Morgunblaðið - 20.08.2018, Síða 7

Morgunblaðið - 20.08.2018, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Lögreglumenn á höfuðborg- arsvæðinu þurftu að sinna minnst 130 verkefnum frá því klukkan 19 í laugardagskvöldið og fram á sunnudagsmorgun. Margir voru í bænum á Menningarnótt og tals- vert um ölvun, en verkefnin voru hnífstunguárás, slagsmál meðal ungmenna, innbrotstilraun, ung- lingadrykkja, heimilisofbeldi og akstur undir áhrifum. Mikill við- búnaður var venju samkvæmt vegna Menningarnætur og meðal annars var fjöldi lögreglumanna á ferðinni yfir daginn gangandi í miðborginni. Lögreglan greinir frá því í til- kynningu að nokkuð hafi verið um að fólk væri ósjálfbjarga vegna ölvunar og þá var gripið í taum- ana þegar unglingar voru með áfengi, sem hellt var niður. Tíu manns voru vistaðir í fanga- geymslur lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu vegna ýmissa mála. Ekið á gangandi vegfaranda í Hafnarfirði, sem fékk opið innbrot og var fluttur á slysadeild. sbs@mbl.is Erill á Menning- arnótt  Ölvun, líkamsárás og ekið á vegfarenda Morgunblaðið/Hari Lögregla Hélt reglu við hátíðahöld. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Svavar Gestsson, fyrrverandi ráð- herra og sendiherra, er nýjasti heiðursfélagi Þjóðræknisfélags Ís- lendinga. Hann tók á móti skjali því til staðfestingar á þjóðræknisþingi ÞFÍ sem haldið var á Hótel Natura í Reykjavík í gær. Hjálmar W. Hannesson, formað- ur ÞFÍ, sagði áður en hann afhenti Svavari skjalið að hann hefði um langt árabil verið einn af mátt- arstólpum Þjóðræknisfélagsins og starfs þess. Hann hefði meðal ann- ars setið í stjórn félagsins í sjö ár og verið formaður heiðursráðs ÞFÍ frá upphafi. „Þá er fátt eitt upptalið,“ sagði Hjálmar og minntist sér- staklega aðkomu Svavars sem að- alræðismanns í Winnipeg að fjöl- mörgum viðburðum í Kanada á þúsaldarafmælisárinu 2000. Sem heiðursfélagi situr Svavar í heiðursráði ÞFÍ. Tilgangur þess er að efla starfsemi í þágu tengsla Ís- lendinga við Vestur-Íslendinga og treysta fjárhagsstöðu félagsins. Svavar þakkaði fyrir sig og sagð- ist reyna að standa sig enn betur í þágu félagsins en hingað til. Hann þakkaði fyrir heiðurinn og rifjaði upp að hann hefði fyrst farið á slóð- ir Vestur-Íslendinga með Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta, 1989. „Síðan hef ég verið tengdur þessum heimshluta sterkum tilfinn- ingaböndum,“ sagði hann og lagði áherslu á að eiginkonan Guðrún Ágústsdóttir ætti jafnan hlut í við- urkenningunni. Svavar Gestsson heiðraður Morgunblaðið/Valli Viðurkenning Hjálmar W. Hannesson afhendir Svavari Gestssyni skjalið.  Kjörinn heiðursfélagi Þjóðræknisfélags Íslendinga Nær 6.500 erlendum ríkisborgurum og ríkisfangslausu fólki hefur verið veittur íslenskur ríkisborg- araréttur und- anfarin tíu ár. Þar af eru um 4.500, eða 72% átján ára eða eldri. Þetta kemur fram í svari Sig- ríðar Á. And- ersen dóms- málaráðherra við fyrirspurn Andrésar Inga Jónssonar, þingmanns Vinstri grænna. Flestir fengu ríkisborgararétt árið 2008 eða 914. Árið 2015 fékk 801 ríkisborgararétt, en í fyrra voru þeir 690. Fæstir fengu ríkisborg- ararétt árið 2011, 370, þar af 281 á fullorðinsaldri. Andrés Ingi Jónsson 6.500 ríkis- borgarar á síðasta áratug

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.