Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica Nigel Farage, þáverandi leiðtogiBreska sjálfstæðisflokksins, UKIP, og sá maður sem einna mest fór fyrir í aðdrag- anda Brexit- kosninganna, dró sig í hlé eftir að sig- ur vannst og út- ganga Bretlands úr Evrópusambandinu var samþykkt. Sama má segja um aðra baráttumenn útgöngunnar. Þeir litu svo á að einungis ætti eftir að framkvæma vilja almennings.    Þeir sem töpuðu Brexit-kosningunum litu öðrum aug- um á kosningaúrslitin. Þeir horfðu á þau eins og ESB gerir almennt um slík úrslit; þegar þau henta ekki þá er barist áfram, gripið til hræðsluáróðurs og krafist nýrra kosninga.    Samhliða þessari áframhaldandibaráttu aðildarsinna í Bret- landi hefur Evrópusambandið þvælst fyrir útgöngu af öllum mætti til að sýna Bretum, en þó ekki síður öðrum þjóðum, að þeir sem reyna útgöngu fá að finna til tevatnsins.    Nú hefur Farage skrifað grein íThe Telegraph og tilkynnt að hann sé kominn aftur í Brexit- slaginn. Hann telur óþolandi hvern- ig bresk stjórnvöld hafa haldið á málum og bendir á að stjórn- málamenn og margir stuðnings- menn þeirra á fjölmiðlunum sætti sig ekki við kosningaúrslitin um út- gönguna.    Þó að Farage sé aðeins einn mað-ur hafði hann mikil áhrif áður og getur gert það á ný. Einn maður með góðan málstað og sterka sann- færingu getur haft töluverð áhrif. Það er þess vegna líklegt að nú fari að hitna í kolunum í breskum stjórnmálum. Nigel Farage Kominn aftur í slaginn STAKSTEINAR Veður víða um heim 19.8., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 12 skýjað Nuuk 8 skýjað Þórshöfn 12 rigning Ósló 18 léttskýjað Kaupmannahöfn 20 skýjað Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 21 heiðskírt Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 24 léttskýjað Dublin 19 skúrir Glasgow 16 alskýjað London 24 skýjað París 28 heiðskírt Amsterdam 20 súld Hamborg 25 heiðskírt Berlín 30 heiðskírt Vín 33 heiðskírt Moskva 24 heiðskírt Algarve 31 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 30 heiðskírt Mallorca 31 léttskýjað Róm 28 þrumuveður Aþena 32 léttskýjað Winnipeg 18 þoka Montreal 19 léttskýjað New York 21 rigning Chicago 26 þoka Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 20. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:35 21:28 ÍSAFJÖRÐUR 5:28 21:45 SIGLUFJÖRÐUR 5:11 21:28 DJÚPIVOGUR 5:02 21:01 Að venju sló árlegur ísdagur Kjör- íss í Hveragerði í gegn en fyr- irtækið áætlar að á bilinu átta til tíu þúsund manns hafi bragðað á ísteg- undum sem voru á boðstólum. Vó ís- inn sem var gefinn samanlagt um tvö tonn. Ýmsir listamenn komu fram á ísdeginum og var almenn áægja með hvernig til tókst. „Klárlega voru það sænski sur- strömming og truffluísinn, sem vöktu mesta athygli,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss, spurð hvaða ístegundir hafi vakið mesta athygli. „Þær fengu misjöfn viðbrögð. Hins vegar voru Blue Moon og Fullveldisísinn svo- kallaði afar vinsælir meðal gesta.“ Ísdagurinn var hluti af bæjarhá- tíðinni Blómstrandi dagar sem haldin er í Hveragerði á ári hverju. Fjölskyldufólk fjölmennti í bæinn af því tilefni, enda var margt skemmtilegt um að vera. Gáfu tvö tonn af ís  Kátt í Hveragerði Ís Ung stúlka í fangi afa síns. Skökku skýtur við og í því felst tví- skinnungur að fulltrúar Samtaka at- vinnulífsins hafi áhyggjur af því að eftirlitsmyndavélum verði komið fyrir um borð í fiskiskipum. Þetta segir Halldór Oddsson, lögmaður hjá ASÍ, og bætir við að eftirlit með starfsfólki fyrirtækja hafi verið hert mjög á síðustu árum í skjóli SA. Nú tíðkist að krefja starfsfólk um lífs- ýni, þvagprufur og annað slíkt auk þess sem myndavélum hafi víða ver- ið komið upp. „Mér finnst ótrúverð- ugt að þetta sé grundvallaratriði fyr- ir SA, miðað við hvernig málin hafa verið hjá þeirra félagsmönnum,“ segir lögmaðurinn í samtali við mbl.is Sem dæmi nefnir Halldór að fylgst sé með vinnuskilum fólks með myndavélum, sem beinist meðal annars að peningakössum í versl- unum og starfsfólki þar. Þá séu upp- lýsingar um netnotkun starfsfólks og ökusíritar í bifreiðum annað dæmi um eftirlit atvinnurekenda. „Yfirlýsta skýringin er sú að verið sé að fylgjast með nýtingu bílsins og annað, en svo þegar á reynir höfum við líka dæmi um að þetta sé notað til að fylgjast með starfsfólki, segir Halldór. Hann bætir við að vímu- efnapróf geti vissulega átt rétt á sér í atvinnulífinu; en ekki megi leggja að jöfnu hættuleg störf í stóriðju og sjómennsku og eða létt störf í landi. Eftirlit með starfsfólki hefur verið hert  Áhyggjur SA af öryggismyndavélum í fiskiskipum tvískinnungur, að mati ASÍ Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Öryggi Myndavélar í miðborginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.