Morgunblaðið - 10.08.2018, Blaðsíða 27
ið og dafnað frá stofnun, rétt eins og
Kornið.
Jón Þorkell er góðtemplari, Must-
erisriddari og var lengi gjaldkeri stúk-
unnar.
Jón Þorkell segist fyrst og fremst
vera heimilis- og fjölskyldumaður. Þau
hjónin hafa ferðast töluvert, innan-
lands sem utan, en sumarbústaður fjöl-
skyldunnar sinnir óneitanlega stóru
hlutverki í lífi hennar: „Við byggðum
okkur sumarhús á föðurleifð og
bernskuslóðum eiginkonunnar, í landi
Stóru-Markar undir Vestur-
Eyjafjöllum árið 1979 og höfum sótt
mikið þangað öll fjölskyldan, allan árs-
ins hring. Þarna höfum við stundað
mikla skógrækt um áratuga skeið og
stórfjölskyldan hefur átt þarna ótal
skemmtilegar og ógleymanlegar sam-
verustundir í gegnum tíðina.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Þorkels er Ragn-
heiður Guðný Brynjólfsdóttir, f. 11.1.
1947, framkvæmdastjóri og húsfreyja.
Hún er dóttir Brynjólfs Úlfarssonar, f.
12.2. 1893, d. 6.3. 1979, bónda í Stóru-
Mörk, og k.h., Ólafíu Guðlaugar Guð-
jónsdóttur, f. 28.9. 1902, d. 11.3. 2002,
húsfreyju í Stóru-Mörk.
Börn Jóns Þorkels og Ragnheiðar
Guðnýjar eru Rögnvaldur Þorkelsson,
f. 23.4. 1970, bakarameistari og fjár-
festir, búsettur í Reykjavík en kona
hans er Noot Janaup húsfreyja og er
dóttir hans María Guðný, f. 2000;
Brynjólfur Smári Þorkelsson, f. 9.12.
1975, bakarameistari og forstjóri Fast-
eignasölu Reykjavíkur, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Sylvía Guð-
rún Waltersdóttir fasteignasali og á
hann tvo syni frá fyrra hjónabandi,
Brynjólf Þorkel, f. 2000, og Valdimar
Pál, f. 2001, en sonur Brynjólfs og Syl-
víu er Kristófer Logi, f. 2009, og Ásta
Guðlaug Þorkelsdóttir, f. 28.7. 1979,
forstjóri Stúdíó brauðs og fjárfestir en
maður Ástu er Steindór Steindórsson
framkvæmdastjóri og eru börn þeirra
Ragnheiður Perla, f. 2008; Baltasar
Smári, f. 2011, og Þorkell Aron, f.
2018..
Bróðir Jóns var Sturla Rögnvalds-
son, f. 27.10. 1953, 31.5. 2012, bifvéla-
virki og framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, var kvæntur Auði Kristrúnu
Viðarsdóttur og er sonur hans frá
fyrra hjónabandi Hjörtur, f. 1972, en
synir hans og Auðar eru Viðar, f. 1982,
Rögnvaldur, f. 1984, og Agnar, f. 1987.
Foreldrar Jóns: Rögnvaldur Þor-
kelsson, f. 23.9. 1916, byggingaverk-
fræðingur í Reykjavík, á 102. aldurs-
ári, og k.h., Ásta Rögnvaldsdóttir, f.
31.1. 1922, d. 6.1. 1982, húsfreyja.
Jón Þorkell
Rögnvaldsson
Sigríður Pjetursdóttir
húsfr. í Rvík
Sveinn Sigfússon
kaupm. í Rvík
Sigríður Sveinsdóttir
húsfr. á Akureyri
Rögnvaldur Snorrason
kaupm. og útgerðarm. á Akureyri
Ásta Rögnvaldsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigríður Lovísa Loptsdóttir
húsfr. á Akureyri, systurdóttir
Margrétar, langömmu
Jórunnar Viðar tónskálds
Snorri Jónsson
skipasmíðam. og kaupm. á Akureyri
Margrét
Sigurjónsdóttir
Rist húsfr. á
Akureyri
Sigurjón Lárusson
Rist vatna-
mælingamaður
í Rvík
Rannveig Rist
forstjóri Alcan
á Íslandi
Anna Stefanía
Þorkelsdóttir
húsfr. í Glæsibæ
og síðar í Kanada
Páll Þorkelsson kaupm. og tónlistarm. í Rvík
Gísli Þorkelsson yfirverkfr. hjá Málningu
Sigurður Þorkelsson verkfr. og
varapóst- og símamálastjóri
Einar Þorkelsson yfirverkfræðingur
og forstjóri í Rvík
igurður Hlíðar
yfirdýralæknir
og alþm. í Rvík
SJóhann S.Hlíðar pr. í
Eyjum, Neskirkju og
í Kaupmannahöfn
Ingólfur
ögnvaldsson
verkstj. hjá
Vélsmiðjunni
Hamri
R
Rögnvaldur
Ingólfsson
dýralæknir og
deildarstjóri
Matvæla-
eftirlits
mhverfis- og
heilbrigðis-
stofu
Reykjavíkur
U
Ingólfur
Rögnvaldsson
læknir
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Laxárdal og í Hafnarfirði
Einar Einarsson
b. í Laxárdal og smiður
og organisti í Hafnarfirði,
af Laxárdalsætt
Rannveig Einarsdóttir
húsfr. í Rvík og Akureyri
Þorkell Þorkelsson
dr.phil. og veðurstofustj., í Rvík og Akureyri
Ingibjörg Gísladóttir
húsfr. í Flatatungu
Margrét
Pálsdóttir
húsfr. á
Hofs-
stöðum
Sigurður Björnsson fv.
