Morgunblaðið - 10.08.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2018
Odee opnar sýninguna
Circulum í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg í
dag kl. 17. „Odee,
Oddur Eysteinn
Friðriksson, hefur
á stuttum tíma
vakið mikla at-
hygli bæði hér
heima og erlendis
fyrir áhugaverða og
umdeilda listsköpun.
Odee vinnur mest með
svokallaða „digital fusion“
eða „visual mashup“ list, sem hann
kallar samrunalist á íslensku. Þar
blandar hann saman efni úr menn-
ingu samtímans og popplist til þess
að skapa ný sjálfstæð verk. Áður en
hann hóf listferil sinn stundaði hann
nám í viðskiptafræði við Háskólann
á Akureyri, með áherslu á markaðs-
fræði og stjórnun,“ segir í tilkynn-
ingu frá sýningarhaldara.
Þar kemur fram að titill sýning-
arinnar vísi í form hringsins sem
listamaðurinn er að vinna með á sýn-
ingunni. „Þegar ég var að vinna að
verkum fyrir sýninguna þá opnaðist
ný vídd fyrir mér. Þessi einfalda
hugmynd að breyta formi verksins í
hringlaga verk í stað ferhyrnds varð
til þess að nýr kafli í mínum
stíl hófst,“ skrifar Odee
um tilurð verkanna.
„Hvert verk er svip-
mynd af þeim degi
sem það er skapað.
Öll verkin eru sam-
settar klippimyndir
úr menningu sem
hefur haft mótandi
áhrif á hann á einn eða
annan hátt. Þessar tákn-
myndir úr menningunni
fléttar hann saman í skipu-
lagða óreiðu sem hann leikur sér svo
með. Verkin á sýningunni eru brædd
í álplötur í New York með sérstakri
tækni. Platan og blekið er hitað upp
þannig að blekið umbreytist í gas og
smýgur inn í yfirborð álsins. Síðan
er verkið húðað með glærri filmu.“
Odee opnar Circulum í Galleríi Fold í dag
Hildur Loftsdóttir
hilo@mbl.is
Emilíana Torrini verður gestasöng-
vari og mun syngja lagið „Gollum’s
Song“ þegar Óskarsverðlaunamynd-
in Hringadróttinssaga – Tveggja
turna tal verður sýnd í fullri lengd í
Eldborgarsal Hörpu í kvöld 10. ágúst,
laugardags- og sunnudagskvöld kl.
19.30. Flytjendur tónlistarinnar eru
auk Emilíönu Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, Kór söngsveitar Fíl-
harmóníu og Barnakór Kársnesskóla.
Hlakkar til að syngja og hlusta
Eins og flestir muna söng Emilíana
lagið „Gollum’s Song“ eða Söngur
Gollris í lok myndarinnar Tveggja
turna tal (2002) sem var önnur mynd-
in af þremur sem Peter Jackson leik-
stýrði eftir samnefndum bókum.
J.J.R. Tolkiens. Tónlistina samdi
Howard Shore og hefur hún hlotið
fjölda verðlauna.
Þetta er í annað skipti sem Emil-
íana syngur lagið á sviði með sin-
fóníuhljómsveit þar sem hún var sjálf
með sinfóníutónleika fyrir rúmum
tveimur árum, og hún segist hlakka
til, og ekki síst til þess að hlusta á sin-
fóníuna spila.
– Er ekki skemmtilegra að syngja
lagið á sviði en í hljóðveri?
„Það er bara allt öðruvísi. Í hljóð-
verinu var ég að heyra það í fyrsta
skipti, sem er alltaf spennandi. Upp-
tökurnar voru í Abbey Road-
stúdíóinu, stúdíói 1. Ég var alein í risa
viðarrými, það var æðislegt,“ segir
Emilíana sem á mjög góðar minn-
ingar frá þessu ævintýri.
Sögðu að ég fengi þetta ekki
– Hvernig kom til að þú varst beðin
um að syngja lagið?
„Þau voru að leita að söngvara eða
söngkonu og það voru alls konar hug-
myndir í gangi. Það var búið að
spyrja fullt af fólk, m.a. Björk og Sig-
ur Rós, en fólk gat ekki gert þetta.
Ég var alls ekki efst á lista hjá þeim,
þau vissu ekki einu sinni af mér. Það
var ekki fyrr en þau fengu fyrsta
diskinn minn, að maður sem heitir
Paul Broucek hafði samband og bað
mig að koma á fund út af Lord of the
Rings,“ útskýrir Emilíana.
„Mér fannst þetta ótrúlega spenn-
andi en það var sagt skýrt við mig að
þau væru að leita að einhverjum
frægum og að ég fengi þetta áreið-
anlega ekki. Ég held að þeir hafa
bara ætlað að fá mig til að syngja
prufuupptöku af laginu, og buðu mér
að koma og prófa að syngja það.
