Morgunblaðið - 10.08.2018, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
SKECHERS ON THE GO DÖMUSANDALAR MEÐ LÉTTU
OG MJÚKU GOGA MAX INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41
DÖMUSKÓR
KRINGLU OG SMÁRALIND
7.995
Tilraunir og tvístrun í tónlistinni
Morgunblaðið/Valli
Æfingamaraþon Hljóðfæraleikarar kammersveitarinnar Elju hafa æft stíft undanfarið. Öllu verður tjaldað til á tónleikunum; Brot úr minni og Tvístrun.
Kammersveitin Elja og Ung Nordisk Musik blása til tvennra tónleika með verkum ungra, íslenskra
tónskálda Sjö skáldanna sýna hvað í þeim býr á árlegri tónlistarhátíð UNM í Bergen í ágústlok
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
„Við vildum gera Ung Nordisk Mus-
ik, UNM, sýnilegri á Íslandi en ver-
ið hefur og um leið tónlistarhátíðina,
sem samtökin standa fyrir á hverju
ári og haldin verður að þessu sinni í
Bergen í Noregi í lok ágúst. Þar
verða að venju flutt verk 35 tón-
skálda, þrítugra og yngri, frá öllum
Norðurlöndunum. Í hópnum eru sjö
tónskáld frá Íslandi, sem valin voru
til þátttöku úr um fimmtíu umsókn-
um. Þegar við höfðum spurnir af að
kammersveitin Elja hygðist halda
tónleika í sumar datt okkur í hug að
fá liðsmenn hennar til að flytja verk
þeirra á tónleikum,“ segir Pétur
Eggertsson, tónskáld og einn skipu-
leggjenda tónleikanna hér heima.
Hann, ásamt Ragnari Árna Ólafs-
syni, gítarleikara, og Sóleyju Sig-
urjónsdóttur, tónskáldi, situr í
stjórn Íslandsdeildar UNM, sem
hefur verið starfrækt frá árinu 1974
í því skyni að koma ungum og efni-
legum, íslenskum tónskáldum á
framfæri.
„Markmið samtakanna er að
hjálpa ungu tónlistarfólki að byggja
upp atvinnusambönd, kynnast koll-
egum sínum á Norðurlöndunum og
sjá og heyra verk hvert annars flutt
á tónlistarhátíð UNM,“ segir Pétur,
sem sjálfur var einn sjö útvalinna í
fyrra og fékk tónverk sitt flutt á há-
tíðinni sem þá var í Reykjavík eins
og alltaf á fimm ára fresti.
Nánd við áhorfendur
Kammersveitin Elja er skipuð
ungum hljóðfæraleikurum, sem
flestir hafa þegar skapað sér sess
sem einleikarar, hljómsveitarspil-
arar, hljómsveitarstjórar eða list-
rænir stjórnendur. Leiðarstef Elju
er að bjóða upp á kraftmikinn og lif-
andi tónlistarflutning með nánd við
áhorfendur og að túlka allar tónlist-
arstefnur og -form.
Í þeim anda eru tvennir tónleikar
Elju um helgina í Tjarnarbíói. Þeir
fyrri, Brot úr minni, kl. 20 í kvöld,
hampa tónskáldunum Halldóri Eld-
járn og Jófríði Ákadóttur. „Nýtt
verk, sem Halldór samdi og tileink-
aði Elju verður frumflutt, en Jófríð-
ur flytur, ásamt sveitinni, nokkur
laga sinna í nýjum búningi. Hvorugt
hefur skrifað mikið fyrir hljóð-
færahópa þannig að ég er spenntur
að heyra hvernig þau nýta tækifær-
ið. Tónleikarnir eru skemmtileg
blanda því Elja flytur einnig verk
eftir gömlu meistarana, Joseph
Haydn og Arnold Schönberg,“ segir
Pétur.
Tónleikarnir Tvístrun, kl. 19.30
annað kvöld, eru samstarfsverkefni
UNM og kammersveitarinnar Elju
og hverfast um tónskáldin sjö, sem
senn halda til Bergen til að fylgja
tónverkum sínum eftir. Að sögn
Péturs verða flutt verk tveggja ann-
arra, sem einnig voru valin í um-
sóknarferlinu.