bæjarverkfr. í Kópavogi
Björn Símonarson
búfræðikandidat og
kennari við Bænda-
skólann á Hólum
Anna
Björnsdóttir
húsfr. í Hofs-
staðaseli
Pálína
Björnsdóttir
ljósmóðir
í Syðri-
Brekkum í
Akrahreppi
Hermann
Jónasson
forsætis-
ráðherra
Steingrímur
Hermannsson
forsætisráðherra
Guðmundur
Steingrímsson
fyrrv. alþm.
Þorkell Pálsson
hreppstj. í Flatatungu í Skagafirði
Úr frændgarði Jóns Þorkels Rögnvaldssonar
Rögnvaldur Þorkelsson
yfirverkfr. hjá Rvíkurborg
og framkvstj. í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Er ferðavagninn rafmagnslaus?
TUDOR TUDOR
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
örugg
t
start
með
TUDO
R
Frístunda rafgeymar
í miklu úrvali,
AGM þurr rafgeymar
eða lokaðir
sýrurafgeymar.
Eyjólfur Guðsteinsson fæddistí Reykjavík 10.8. 1918. For-eldrar hans voru hjónin
Guðsteinn Eyjólfsson klæð-
skerameistari og kaupmaður í
Reykjavík, og Guðrún Jónsdóttir,
húsfreyja og hannyrðakona.
Foreldrar Guðsteins voru Eyjólf-
ur Björnsson, bóndi í Krosshúsum í
Grindavík, og k.h., Vilborg Þor-
steinsdóttir húsfreyja, en foreldrar
Guðrúnar voru Jón Tómasson,
bóndi í Miðhúsum í Hvolhreppi, og
k.h., Hólmfríður Árnadóttir hús-
freyja.
Guðsteinn, faðir Eyjólfs, lærði
klæðaskurð í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn, stofnaði verslun sína við
Grettisgötu 1918 en flutti hana að
Laugavegi 1922. Guðrún móðir Eyj-
ólfs hafði flutt með foreldrum sínum
til Reykjavíkur eftir að bær þeirra
hafði brotnað í Suðurlandskjálfta.
Hún þótti afburða hannyrðakona en
lést ung, 1942.
Systkini Eyjólfs: Hólmfríður
María hálsbindagerðarkona; Jón
Óskar vélsmiður; Kristinn, garð-
yrkjumeistari og listmálari; Sig-
ursteinn, framkvæmdastjóri hjá BM
Vallá; Vilborg húsfreyja; Ársæll,
rafvirki og kaupmaður, og Málfríður
húsfreyja. Þau eru öll látin.
Eiginkona Eyjólfs var Þóra
Hjaltalín, dóttir Svövu Havsteen og
Steindórs Hjaltalín útgerðarmanns
frá Akureyri. Börn Eyjólfs og Þóru
Svava verslunarstjóri, Erna fast-
eignasali og Guðsteinn sparisjóðs-
starfsmaður.
Eyjólfur fetaði í fótspor föður
síns, nam klæðskeraiðn og starfaði
síðan alla tíð við verslun föður síns
við Laugaveg, við innkaup og sölu
herrafatnaðar, fyrst við hlið föður
síns, síðar ásamt Hólmfríði, systur
sinni, og loks í félagi við börn henn-
ar. Hann starfaði því við þetta vin-
sæla og virðulega fyrirtæki, Verslun
Guðsteins Eyjólfssonar, í rúm 70 ár.
Fyrirtækið var honum ávallt of-
arlega í huga, afkoma þess og hagur
starfsfólksins, sem margt hafði fylgt
honum og fyrirtækinu um áratuga
skeið
Eyjólfur lést 22.9. 2004.
