Morgunblaðið - 10.08.2018, Side 29

Morgunblaðið - 10.08.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Einhver óróleiki ríkir á vinnustað þín- um og þér finnst erfitt að átta þig á stöðu mála. Hafðu hægt um þig þar til öldurnar lægir og ræddu þá málið við yfirmann þinn. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú færð einhverjar meiriháttar fréttir sem lyfta þér upp í hæðir. Þú ættir að gera þér glaðan dag með einhverju móti. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að halda vel á spilunum ef þér á að takast að ná til þín verkefni sem þú hefur mikinn áhuga á. Þér mun ganga vel og allt sem þú gerir mun skila góðum ár- angri. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Dagurinn einkennist af hávaða og látum og ekkert lát virðist á ójafnvægi fólks. Sýndu þolinmæði og ekki örvænta. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þeir eru margir, sem vilja ná tali af þér, og þú átt að gera þitt besta til þess að geta hlustað á hvern og einn. Hvaðeina sem þú tekur þér fyrir hendur í dag mun færa þér ómælda hamingju og ánægju. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að ganga ekki of langt í þrjósku í samskiptum við aðra því að það gæti valdið óbætanlegum skaða. Mundu að sá vægir sem vitið hefur meira. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu hugmyndir í stjórnmálum, trú- málum og heimspeki ekki koma þér úr jafn- vægi í dag. Gefðu þér tíma til þess að finna fegurðina í kringum þig og njóta hennar sem best. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Samræður við maka þinn eða áhrifamikinn einstakling gætu komið þér í opna skjöldu í dag. Reyndu að forðast átök og koma auga á þinn þátt í því sem aflaga fer í samskiptum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert óvenju djarfur í orðum þínum og gerðum í dag. Þér gengur allt í haginn, ef þú bara gætir þess að velta mál- unum vandlega fyrir þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Varastu að láta aðra ráðskast með líf þitt þótt þeir þykist vita betur. Leit- aðu aðstoðar ef eitthvað vefst fyrir þér. Njóttu hinna smærri sigra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur lagt hart að þér und- anfarið og ættir því að leyfa þér að slaka svolítið á í dag. Hlustaðu vel á líkama þinn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Fróðleiksfýsnin hefur náð tökum á þér svo láttu einskis ófreistað til að svala henni þótt nú sé sumar og sól. Hafðu augun opin fyrir nýjum og spennandi tækifærum. Það er merkilegt hve mjög mann-eskjan þráir linnulaust breytt ástand. Víkverji snýr brátt úr vinnu í skóla og hlakkar mikið til. Hann er þó alls ekki ósáttur við líf sitt sem vinn- andi einstaklingur. Málið er einfald- lega að hann á afar erfitt með að njóta augnabliksins. x x x Þegar Víkverji leiðir hugann að þvíþá man hann óljóst eftir síðast- liðnum apríl. Þá sat Víkverji sveittur á Þjóðarbókhlöðunni, reyndi að leggja á minnið hvert einasta orð sem Dante Aligheri hafði ritað, hafði sig allan við til að átta sig á tengslum skáldsögu Andra Snæs, Love Star, við nútímann og horfði löngunar- augum út um gluggann þar sem sólin skein. Þá gat Víkverji ekki beðið eftir því að leggja bækurnar á hilluna og mæta til vinnu. x x x Þessar endurminningar skipta Vík-verja þó ekki miklu máli og hann hlakkar enn til að snúa aftur í skól- ann. Víkverji er mannlegur og þráir því sífellt breytt ástand. Ef honum