Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 Verð frá 93.395 Vitamix blandararnir eiga sér engan jafningja. Mylja nánast hvað sem er. Búa til heita súpu og ís. Hraðastillir, prógrömm og pulse rofi sjá til þess að blandan verður ávallt fullkomin og fersk! Nýjir meistarar eru mættir Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Ascent serían frá Vitamix Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Rússar segjast nú undirbúa eigin mótaðgerðir eftir að Bandaríkja- menn hófu nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi fyrr í vikunni. Ástæðan sem gefin hefur verið fyrir nýju efnahagsþvingununum er árás sem gerð var með rússnesku taugaeitri á rússneska fyrrverandi njósnarann Sergej Skrípal og dóttur hans, Júlíu, í Bretlandi í mars. Skrípal-feðginin komust bæði lífs af en bresk kona, Dawn Sturgess, lést í síðasta mánuði eftir að hafa ásamt kærasta sínum komist í snert- ingu við sams konar eitur. Grunur leikur á um að eitrið sem banaði Sturgess hafi komið úr sama skammti og var notaður á Skrípal- feðginin. Talið er að nýju refsiaðgerðirnar gætu komið í veg fyrir innflutning að andvirði hundraða milljarða ís- lenskra króna til Rússlands. Meðal þess sem kveðið er á um í aðgerð- unum eru takmarkanir á útflutningi tæknibúnaðar til Rússlands sem tal- inn er varasamur með tilliti til ör- yggismála. Ákvörðun byggð á „hlutlægum staðreyndum“ Áætlað er að refsiaðgerðirnar taki gildi hinn 22. ágúst og að haldið verði í enn strangari refsiaðgerðir ef Rússland kemur ekki til móts við kröfur Bandaríkjanna innan 90 daga. Kröfurnar ganga út á að Rúss- land opni vísinda- og öryggisstofn- anir sínar fyrir alþjóðlegum eftirlits- mönnum svo hægt verði að ganga úr skugga um hvort verið sé að fram- leiða þar efnavopn. Ekki er búist við því að Rússar fallist á kröfurnar. „Leikhús fáránleikans heldur áfram,“ sagði Dímítrí Políanskij, einn fulltrúa Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum, um refsiaðgerðirnar. „Engar sannanir, engar vísbending- ar, engin rök, ekkert sakleysi uns sekt er sönnuð, bara getgátur. Að- eins ein regla: Kennum Rússlandi um allt, sama hversu fáránlegt og falskt það er. Bjóðum velkomnar Bandaþvinganir Ameríku!“ Rússar hafa neitað því statt og stöðugt að þeir standi á bak við árás- irnar en Bandaríkjamenn segjast hafa fengið „sannfærandi upplýsing- ar“ frá Bretum um að Rússar séu sekir í málinu. Þá hafi þeir komist að eigin niðurstöðum síðustu helgi og byggi ákvarðanir sínar á „hlutlægum staðreyndum“. AFP Forsetar Donald Trump og Vladimír Pútín hittust í Helsinki í júlí. Illa hefur gengið að bæta samskipti ríkjanna. Refsiaðgerðir „leik- hús fáránleikans“  Rússar bregðast illa við nýjum viðskiptaþvingunum Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Sautján ára drengur sem norska lög- reglan hneppti í varðhald á mánu- daginn var hefur viðurkennt að hafa orðið Sunnivu Ødegård, þrettán ára stúlku sem fannst látin í síðustu viku, að bana. Þetta kom fram á fréttavef norska ríkismiðilsins NRK. Drengurinn segir árás sína á Sunnivu hafa verið handahófs- kennda. Hann hafði áður viðurkennt að hafa farið um staðinn þar sem lík Sunnivu fannst en hafði jafnframt neitað að vera viðriðinn dauða henn- ar. Lögreglan telur nú að drengur- inn hafi beitt Sunnivu ofbeldi á tveimur stöðum: Við steintröppur í íbúðahverfinu við Åvegen 20, stuttu frá fundarstaði líksins, og á öðrum stað þar nálægt. Eftir dauða hennar hafi hann flutt líkið þangað sem það fannst. Lögreglan segir ekkert benda til þess að drengurinn hafi átt sér vitorðsmann í morðinu. Morð Sunniva Ødegård fannst látin skammt frá heimili sínu í Varhaug. Viðurkenndi morðið á Sunnivu Ødegård  Segir morðið handahófskennt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.