Merkir Íslendingar
Eyjólfur Guðsteinsson
85 ára
Elín Sæmundsdóttir
Guðný Erla Eiríksdóttir
80 ára
Erna Gréta Ólafsdóttir
Snorri S.Ó. Vestmann
Þórarinn Jakobsson
Þórhanna Guðmundsdóttir
75 ára
Jón Magngeirsson
Ólafur Loftsson
70 ára
Álfheiður Sigurðardóttir
Árni Jóhannesson
Evald E. Sæmundsen
Gísli Kristjánsson
Harpa Andersen
Ingibjörg Óskarsdóttir
Jón Þorkell Rögnvaldsson
Magnúsína Valdimarsdóttir
Sigþrúður B. Stefánsdóttir
Sigþrúður Guðmundsdóttir
Viktor Símon Tómasson
60 ára
Aðalbjörg Ólafsdóttir
Ágúst Ástráðsson
Elín Anna Hermannsdóttir
Fanný Þóra Erlingsdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Ingunn Baldursdóttir
Regína Helgadóttir
Sverrir Guðmundsson
Valdís Sigrún Larsdóttir
50 ára
Adam Zolnierczuk
Auður Eggertsdóttir
Ágúst Ómar Halldórsson
Berglind Ágústsdóttir
Bogdan Pigiel
Dalla Jóhannsdóttir
Davíð Þ. Magnússon
Elfar Bergþórsson
Grétar Sigurjónsson
Hermann Aðalsteinsson
Hlín Ingólfsdóttir
Kristjana R. Magnúsdóttir
Ólafur Hans Grétarsson
Sveinn Pálmi Hólmgeirsson
Þórir Jónsson
40 ára
Adrian Adam Gromadzinski
Aivars Dzelme
Ari Benóný Malmquist
Berglind Magnúsdóttir
Elena S. Aleksandrova-
Kamenova
Elín Sigríður Eggertsdóttir
Erla Dan Jónsdóttir
Ernst Christoffel Verwijnen
Gylfi Þór Pálsson
Haukur T. Hafsteinsson
Jie Hao
Jónína G. Höskuldsdóttir
Kristmundur S. Gestsson
Monika Pudo
Ólafur Ingi Kjartansson
Renata Borucka
Ryan Eric Johnson
Sigríður Ólöf Halldórsdóttir
Sujanya Kumklangdon
Sævar Eyjólfsson
30 ára
Abigail Charlotte Cooper
Bjarki Már Gunnarsson
Bjarni Kjartansson
Bryndís Dagmar Jónsdóttir
Damian Pawel Pielacha
Guðmundur H. Friðriksson
Guðrún Ósk Sigurðardóttir
Gunnar Jónsson
Helga Línberg Ásgeirsdóttir
Högni Guðjón Elíasson
James Charles Mack
Margita Keire
Maria Kristjánsdóttir
Uldis Buss
Til hamingju með daginn
30 ára Unnur ólst upp í
Mosfellsbæ, býr í Braut-
arholti í Skagafirði, lauk
prófi í ferðamálafræði frá
Hólum og er hótelstjóri í
Hótel Varmahlíð.
Maki: Stefán Gísli Har-
aldsson, f. 1985, verktaki.
Börn: Marta Fanney, f.
2013, og Ólafur Árni, f.
2015.
Foreldrar: Jónína Guðný
Árnadóttir, f. 1963, og
Gottsveinn Gunn-
laugsson, f. 1960.
Unnur
Gottsveinsdóttir
30 ára Sara Björg er
hjúkrunarfræðingur á
Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja.
Maki: Einar Páll Pálsson,
f. 1986, starfsmaður hjá
Reykjanesbæ.
Dætur: Kamella Sif, f.
2007, og Kristín Svala, f.
2009.
Foreldrar: Sigrún Bryndís
Gunnarsdóttir, f. 1954, og
Pétur Jónsson, f. 1963.
Fósturfaðir: Hjörleifur Ing-
ólfsson, f. 1940, d. 2006.
Sara Björg
Pétursdóttir
30 ára Perla ólst upp í
Hafnarfirði, býr í Reykja-
vík, lauk BSc-prófi í ferða-
málafræði frá HÍ og er
ferðaráðgjafi hjá Nodic
Visitors.
Maki: Guðmundur Lúther
Hallgrímsson, f. 1987,
framkvæmdastjóri Bun-
galo.is.
Foreldrar: Laura Sch.
Thorsteinsson, f. 1954,
hjúkrunarfræðingur og
Magnús Pálsson, f. 1953,
viðskiptafræðingur.
Perla
Magnúsdóttir