er heitt vill hann að sér sé kalt, ef hann er í gleðskap vildi hann óska þess að hann væri einn á göngu um hálendið, ef hann er á stefnumóti þráir hann ekkert heitar en að ræða við móður sína. x x x Hvaðan kemur þessi árátta eigin-lega? Það er stundum eins og nútímafólki sé skipað að vera sífellt á hreyfingu, alltaf að leita lengra eða leita í eitthvað annað. Við stöldrum ekki við en erum á sífelldum þeytingi. x x x Mannkynið er þó ekki alveg glataðenn. Til er fólk sem nær með undraverðum hætti að lifa í hinu svo- kallaða núi. Fólk sem hugleiðir, stundar jóga og einbeitir sér að hverjum einasta andardrætti. Þetta fólk nýtur augnabliksins og segir að fortíð og framtíð séu ekki til, einungis núið. Víkverji veltir því fyrir sér hvort þetta fólk sé af öðrum heimi eða hvort hann geti hugsanlega, með nægilegri þjálfun, orðið einn af þeim. vikverji@mbl.is Víkverji En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. (Jóh: 1.12) Misty FANTASIE Haldari 6.990 kr. Buxur 3.880 kr. Dekraðu við línurnar Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is | Opið kl. 10-18 virka daga Álaugardaginn birti JósefínaMeulengracht Dietrich sjöunda kapítulann í matreiðslubók sinni. Hann fjallar um sjálfan fæðuhring- inn: Steikurnar yfir og allt um kring, indæla rétti og fína, set ég nú matreiddar saman í hring með sósum á diskana mína. Jósefína Meulengracht segir frá því að nú hafi hún ort fimmskeytlu um öryggis- og varnamál: Bjart er yfir heiminum og býsna mikil sól. Bóseindina passa ég og gæti hennar vel, með afsagaða haglabyss‘í einum ruggustól út‘í garði svo að enginn taki hana og stel- i. Fyrir nokkrum dögum birtust myndir af holóttum vegi fyrir Vatnsnes sem gerði Hallmund Krist- insson að sjáanda á Boðnarmiði: Enn ég nú og aftur segi, á það skyldi miða: Holurnar á Vatnsnesvegi verða menn að friða! Gamlar líkt og góður afi, gæddar tvíræðri mildi, er því trúlegt að þær hafi ómælt varðveislugildi. Og ekki stóð á viðbrögðunum. Jón Atli Játvarðarson: Holur varða Vatnsnesið, ég virði það og kenni. Af einni tekur önnur við og einhver svo af henni. Hreinn Guðvarðarson bætti við: Á Vatnsnesinu í vægri golu og vætutíð fer allt í svað Þar fær maður högg í holu, helv.er að vita það. Hafdís Hafliðadóttir lagði þetta til málanna: „Þessar holur eru orðnar svo gamlar, að það verður að varðveita þær.“ Kristjana Sigríður Vagnsdóttir talaði um „launholuna“: Friðið holur, fræknu menn, fáir yfir gráta, í lágnættinu líkar enn launholu að máta. Helgi Ingólfsson breikkaði yrkisefnið: Gæta þurfum hafsins hliða. Held ég þá að líka yrði ætíð sjálfsagt einnig að friða öldurnar á Breiðafirði. Og hélt áfram: Fjölmargt verk í friðun bíður. Finnst mér eitt hér af sama meiði: Friða öllu síst þarf síður sandkornin á Arnarvatnsheiði. Halldór Blöndal halldorblondal@mbl. is Vísnahorn Matarást kattarins og Vatnsnesvegur Í klípu „ÞVÍ HRAÐAR SEM ÞÚ EKUR ÞVÍ HRAÐAR HLEÐST HANN.,“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAÐ ER NÝJA SAUMAVÉLIN MÍN AÐ GERA Á MIÐJU SPILABORÐINU?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... smitandi. ÉG HEYRÐI SORGLEGA SÖGU NÝLEGA VAR HÚN UM KÖTT SEM VILDI LÁTA KLÓRA SÉR Á EYRUNUM? VAR HÚN UM SVANGAN KÖTT? HÚN HAFÐI EKKERT AÐ GERA MEÐ ÞIG ÞAÐ ER SORGLEGT MIG LANGAR Í KÖKU FRÁ SVARTASKÓGI OG BANANASPLITT! ÞÚ MÁTT FÁ SAMBLAND! Í ALVÖRU? JÁ! HÉRNA ER SVARTUR BANANI!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.