Morgunblaðið - 10.08.2018, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga www.alno.is
Illuminate colour
Illuminate colour línan er byggð á lífrænni Acai olíu og hörfræ olíu.
Þessar nærandi olíur eru notaðar til að byggja upp mýkt
og hjálpar við viðgerð á hárinu.
Næringaríka olían er full af omega 3, omega 6 og
öðrum fjölbreyttum vítamínum. Eins og t.d. B1,B2, B3
og Vítamín C+D. Ávinningur þessara efna bjóða
upp á fullkomna blöndu af auknum gljáa og ljóma.
Modus Hár og Snyrtistofa - Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
REF Stockholm er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Sjá nánar á harvorur.is
BAKSVIÐ
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Vöxtur í sölu snjall- og heilsuúra hef-
ur verið með mesta móti síðastliðin
ár. Samkvæmt bráðabirgðaáliti Toll-
stjóra voru flutt inn 6.503 snjall- og
heilsuúr til landsins á fyrri helmingi
ársins. Það er 220% aukning frá
sama tímabili árið 2016.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Hjörvar Freyr Hjörvarsson, vöru-
stjóri síma- og heilsuflokks Elko, að
sprenging hafi verið í sölu á snjall-
úrum árið 2016, en síðan þá hefur
aukningin verið nokkuð stöðug.
Samkvæmt tölum sem Hjörvar sendi
blaðamanni, þá jókst salan 2016 um
138% í þessum vöruflokki, miðað við
árið á undan. Árið 2017 hafi salan
verið með svipuðu móti og 2016 en í
ár sé aukningin um 6%, miðað við
sama tíma í fyrra.
Kippur í kjölfar heilsubyltingar
Aðspurður hvernig þróunin hefur
verið undanfarin ár í sölu á snjall- og
heilsuúrum, segir Hjörvar að hún
hafi verið mjög góð.
„Það var ekki mikið um þessi úr
fyrir 2014, en síðan þá hefur þetta
aukist gríðarlega mikið,“ segir
Hjörvar. „Það var með þessari
heilsubyltingu hér á landi, fólk byrj-
aði að hjóla og hlaupa miklu meira,
sem við sáum mikinn kipp í sölu á úr-
unum. Það var mikil aukning, bæði
árið 2015 en sérstaklega árið 2016.
Síðan þá hefur þetta verið nokkuð
stöðug sala. Fólk er ekki að endur-
nýja þetta jafn oft og símana sína en
við sjáum aftur á móti fleiri sem eru
að nota þessi tæki.“
Orðnir glæsilegir skartgripir
Ríkarður Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Garmin-búðarinnar
tekur í sama streng og Hjörvar.
Hann segir mikla sprengingu í sölu
undanfarin ár og að í fyrra hafi hann
séð merki um að sala dýrari úra væri
meiri.
„Í stað þess að viðskiptavinirnir
séu að kaupa úr sem kosta 25 þús-
und, þá sjáum við þá frekari sölu í
millidýrum úrum,“ segir Ríkarður.
„Dýrustu úrin hjá okkur hafa einnig
selst vel, en það er stöðug sala á
þeim.“
Ríkarður segir að snjall- og heilsu-
úrin séu að færast úr því að líta út
eins og æfingaúr í að verða glæsi-
legri skartgripir sem fólk klæðist
hversdagslega.
„Þróunin hjá okkur virðist vera að
fara frá þessu einfalda bandi, sem
nefnist Vivosmart, sem var vinsæl-
ast hjá okkur og selst enn mjög vel,
yfir í að sölu á úrum sem eru með
flottari skjá og líta meira út eins og
fallegt úr.“
Breidd viðskiptavina mikil
Bæði Hjörvar og Ríkarður eru
sammála um að sala á snjall- og
heilsuúrum hafi færst frá því að vera
einungis fyrir mjög virkt íþrótta- og
útivistafólk, yfir í að vera fyrir alla.
„Í byrjun var þetta mestmegnis
íþróttafólk, hlauparar og aðrir, sem
keyptu þessi tæki hjá okkur,“ segir
Ríkarður. „Þetta hefur færst úr því
að vera fyrir þá yfir í hinn venjulega
mann. Fólk er til dæmis mjög áhuga-
samt um svefn og svefnvenjur hjá
sér. Margir eru að kaupa sér úr fyrst
og fremst út af því, eða til þess að
hafa hvata til þess að labba og hreyfa
sig á hverjum degi.“
Hjörvar segir að árið 2016 hafi sal-
an færst mikið úr því að vera fyrir
íþróttafólk, yfir í að vera fyrir alla.
„Það eru alls konar týpur sem
kaupa sér svona úr, í rauninni allir.
Þú sérð ekki utan á fólki hvort að það
kaupi snjallúr eða ekki,“ segir
Hjörvar.
Garmin-úrin vinsælust
Ríkarður segir að helstu keppi-
nautar Garmin séu ekki endilega
þeir sömu hér á landi og erlendis.
„Maður hefur lítið orðið var við
þessa keppinauta eins og Fitbit, Pol-
ar og Tomtom. Það eru aðallega
Samsung- og Apple-úrin hér heima.
Það eru flott snjallúr, en þegar kem-
ur að sérhæfingu, eins og að ganga á
fjöll, hlaupa, skíða og þess háttar þá
eru þau langt á eftir.“
Hjörvar segir að hjá Elko séu
Garmin enn sterkastir, en að Sam-
sung fylgi þeim fast á eftir.
Tími snjall- og
heilsuúra er kominn
Um 220% vöxtur í innflutningi snjall- og heilsuúra frá 2016
Á fyrrihluta árs
2016-2018
Aukning
milli ára
2016-2017:
124%
2017-2018:
43%
Innflutningur á snjall- og heilsuúrum
Fjöldi fyrstu 6 mánuði
Heimild: Hagstofa Íslands
Samkvæmt bráðabirgðaáliti Tollstjóra
2018: 6.503
2017: 4.537
2016 2.028
2018
2017
2016
Snjallúr Mikil aukning var í sölu
snjall- og heilsuúra árið 2016.
10. ágúst 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 107.0 107.52 107.26
Sterlingspund 137.92 138.6 138.26
Kanadadalur 82.09 82.57 82.33
Dönsk króna 16.635 16.733 16.684
Norsk króna 12.994 13.07 13.032
Sænsk króna 11.928 11.998 11.963
Svissn. franki 107.7 108.3 108.0
Japanskt jen 0.9624 0.968 0.9652
SDR 149.51 150.41 149.96
Evra 124.05 124.75 124.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.356
Hrávöruverð
Gull 1212.35 ($/únsa)
Ál 2026.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.64 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á