Morgunblaðið - 20.08.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verður kynnt fullt
af þeim möguleikum sem
í boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak og
bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir þriðjudaginn 21. ágúst
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 24. ágúst 2018
Heilsa& lífsstíll
SÉRBLAÐ
Ráðstefna með yfirskriftinni
„Bræðralag skipalesta bandamanna“
(e. The Brotherhood of the Allied
Convoys) var haldin hér á landi í síð-
ustu viku um skipalestir sem fóru frá
Íslandi og Skotlandi til Múrmansk og
Arkangelsk í Rússlandi á tímum síð-
ari heimsstyrjaldar. Samskonar ráð-
stefna var haldin fyrir átta árum.
Þátttakendur voru fulltrúar safna
og stofnana, m.a. frá Rússlandi, Skot-
landi, Frakklandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum, sem sérhæfa sig í
frásögn og varðveislu minningar
skipalestanna. Einnig tóku þátt þátt-
takendur í skipalestunum og afkom-
endur þeirra. Á miðvikudag var hald-
in minningarathöfn í
Fossvogskirkjugarði og Hernáms-
setrið á Hlöðum í Hvalfirði heimsótt
þar sem er minnisvarði um látna sjó-
menn, ber hann nafnið Von um frið (e.
Hope for Peace). Erindi voru haldin í
rússneska sendiráðinu.
Eftir ráðstefnuna voru stofnuð
regnhlífarsamtök með sama heiti og
yfirskrift ráðstefnunnar og í desem-
ber verður haldin ráðstefna í St. Pét-
ursborg þar sem saga skipalestanna
verður rædd frekar.
Morgunblaðið/Valli
Ráðstefna Anna Platonova, formaður ungliðaarms Polar Convoy-klúbbsins
í St. Pétursborg, og Jack Patterson, skipalestarmaður frá Skotlandi.
Morgunblaðið/Valli
Gestir Taras Goncharenko, skipalestarmaður frá Rússlandi, Anton Vasi-
liev, sendiherra Rússlands á Íslandi, Jack Patterson, skipalestarmaður frá
Skotlandi, og Yuriy Alexandrov frá Rússlandi, forseti Polar Convoy-
samtakanna, kapteinn og þátttakandi í síðari heimsstyrjöld.
Minntust skipalesta
heimsstyrjaldar
Heimsóttu hernámssetrið að Hlöðum
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á sjötta tímanum í gær-
morgun vegna hugsanlegs elds í lýsisverksmiðjunni á Granda.
Við komu slökkviliðs var ljóst að ekki var um eld að ræða.
„Þetta reyndist ekki vera neitt að ráði. Það var hitablásari
sem myndaði einhvern hita og þá fór brunavarnakerfið í
gang,“ sagði varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í
samtali við mbl.is.
Alls voru 64 útköll í fyrrakvöld og í fyrrinótt sem þykir
gríðarmikið.
„64 útköll eru mjög, mjög mikið. Það eru kannski svona 30
venjulega. Þetta var helmingi meira en vanalega,“ sagði varð-
stjórinn.
Annríkt hjá slökkviliðinu
Helmingi fleiri útköll en venjulega á laugardaginn
Morgunblaðið/Eggert
Ákveðið hefur verið að færa starf-
semi Lækjar, athvarfs fyrir geðfatl-
aða í Hafnarfirði á St. Jósefsspítala.
Þetta kemur fram í frétt RÚV, en
ástæða þessa er að húsnæði at-
hvarfsins er myglað, gluggar fúnir,
vatn lekur inn í þvottahús þess og
vatn í lögnum frýs. Gera þarf við
húsið fyrir 17,3 milljónir króna til
ársins 2020.
Lækur hefur verið starfræktur í
30 ára gömlu timburhúsi við Hörðu-
velli og um sextíu manns nýta sér
þjónustuna. 15 til 20 á hverjum degi.
Hefur starfsemin verið rekin með
samningi Hafnarfjarðarbæjar,
Rauða krossins og svæðisskrifstofu
um málefni fatlaðra á Reykjanesi frá
árinu 2003. Frá áramótum hefur
Hafnarfjarðarbær einn rekið Læk.
Mygla í húsinu verið staðfest
Í minnisblaði sviðsstjóra Fjöl-
skylduþjónustu Hafnarfjarðar, sem
kynnt var fjölskylduráði bæjarins á
föstudag segir að húsið sé vel stað-
sett fyrir starfið, en aðgengi sé erfitt
og húsið sé í slæmu ástandi.. Sam-
kvæmt minnisblaðinu hefur verið
staðfest að mygla sé í húsinu.
Samkvæmt skýrslu umhverfis- og
skipulagsþjónustu bæjarins er með-
al verkefna þessa árs að einangra
skólplögn, koma í veg fyrir að vatn
frjósi í lögnum í þvottahúsi, komast
fyrir leka í mjög fúnum gluggum og í
þvottahúsi, endurnýja fúna vegg-
klæðningu utanhús og endurmála
hana og tréverkið að utan. Kostnað-
ur er áætlaður sjö milljónir.
Flytja athvarfið
á St. Jósefsspítala
Flutningar Bæjaryfirvöld ákváðu
að flytja skyldi athvarfið Læk.