Morgunblaðið - 20.08.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Berta Dröfn Ómarsdóttir, óp-erusöngkona og kennarivið Söngskólann í Reykja-vík, sneri nýlega heim til
Íslands úr söngævintýri til Ítalíu. Þar
tók hún þátt í sumaróperuhátíð í
sveitarfélaginu Fiera di Primiero í
Trentínó og fór meðal annars með eitt
aðalhlutverkið í uppsetningu á óp-
erunni Alcina eftir Georg Friedrich
Händel. Einnig söng hún á útisviði í
Mezzano og í útileikhúsi í Fidenza.
„Við komum þangað, allir söngv-
ararnir og allt tónlistarfólkið og eydd-
um öllu sumrinu saman,“ segir Berta
um reynsluna. „Þetta er árleg hátíð í
þessu litla sveitarfélagi sem reiðir sig
mjög á ferðamannaiðnaðinn. Það er
mikið skíðasvæði þarna yfir veturinn
en þau vantar í rauninni aðdráttarafl
til að fá túrisma yfir sumarið líka.
Þetta er þeirra leið til að fylla hótelin
líka á sumrin. Það er líka ofboðslega
heitt á Ítalíu á sumrin og margir Ítalir
flýja hitann og fara upp í fjöllin, þar
sem er aðeins bærilegra að vera.“
Grófara en von var á
„Þetta var alveg rosalega lif-
andi,“ heldur Berta áfram. „Það var
óperuhátíð en líka söngleikjahátíð þar
áður. Söngleikjakrakkarnir fóru og
við komum inn í staðinn. Ég fór með
hlutverk Morgönu í Alcina eftir
Händel. Ég er mikill barrokk-
aðdáandi og ég er mjög hamingjusöm
yfir því að hafa fengið þetta hlutverk.
Morgana er systir Alcinu sem er
drottning á ævintýraeyju. Þær syst-
urnar leggja oft álög á myndarlega
karlmenn sem koma á eyjuna, not-
færa sér þá og breyta þeim svo í dýr,
steina eða einhver náttúruöfl þannig
að þeir komist aldrei í burtu. Þær eru
brenndar á báli í lokin, þannig að já,
ég var brennd á báli.“
Berta segir að hana hafi lengi
dreymt um að leika hlutverk Mor-
gönu í óperunni en að leikstjóri
verksins hafi haft mjög ólíka hug-
mynd um túlkun á hlutverkinu.„Leik-
stjórinn, Andjela Bizimoska, setti
þetta upp rosalega kynferðislega.
Þetta var mjög gróft. Ég var búin að
mynda mér sjálf hugmyndir um það
að Morgana væri litla systirin sem liti
upp til stóru systur sinnar en væri
sjálf saklaus og vissi ekki betur. Svið-
setningin hins vegar gerði Morgönu
alveg rosalega grófa. Ég þurfti að
syngja byrjunararíuna mína og blátt
áfram leika sjálfsfróun í sama mund.
Ég þurfti að dansa kjöltudans og all-
an pakkann. Fyrstu dagana var þetta
sjokk fyrir mig því ég var búin að sjá
þetta fyrir mér öðruvísi. En svo tekur
maður bara á því og gerir það sem
leikstjórinn segir. Þetta var ofboðs-
lega faglegt og vel gert þótt þetta hafi
verið mjög gróft.“
Berta segir hápunkt ferðarinnar
vera að hafa fengið að flytja óp-
erusöng í höll í Tonadico. „Það var
frekar magnað andrúmsloft. Það var
svo gaman að koma í svona gamalt
hús og syngja. Manni finnst þetta
eiga svo vel heima á svona stað, að
syngja óperur og aríur í svona gam-
alli höll. Það er alveg stórbrotið.“
Berta er með fleiri Ítalíuferðir í
bígerð, meðal annars til að syngja í
brúðkaupi ásamt strengjakvartett og
til að taka þátt í keppni Lions Club,
PREMIO Giangiacomo Guelfi, þar í
landi.
Óperusöngævintýri Bertu á Ítalíu
„Það var svo gaman að
koma í svona gamalt hús
og syngja,“ segir Berta.
„Manni finnst þetta eiga
svo vel heima á svona
stað, að syngja óperur og
aríur í svona gamalli
höll. Það er alveg stór-
brotið.“
Ópera Berta Dröfn í hlutverki Morgönu eftir barsmíðar í óperunni Alcina eftir Georg Friedrich Händel. Morgana hafði lengi verið óskahlutverk Bertu.
Morgana Berta Dröfn í hlutverki Morgönu að daðra við elskhuga sinn,
Oronte, í Alcina eftir Händel.
Ég hitti vin minn á kaffihúsium daginn. Hann er rúm-lega 60 ára í lífaldri, enferskari á líkama og sál en
margir helmingi yngri. Allt í kringum
hann er fólk sem er hætt að vinna eða
á leiðinni að hætta að vinna. Hann
hefur engan áhuga á því að setjast í
helgan stein, er stútfullur af orku og
framkvæmdagleði og langar að láta
gott af sér leiða. Ég verð sjálfur 50
ára á næsta ári. Hef engar áhyggjur
af því. Mér finnst ég bara rétt hálfn-
aður með lífið. Ég er ekki farinn að
velta fyrir mér starfslokum en veit af
ýmsum á mínum aldri sem eru farnir
að gera það. Vilja ekki hætta í öruggu
vinnunni sinni – sem er í sjálfu sér
mótsögn, það er ekki neitt til sem
heitir örugg vinna, á meðan maður
vinnur fyrir aðra er alltaf hægt að
segja manni upp – og eru eiginlega að
teygja lopann fram að starfslokum.
Ég á erfitt með að tengja við þann
hugsunarhátt. Enda er það þannig,
eins og vinur minn á kaffihúsinu gat
sagt mér mörg dæmi um, að þegar
fólk hættir að vinna vegna lífaldurs þá
missir það gjarna orku og lífsneista.
Verður allt í einu miklu eldra, bæði
líkamlegra og andlega. Þarf að leggja
sig oftar á daginn. Hættir að þora að
gera það sem það annars hafði hlakk-
að til að gera á meðan það var að
klára síðustu árin í vinnunni. Þetta er
rökrétt þegar nýjustu skilgreiningar
á heilsu eru skoðaðar. Í þeim skiptir
miklu máli fyrir einstaklinginn að
upplifa að hann hafi tilgang í lífinu. Sé
hluti af samfélagi og skipti máli í sam-
félaginu. Ef fólk gerir ekkert annað
en að fara í golf og blunda nokkrum
sinnum á dag eftir starfslok, missir
það þennan tilgang og hlutverk sem
það hafði áður í vinnunni. Ég held að
við sem samfélag ættum að fara að
hrista aðeins upp í umræðunni um
starfslok, fara að hugsa þetta öðru-
vísi. Hætta að horfa blint á starfs-
aldur, frekar meta getu, orku og vilja
einstaklingsins til þess að halda áfram
að sinna vinnu og verkefnum. Leyfa
fólki að minnka við sig jafnt og þétt.
Halda áfram að hafa hlutverk og til-
gang. Lykilatriði í þessu er að at-
vinnurekendur opni hugann og fari að
horfa á 60 plús fólkið sem verðmæta
og dýrmæta reynslubolta.
Njótum ferðalagsins!
Getty Images/iStockphoto
Á besta aldri 60 plús fólkið er verð-
mætir og dýrmætir reynsluboltar.
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
60 plús