Morgunblaðið - 20.08.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Vegna rigningar á suðvestur-
horninu í maí, júní og júlí hef-
ur sala á útimálningu verið
minni nú en áður. Málarar
muna ekki eftir öðru eins
sumri og stefnir allt í að
framkvæmd ýmissa verkefna
frestist til næsta árs.
„Þetta er sviplausasta úti-
vertíðin hjá okkur í einhverja
áratugi,“ segir Vigfús Gísla-
son, framkvæmdastjóri
Flügger. Hann segir drjúg-
an hluta af veltu fyrirtækis-
ins yfir sumarið koma af sölu
á útimálningu, m.a. til fólks
sem sjálft sé að mála húsin
sín og þá gjarnan fyrri hluta
sumars. Því muni litlu
breyta varðandi málningar-
sölu þótt vel viðri í ágúst-
mánuði.
Baldvin Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Málning-
ar hf., segir sumarið hafa verið merki-
lega gott. „Miðað við hve mikið hefur
rignt finnst mér ótrúlegt hvað við höf-
um selt mikið af útimálningu og við-
arvörn en það er vissulega minna en í
fyrra,“ segir Baldvin. Hann bætir við
að málarar hafi þó verið seigir að
komast í gegnum þetta blauta sumar.
Sala hafi svo aukist nú í ágústmánuði,
enda noti fólk þurra daga nú til að
mála palla og girðingar heima hjá sér.
freyr@mbl.is
Málningarsala er minni
Rigningin hefur áhrif Verkefnum málara frestað um ár
Morgunblaðið/Ernir
Útivinna Fjöldi rigningardaga í sumar hefur sett strik í reikning málara.
Baldvin
Valdimarsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er gert til þess að efla nátt-
úruvernd í landinu, gefa henni meiri
slagkraft,“ segir Guðmundur Ingi
Guðbrandsson umhverfisráðherra
um tillögur sem lagðar hafa verið
fram um nýja stofnun sem ætlað er
að annast umsýslu allra þjóðgarða
og annarra friðlýstra svæða í land-
inu, auk almennrar náttúruverndar.
Í drögum að frumvarpi sem um-
hverfis- og auðlindaráðuneytið hefur
lagt fram til kynningar í samráðs-
gátt stjórnarráðsins og ráðherra
kynnir á fundum með ýmsum hags-
munaaðilum um allt land um þessar
mundir er gert ráð fyrir að stjórnun
þjóðgarðanna þriggja verði samein-
uð í einni stofnun ásamt öðrum frið-
lýstum svæðum. Þjóðgarðarnir eru
Vatnajökulsþjóðgarður, Þjóðgarður-
inn á Þingvöllum og Þjóðgarðurinn
Snæfellsjökull. Önnur friðlýst svæði
eru talin liðlega 100. Þeirra á meðal
eru verndarsvæði Laxár og Mývatns
og Breiðafjörður en bæði þessi
svæði eru friðlýst með sérstökum
lögum.
Aukin aðkoma heimafólks
„Þarna er safnað saman þekkingu
og reynslu, hægt er að efla og sam-
ræma stoðþjónustu, sinna fræðslu
og eftirliti og samræma merkingar.
Yfirsýn á málaflokkinn eykst,“ segir
Guðmundur Ingi.
Hann segir að jafnframt sé verið
að auka aðkomu sveitarstjórna, um-
hverfisverndarsamtaka, útivistar-
samtaka og ferðaþjónustunnar að
stýringu mála. Hann segir að fyr-
irmyndin sé sótt til Vatnajökulsþjóð-
garðs, þótt fyrirkomulagið sé ekki
alveg eins.
Í svæðisráðum þjóðgarðanna
þriggja verða þrír fulltrúar sveitar-
stjórna auk fulltrúa frá umhverfis-
verndarsamtökum, útivistarsamtök-
um og ferðamálasamtökum á
viðkomandi svæði. Gert er ráð fyrir
að Þingvallanefnd starfi áfram, kos-
in af Alþingi, en hlutverk hennar
snúi einkum að gamla þingstaðnum
sem nýtur sérstakrar verndar.
Áfram verða þjóðgarðsverðir á
hinum mismunandi svæðum Vatna-
jökulsþjóðgarðs, á Þingvöllum og á
Snæfellsnesi.
Óljóst með kostnað
Gert er ráð fyrir því að fjármagn
fylgi þeim verkefnum sem hin nýja
stofnun fær en í dag fær náttúru-
verndin fjármagn í gegnum nokkrar
stofnanir og mun það halda sér, að
sögn ráðherra. Guðmundur Ingi
segir að eftir sé að kostnaðargreina
frumvarpið. Hann segir þó að gera
megi ráð fyrir einhverjum samlegð-
aráhrifum með sameiningu verkefna
auk þess sem hluti aukinna fjárveit-
inga sem gert er ráð fyrir í fjár-
málaáætlun næstu ár komi inn á
þetta málefnasvið.
Vinnuheiti hinnar nýju stofnunar
er Þjóðgarðastofnun en ráðuneytið
hefur óskað eftir hugmyndum að
nafni. Sigrún Helgadóttir líffræðing-
ur getur þess í athugasemd í sam-
ráðsgáttinni að Þjóðgarðastofnun sé
ekki réttnefndi vegna þess að hlut-
verk hennar sé víðtækara. Stingur
hún meðal annars upp á Náttúru-
vernd Íslands eða Þjóðvöngum Ís-
lands sem nöfnum í staðinn.
Fáar athugasemdir hafa borist,
það sem af er. Þó hvetur sveitar-
stjórn Hrunamannahrepps ráðu-
neytið til að endurskoða hugmynd
um nýja stofnun og nota frekar þær
stofnanir sem fyrir eru, svo sem
Umhverfisstofnun. Fjármagnið
verði nýtt til uppbyggingar og
verndunar á svæðunum sjálfum.
Ný stofnun yfir
friðlýst svæði
Ráðherra vill efla náttúruvernd
Þingvellir Þjóðgarðarnir hafa mikið aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn.
Morgunblaðið/Ómar