöld
engin áhrif á bens-
ínverð.
Og þá hefðu tolla-
breytingar engin
áhrif á verð á bílum.
Ef þessi nýja hag-fræðikenning stæðist væri best
fyrir borgina að hækka bygging-
arréttargjaldið úr ca 5 milljónum í
50 milljónir á íbúð. Hagnaðinn væri
hægt að nota til að stöðva skulda-
söfnun borgarsjóðs. Og íbúðir í
borginni væru áfram á sama verði.
Ekki satt?
Svo voru það óbyggðu íbúðirnarfyrir lágtekjufólk sem áttu að
vera þúsund í byggingu. Það var
víst mismæli.
Verst að meirihlutinn hefur áður
haldið þessu fram. Voru það líka
mismæli?
Með góðum vilja má telja 276íbúðir í byggingu af þessu
tagi. Það er langt frá því að vera
1.000.
Og enn lengra frá því að vera
3.000, en það var loforð Samfylking-
arinnar fyrir rúmum fjórum árum.“
Hvenær ætlar borgarstjórnar-meirihlutinn að stíga inn í
veruleikann og viðurkenna að fólk
þarf að borga skattana og að það
flytur ekki inn í íbúðir á glærum.
Eyþór Arnalds
Hliðarveruleiki
meirihlutans
STAKSTEINAR
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Veður víða um heim 9.8., kl. 18.00
Reykjavík 11 léttskýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 10 léttskýjað
Nuuk 13 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 25 heiðskírt
Stokkhólmur 27 heiðskírt
Helsinki 29 heiðskírt
Lúxemborg 21 skýjað
Brussel 19 súld
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 16 rigning
París 16 skúrir
Amsterdam 19 skúrir
Hamborg 29 heiðskírt
Berlín 34 heiðskírt
Vín 33 heiðskírt
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 23 þrumuveður
Mallorca 32 léttskýjað
Róm 30 léttskýjað
Aþena 29 heiðskírt
Winnipeg 26 heiðskírt
Montreal 24 skýjað
New York 29 léttskýjað
Chicago 26 léttskýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:04 22:03
ÍSAFJÖRÐUR 4:53 22:24
SIGLUFJÖRÐUR 4:35 22:08
DJÚPIVOGUR 4:30 21:37