Ég sagðist auðvitað vilja prófa því
ég vildi syngja í Abbey Road-stúdíó-
inu, sem ég hafði ekki alveg séð fyrir
að myndi gerast á mínum tónlistar-
ferli. Ég fór inn og söng lagið og Pet-
er Jackson leikstjóri var þarna á skjá,
allt voða nútímalegt á þeim tíma. Ég
var að tala við hann og Fran Walsh
sem samdi textann, þar sem þau voru
á Nýja-Sjálandi.
Ég man að þau voru að leikstýra
mér í gegnum satellite-sendingiu á
risaskjá í stúdíóinu. Mig langaði að
syngja lagið á minn hátt; svona ljótt-
fallegt, þannig að þetta yrði soldið
óþolandi og fallegt á sama tíma. Mér
fannst það passa við lagið, þetta er
Gollrir. Ég mátti prófa allt og fannst
rosa gaman og ég fór svo heim og
bjóst ekki við að neitt yrði úr þessu
því þau vildu fá súperstjörnu en svo
notuðu þau upptökurnar mínar á end-
anum,“ segir Emilíana sem var að
vonum mjög glöð með það.
Rosalegur aðdáandi bókanna
„Þetta var svo ótrúlega fyndið af
því að við vinkona mín erum svo mikl-
ar bíókonur. Við pöntuðum okkur bíó-
miða á fyrstu Hringadróttins-
myndina í lúxussal, keyptum alla
sjoppuna og lágum þarna eins og
grísir. Ég horfði á myndina og óskaði
þess svo innilega að fá að vera með í
þessu því ég var svo rosalegur aðdá-
andi bókanna og las þær nokkrum
sinnum sem unglingur. Óskin mín var
að ég fengi að vera með, bara á ein-
hvern hátt í grænum speedo-galla
sem eitthvert tré eða hóll. Ég leit á
vinkonu mína og sagði við hana: „Ég
ætla mér að vera í þessu,“ segir Emil-
íana sem sá ósk sína heldur betur
rætast.
– Varstu ekkert feimin að vinna
með Jackson?
„Nei, mér fannst það bara
skemmtilegt. Ég elska að hitta skap-
andi og lifandi fólk. Við vorum bara í
jafningjasamskiptum og þá fer allt
náttúrlega í flæði, það verður ríkjandi
og þá verður margt til,“ segir Emil-
íana sem eignaðist mikið af vinum í
gegnum þetta ævintýri og fór á frum-
sýningar í nokkrum löndum.
Trylltar tilfinningar
„Þetta var líka sérstaklega
skemmtilegt því að ég elska bíómynd-
ir ábyggilega meira en allt. Ég og fað-
ir minn áttum það til þegar ég var
barn að horfa á ótal myndir saman,
og ég líka með stráknum mínum. Bíó
er best. Og líka af því að ég var svo
mikill aðdáandi bókanna. Ég veit ekki
hvort ég hefði meðtekið þetta eins ef
ég hefði ekki verið það. Þá hefðu ver-
ið aðrar ástæður fyrir því að hafa
fundist þetta gaman. En aðdáun mín
á bókunum kom með nýja vídd inn í
þetta.“
– Hvernig finnst þér annars tón-
listin í þessum kvikmyndum?
„Mér finnst hún stórkostleg. Ég
var að keyra í gær og rifja upp lagið á
leið á æfingu, og himinninn var alveg
brjálaður eins og hann er búinn að
vera. Þá finnur maður fyrir þessari
svakalegu náttúru sem er í tónlistinni
og hún vekur einhverjar trylltar til-
finningar inni í manni.“
– Hefur þú sjálf samið fyrir kvik-
myndir?
„Nei, en lögin mín hafa verið mikið
verið notuð í kvikmyndum og ég beð-
in um að syngja. Mér hefur oft boðist
að semja tónlistina við kvikmynd, en
ég var að pæla í öðrum hlutum þá.
Það mun gerast einn daginn ef gott
handrit kemur á borðið,“ segir tón-
listarkonan Emilíana Torrini.
„Það er vonandi næsta skref.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Allt á fullu Æfing í Eldborgarsal Hörpu þar sem Óskarsverðlaunamyndin Hringadróttinssaga – Tveggja turna tal
verður sýnd í fullri lengd og tónlistin úr myndinni leikin undir af sinfóníuhljómsveit, kórum og einsöngvurum.
Vildi að lagið yrði bæði
óþolandi og fallegt
Emilíana Torrini syngur Gollum’s Song í Eldborg Hörpu
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Bíó er best Emilíana Torrini.
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
S V E F N S Ó F A R
TURI
kr. 149.800
frá Innovation Living Denmark
VERSLUNIN ER LOKUÐ UM
VERSLUNARMANNAHELGINA
ICQC 2018-20
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.