Morgunblaðið - 10.08.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Draghálsi 18-26 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – takk@takk.is www.takk.is
fyrir skóla og fyrirtæki
margar gerðir og stærðir
Hlutfall íbúða sem seljast yfir ásettu
verði í fasteignaauglýsingum hefur
hækkað, en í júní seldust um 14%
íbúða á höfuðborgarsvæðinu yfir
ásettu verði, sem er þremur pró-
sentustigum meira en í mánuðinum
áður og fjórum prósentustigum
meira en mánaðarlegt meðaltal nem-
ur síðan 2012. Þetta kemur fram í
nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalána-
sjóðs sem birt var í gær.
Miðgildi kaupverðs 45 milljónir
Í júní síðastliðnum var miðgildi
verðs í útgefnum kaupsamningum
íbúða á höfuðborgarsvæðinu sem
seldar voru á almennum markaði,
44,5 milljónir króna. Það er 1,4%
meira en í sama mánuði í fyrra. Mið-
gildi verðs í fasteignaauglýsingum
var hins vegar ögn hærra, eða 47,9
milljónir króna í júní.
Í skýrslu Íbúðalánasjóðs kemur
fram að vísitala markaðsverðs íbúða
utan höfuðborgarsvæðisins hafi
hækkað talsvert meira en innan
þess. Nemur hækkunin um 14,2%
undanfarna 12 mánuði. Munurinn á
íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu og
utan þess hefur því minnkað undan-
farna 12 mánuði.
Dæmi sem tekið er í skýrslunni
sýnir að meðalfermetraverð í fjölbýli
á Akranesi hefur farið úr því að vera
um 59% af fermetraverði í Reykja-
vík á öðrum ársfjórðungi 2017, í að
vera um 69% af því á sama tímabili í
ár.
Sérbýli hækka meira en fjölbýli
Í maí síðastliðnum hækkaði sér-
býli í verði um 2,8% og nam hækk-
unin í júní 1,7%. Í skýrslunni segir
að þetta séu talsvert miklar hækk-
anir milli mánaða í sögulegu sam-
hengi, en meðaltal mánaðarhækkana
sérbýlis síðan 1994 er um 0,6%. Frá
því í maí 2017 hefur sérbýli hækkað
um samtals 7% meira en fjölbýli.
steingrimur@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignir Frá því í maí 2017 hefur sérbýli hækkað 7% meira en fjölbýli.
14% íbúða seljast
yfir ásettu verði
Miðgildi kaupverðs um 45 milljónir
Atvinnuleysi í júní mældist 3,1%
samkvæmt nýrri vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofu Íslands. Atvinnulaus-
ir voru um 1.700 fleiri en í júní í fyrra
og hlutfall þeirra jókst um 0,8 pró-
sentustig.
Áætlað er að 209.700 manns á aldr-
inum 16-74 ára hafi verið á vinnu-
markaði í júní, sem jafngildir 84% at-
vinnuþátttöku. Þar af voru um 6.400
manns án vinnu og í atvinnuleit.
Vinnuaflið jókst um 3.900 manns
milli mælinga fyrir júní 2017 og 2018.
Vinnuafl sem hlutfall af mannfjölda
lækkaði um 1,4 prósentustig milli
júnímánaða.
Fjöldi utan vinnumarkaðar í júní
var 39.800 og hafði þeim fjölgað um
4.800 manns frá því í sama mánuði í
fyrra.
Alls voru í kringum 111.000 karlar
starfandi í júní og 92.300 konur. Af
atvinnulausum voru um 4.000 karlar
en 2.500 konur.
Atvinnuleysi meðal ungs fólks á
bilinu 16 til 24 ára var 8,1% í júní en
hafði verið 5,1% í júní árið 2017. Sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofu Ís-
lands var árstíðaleiðrétt atvinnu-
leysi, þar sem búið er að leiðrétta
fyrir árstíðabundnum sveiflum, 3,4%
sem er einu prósentustigi hærra en í
júnímánuði í fyrra þegar árstíðaleið-
rétt atvinnuleysi var 2,4%.
Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi
var 3,6% sem er hækkun um 0,2 pró-
sentustig frá sama fjórðungi í fyrra
þegar það mældist 3,4%.
Atvinnuleysi var 3,9% á höfuð-
borgarsvæðinu og stóð í stað milli ára
og 3,0% utan þess á öðrum ársfjórð-
ungi, samanborið við 2,6% á sama
ársfjórðungi árið 2017.
steingrimur@mbl.is
Aukið atvinnuleysi í júní
Atvinnuleysi var 3,1% í júní en hafði verið 2,3% ári áður
Hagtölur Atvinnuleysi jókst um 0,8 prósentustig í júní miðað við í fyrra.
● „Þetta gekk alveg hrikalega vel.
Þetta er mest sótti Innipúki frá upp-
hafi,“ sagði Ásgeir Guðmundsson, einn
af skipuleggjendum Innipúkans en hann
segir að 1.200 miðar hafi selst á hátíð-
ina sem haldin er í Reykjavík. Er það
þriðjungsaukning frá árinu 2016 er 900
manns mættu en gestir voru 1.000 í
fyrra. Ásgeir segir rekstur hátíðar á
borð við Innipúkann ekki gefa vel af sér
fjárhagslega en slíkt umstang sé
skemmtilegt og gott fyrir sálina. „Við
þiggjum smálaun fyrir það í nokkra
mánuði. En Innipúkinn er þannig hátíð
að innkomunni er dreift jafnt á milli
þeirra sem koma fram. Þetta er hálf-
gerð sjálfboðavinna,“ sagði Ásgeir. „Ég
myndi ekki óska mínum versta óvini að
fara út í tónlistarhátíðabransann,“ segir
hann léttur. Innipúkinn er sérstakur að
því leyti að ekki er um neina áhættu að
ræða fyrir skipuleggjendur að sögn Ás-
geirs. „Tónleikastaðirnir njóta góðs af
veitingasölu og þeir greiða allan fastan
kostnað, ásamt styrktaraðilum hátíð-
arinnar, sem í ár voru Kass frá Íslands-
banka og Ölgerðin.“
peturhreins@mbl.is
Aðsókn á tónlistarhátíðina Innipúkann aldrei meiri
Hátíð Innipúkinn sem haldinn var í
Reykjavík var vel sóttur í ár.