„Tvístrun er í rauninni tvíþættur
viðburður, annars vegar tónleikarn-
ir og hins vegar opnar pallborðs-
umræður á undan um stöðu hátíð-
arinnar og hvernig styrkja megi
starf UNM, sem er gríðarlega mikil-
vægt fyrir bæði unga flytjendur og
tónskáld. Samstarf Elju og samtak-
anna er frábært tækifæri fyrir tón-
skáldin til að fá framúrskarandi
hljóðfæraleikara til að flytja verk
sín og fyrir þá að takast á við ný
verk jafnaldra sinna og samlanda.
Síðar er meiningin að ræða meira
um vinnuferli og að gefa fjöl-
breyttum hópi listamanna kost á að
vinna innan ramma UNM sem og
með hljóðfæraleikurum í Elju,“ seg-
ir Pétur og upplýsir að jafnframt
verði tilkynnt hvaða ungu tónskáld
voru valin til að taka þátt í tónlist-
arhátíð UNM á næsta ári í Piteå í
Svíþjóð.
Tónskáldin fengu að ráða
„Verkin sem flutt verða á tónleik-
unum, flest undir stjórn Bjarna Frí-
manns Bjarnasonar, eru ekki þau
sömu og flutt verða í Bergen, nema í
einu tilviki. Slíkt hefði enda ekki
verið hægt, til dæmis er eitt samið
fyrir sinfóníuhljómsveit, sem við
hefðum engan veginn getað mann-
að. Tónskáldin fengu að ráða hvaða
Hólahátíð á Hólum í Hjaltadal hefst
á morgun og stendur til sunnudags.
Þar er boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá með tónleikum, hátíðar-
samkomum og hátíðarmessu.
„Hólahátíð er hugsuð sem hátíð
fyrir allt kirkjufólk í Hólastifti sem
nær frá Hrútafirði allt austur í Álfta-
fjörð,“ skrifar sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir, vígslubiskup á Hólum,
í tilkynningu.
Hátíðin hefur alltaf eitthvert meg-
inþema og í ár er það 100 ára afmæli
fullveldis Íslands sem verður minnst.
Af því tilefni hefur fermingar-
börnum úr nágrenninu verið boðið
að semja stutt erindi sem ber yfir-
skriftina: Hvaða þýðingu hefur full-
veldi Íslands fyrir þig?
Á morgun, laugardag, hefst píla-
grímaganga eftir Hallgrímsveginum
frá Gröf á Höfðaströnd heim að Hól-
um. Lagt af stað frá Grafarkirkju kl.
9 og komið að Hólum um kl. 16. Á
sunnudag er kl. 11 boðið upp á tón-
leikhús þar sem bréf Halldóru Guð-
brandsdóttur eru í forgrunni.
Klukkan 14 er hátíðarmessa í Hóla-
dómkirkju og hátíðasamkoma í
Hóladómkirkju kl. 16:30 þar sem
Einar Kr. Guðfinnsson, formaður
100 afmælisnefndar um fullveldi
Íslands, flytur ræðu.
Fullveldi í fyrirrúmi á Hólahátíð
Kirkja Horft heim til Hóla í Hjaltadal.
Ný bandarísk rannsókn leiðir í ljós
að karlkyns leikari í aðalhlutverki
getur skilað kvikmynd 12% hærri
tekjum en fari kona með aðalhlut-
verkið. Rannsóknin var unnin á
vegum Háskólans í N-Karólínu og
birt í tímaritinu Applied Economics
Letters. Sama rannsókn leiðir einn-
ig í ljós að hafi aðalleikarinn unnið
Óskar eða Golden Globe-verðlaun
hefur það jákvæð áhrif á miðasölu,
en slíkra áhrifa gætir ekki þegar
kemur að leikkonum í aðalhlut-
verki. Rannsóknin nær til met-
sölumynda áranna 1990 til 2018.
Í samtali við The Times segir
Julianne Treme,
prófessor við fyrr-
nefndan skóla og
einn höfunda
rannsóknarinnar,
að hún myndi ekki
ráðleggja leik-
stjórum að ráða
þekktar leikkonur
fyrir hærri laun þar sem kvenkyns
kvikmyndastjörnur auki ekki miða-
söluna. „Mér finnst dapurlegt að sjá
að kvenkyns kvikmyndastjörnur
geti hlotið sæg af verðlaunum án
þess að það auki miðasöluna. Þetta
kemur mér samt ekki á óvart.“
Karlkyns leikarar selja fleiri bíómiða
George Clooney