Morgunblaðið - 20.08.2018, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 0. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 194. tölublað 106. árgangur
HÁTÍÐIN REYKJAVIK
DANCE FESTIVAL
VÍTAMÍNSPRAUTA
ÓPERUSÖNG-
ÆVINTÝRI
BERTU Á ÍTALÍU
HAUKUR ÚTNEFNDUR
MIKILVÆGASTI LEIK-
MAÐURINN Á EM
SUMARÓPERUHÁTÍÐ 12 SILFUR Í KRÓATÍU ÍÞRÓTTIRFJÖLBREYTT DAGSKRÁ 26
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hluti heræfingar NATO, Trident
Juncture, verður haldinn hér á landi
sem undanfari aðalæfingarinnar sem
hefst 25. október nk. í Noregi. Mun
hún standa í tvær vikur og verður
stór í sniðum. Æfingunni er ætlað að
efla sameiginlegar varnir bandalags-
ríkjanna og um 40.000 hermenn frá
meira en þrjátíu löndum munu taka
þátt og 120 flugvélar, 70 skip og
10.000 farartæki verða virkjuð í
henni.
Sveinn H. Guðmarsson, upplýs-
ingafulltrúi utanríkisráðuneytisins,
segir nákvæma útfærslu æfingarinn-
ar á Íslandi ekki liggja fyrir, en von
er á skipum NATO-þjóða til Íslands
áður en þau halda til Noregs til æf-
inga í krefjandi aðstæðum. Þegar að-
alæfingunni í Noregi er lokið verður
haldin svonefnd skrifborðsæfing þar
sem netvarnir verða í brennidepli.
Heræfing hefst á Íslandi
NATO æfir viðbrögð við hvers konar ógn Meginhluti æfingarinnar í Noregi
MÆfing NATO hefst á Íslandi »10
Morgunblaðið/ÞÖK
NATO Meira en 30 lönd taka þátt.
Daglegt líf fólksins í landinu leitar nú að nýju til jafnvægis og rútínu eftir
sumarleyfi. Skólastarf hefst í vikunni og atvinnulífið rúllar áfram. Nýtt
fiskveiðiár hefst 1. september og sjómenn víða um landið eru að gera klárt
svo leggja megi á djúpið. Jóhann Kristmundsson, stýrimaður á Aðalbjörgu
RE, var að fara yfir og bæta í nótina þegar ljósmyndari hitti hann á
Grandagarðinum í Reykjavík.
Stýrimaðurinn á Aðalbjörgu gerir að nótinni
Morgunblaðið/Hari
„Það er aug-
ljóst að það er
ekki góð meðferð
á almannafé að
setja fólk í þá
stöðu að bjóða
eingöngu upp á
dýrustu lausnina
til að leysa heil-
brigðisvanda,“
sagði Bjarni
Benediktsson
fjármálaráðherra þegar hann var
spurður um greiðslur Sjúkratrygg-
inga Íslands á kostnaði við aðgerðir
á sjúkrahúsum erlendis en höfnun
heilbrigðisyfirvalda á samskonar
aðgerðum á einkasjúkrahúsinu
Klíníkinni í Reykjavík með miklu
minni tilkostnaði fyrir ríkið. Að-
gerð sem kostar 1.200 þúsund hér
er þrefalt dýrari í Svíþjóð. »6
Dýrasta lausnin
Bjarni
Benediktsson
Dómsmálaráðuneytið hefur sett
út til kynningar í samráðsgátt
stjórnarráðsins drög að reglugerð
um heimild Útlendingastofnunar til
að greiða umsækjendum um al-
þjóðlega vernd styrki ef þeir draga
umsóknir sínar til baka eða þeim
verður synjað. Styrkirnir eru til
heimferðar og/eða til að koma fót-
unum undir sig á nýjan leik í heima-
landinu og geta numið allt að 1.000
evrum frá ákveðnum ríkjum en það
svarar til 123 þúsunda króna.
Sigríður Á. Andersen dóms-
málaráðherra segir að styrkirnir
séu forsenda nýs samstarfssamn-
ings við Alþjóðafólksflutninga-
stofnunina sem hefur milligöngu
um flutning fólks. Þetta sé mikil-
vægt samstarf. Nauðsynlegt sé að
hafa skýrar reglur um styrkveit-
ingarnar. »6
Styrktir til að fara
sjálfir aftur heim
AFP
Flótti Það dregur úr kostnaði ríkisins ef
hælisleitandi fer fyrr til síns heima.
Bæjarstjórarnir Aldís Hafsteins-
dóttir í Hveragerði og Gunnar Ein-
arsson í Garðabæ eru oftast nefnd
meðal sveitarstjórnarfólks sem
næsti formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga. Landsþing
þess verður haldið á Akureyri síð-
ari hlutann í september, en þar
mun kjörnefnd leggja fram tillögu
um formann sem þingfulltrúar
kjósa svo um. Öllum er þó frjálst að
bjóða sig fram.
„Ég hef fengið hvatningu víða
frá að undanförnu og er því að
velta þessu alvarlega fyrir mér.
Það er líka gott til þess að vita að
aðrir treysti mér í þetta embætti,“
sagði Aldís Hafsteinsdóttir.
Gunnar Einarsson sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær ýmsa hafa
komið að máli við sig að undan-
förnu og hann væri opinn fyrir
þessu verkefni. Kjörnefnd réði þó
för og hann lyti niðurstöðu hennar;
hver sem hún yrði. „Ég er áfram
um að styrkja sveitarfélögin í sam-
skiptum við ríkið þar sem þau hafa í
ýmsu tilliti farið halloka síðustu ár-
in. Einnig er mikilvægt að brúa
meinta gjá sem hefur verið milli
landsbyggðar og höfuðborgarsvæð-
isins,“ segir Gunnar sem kveðst
ekki líta á formennsku út frá kynja-
sjónarmiðum, heldur því að sá sem í
embættið veljist styrki stöðu sveit-
arfélaganna. »2
Tvö vilja formennsku hjá sveitarfélögunum
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Fyrsta skóflustunga að nýjum
miðbæ á Selfossi verður tekin í lok
september. Kosið var um miðbæinn í
íbúakosningu í Árborg á laugardag
og voru 58,5% hlynntir nýju aðal-
skipulagi vegna miðbæjarins og
39,1% andvígt.
„Það vilja allir íbúar nýjan miðbæ,
en við verðum aldrei sammála um
það nákvæmlega hvernig hann á að
vera. Þetta er skýr niðurstaða og ég
á von á því að þetta hristi samfélagið
saman og að við fáum nú miðbæinn
sem allir hafa beðið eftir,“ segir Leó
Árnason framkvæmdastjóri Sigtúns
þróunarfélags sem stendur að bygg-
ingu miðbæjarins.
Fyrri áfangi tilbúinn 2020
Áformað er að fyrri áfangi verði
tilbúinn um páska árið 2020, en seint
á næsta ári hefst bygging síðari
áfanga. Ráðgert er að miðbærinn
verði tilbúinn árið 2021. Stærsta ein-
staka byggingin í fyrri áfanga er
endurbyggt Mjólkurbú Flóamanna
sem mun hýsa mathöll og skyrsetur
Mjólkursamsölunnar. »4
Skóflustunga í september
Nýr miðbær á Selfossi rís Fyrri áfanga lýkur árið 2020
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Selfoss Íbúar kusu á laugardag.