Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, fundaði með Vladimír Pútín,
forseta Rússlands, í Meseberg-höll-
inni skammt frá Berlín um helgina
þar sem átök í Úkraínu og Sýrlandi,
kjarnorkusamkomulagið við Íran, og
orkumál voru efstu mál á dagskrá.
Var fundurinn sá fyrsti þar sem
Merkel tekur á móti Pútín í Þýska-
landi og ræðir við hann augliti til
augliti síðan Rússar innlimuðu
Krímskaga árið 2014. Þau funduðu
þó í Sochi í maí sl. og var litið á sam-
ræður helgarinnar sem framhald
þess fundar.
Sérfræðingar höfðu litið á fund
leiðtoganna tveggja sem tækifæri til
að koma sambandinu milli Berlínar
og Moskvu í betra horf en talsverð
spenna hefur ríkt í samskiptum
ríkjanna undafarin misseri. Ummæli
Pútíns fyrir fund þeirra Merkel virt-
ust gefa til kynna að hann væri á
sama máli, en hann nefndi m.a. að
hann vildi hjálp frá Þýskalandi við að
endurbyggja innviði Sýrlands til
þess að sýrlenskir flóttamenn gætu
snúð aftur til síns heima, að því er
segir í frétt The New York Times.
Þörf á frekara samstarfi
Merkel benti að sama skapi á að
þörf væri á frekara samstarfi, en gaf
þó til kynna að byrðin væri mikil á
stjórnvöldum í Moskvu, segir í frétt
The New York Times. „Þýskaland,
en sérstaklega Rússland, sem á fast
sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna, hefur skyldu til þess að finna
lausnir. Ég er þeirrar skoðunar að
einungis sé hægt að taka á umdeild-
um málum með og í gegnum sam-
ræður,“ sagði Merkel fyrir fundinn.
Ræddu umdeilda gasleiðslu
Þá ræddu leiðtogarnir einnig um
flutninga á jarðgasi en um 40% af því
jarðgasi sem Þýskaland flytur inn
kemur frá Rússlandi, meira en nokk-
uð annað ESB-ríki. Fyrirhuguð er
lagning á nýrri gasleiðslu frá Rúss-
landi, gegnum Eystrasaltið og til
Þýskalands.
Lagning gasleiðslunnar, sem
nefnist Nord Stream 2, er umdeild
fyrir þær sakir að með henni verði
Evrópuríkin of háð einu orkufyrir-
tæki, Gazprom, sem er í eigu rúss-
neska ríkisins. Pútín lagði áherslu á
við blaðamenn fyrir fundinn þá þörf
sem er fyrir gasleiðsluna í ljósi vax-
andi eftirspurnar eftir orkuauðlind-
um í evrópskum efnahag.
Sýrland og orkumál efst á dagskrá
Angela Merkel fundaði með Vladimír Pútín í Þýskalandi um helgina Framhald af fundi þeirra í
Sochi frá því í maí Stirð samskipti hafa verið á milli ríkjanna undanfarin ár Aukið orkusamstarf
AFP
Leiðtogar Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Angela Merkel Þýskalands-
kanslari ræða við blaðamenn fyrir fund þeirra tveggja í Meseberg-höllinni.
Stjórnvöld í Ekvador hafa innleitt nýja reglugerð sem
kemur í veg fyrir að flóttamenn frá Venesúela fái inn-
göngu í landið án vegabréfa. Venesúelabúar, sem flýja
kreppu og pólitískan ófrið í heimalandinu, þurfa að
fara í gegnum Kólumbíu á leiðinni til Ekvador og því er
útlit fyrir að tugþúsundir verði strand í Kólumbíu.
AFP
Flóttamenn sitja fastir í Kólumbíu
Forseti Afganistans, Ashraf Ghani,
lýsti í gær yfir tímabundnu þriggja
mánaða vopnahléi við talibana, þó
gegn því skilyrði að talibanar gangi
einnig að vopnahléinu. „Vopnahléíð
ætti að vera virt af fylkingum beggja
hliða. Framhald og gildistími vopna-
hlésins veltur einnig á afstöðu talib-
ana,“ sagði Ghani í ræðu sinni í gær.
Ghani bætti við að ef talibanar
samþykktu vopnahlé þá myndi það
gilda næstu daga yfir Eid al-Adha
trúarhátíðina. Þó eru vonir bundnar
við að hægt verði að framlengja
vopnahléið til 21. nóvember nk. en sá
dagur markar fæðingarafmæli Mú-
hameðs spámanns, segir í frétt
AFP-fréttaveitunnar. Talibanar
höfðu ekki gefið svar við yfirlýsingu
Ghani forseta síðdegis í gær.
Blóðug átök hafa geisað und-
anfarnar vikur víðsvegar um Afgan-
istan. Hæst ber áhlaup talibana á
borgina Ghazni, sem er aðeins í
tveggja klukkustunda aksturs-
fjarlægð frá höfuðborginni Kabúl.
„Við biðjum leiðtoga talibana um
að verða við óskum Afgana um lang-
varandi og raunverulegan frið og við
hvetjum þá til að gera sig tilbúna
fyrir friðarviðræður byggðar á ísl-
ömskum gildum,“ sagði Ghani í
ræðu sinni í forsetahöllinni.
Boðar þriggja mánaða vopnahlé
Tveir öflugir jarðskjálftar riðu yfir
indónesísku eyjuna Lombok í gær.
Sá fyrri var af stærðinni 6,3 og sá
seinni af stærð-
inni 6,9 á Rich-
ter. Þrátt fyrir
öfluga skjálfta
bárust ekki
fregnir um
mannfall eða
frekari skemmd-
ir, að því er fram
kemur í frétt
AFP-fréttaveit-
unnar.
Einn íbúi á
eyjunni, Agus Salim, sagði við AFP
að jarðskjálftinn hefði vakið hann.
„Jarðskjálftinn var gríðarlega öfl-
ugur. Allt lék á reiðiskjálfi,“ sagði
Agus Salim við AFP. „Við vorum
öll sofandi í tjaldi. Ég var nýsofn-
aður þegar allt byrjaði að skjálfa
allt í einu...Allir hlupu út á göturnar
öskrandi og grátandi,“ sagði Agus
Salim við AFP.
Íbúar Lombok í sárum
Rúmar tvær vikur eru frá því að
mannskæðir jarðskjálftar riðu yfir
eyjuna, sem urðu að minnsta kosti
481 manni að bana og þúsundir
slösuðust. Þá skildi jarðskjálftinn
frá 5. ágúst sl. 350 þúsund íbúa eft-
ir á vergangi. Margir þeirra sem
misstu heimili sín hafast nú við í
tjöldum.
Verulega skemmdir vegir, þá sér-
staklega í hinum fjallháa norður-
hluta Lombok, hafa gert hjálpar-
stofnunum á svæðinu erfitt fyrir.
Efnahagslegt tjón af völdum jarð-
skjálftanna er metið á 348 milljónir
Bandaríkjadollara. axel@mbl.is
Enn skelfur jörð
við Lombok-eyju
Um 350 þúsund íbúar eru á vergangi
Skjálfti Íbúi geng-
ur um rústirnar.
Forseti Gana, Nana Akufo-Addo, hefur lýst yfir viku-
langri þjóðarsorg í landinu frá og með deginum í dag til
þess að minnast Kofis Annans, handhafa friðarverð-
launa Nóbels og fyrrverandi aðalframkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, sem lést á laugardag eftir skamm-
vinn veikindi, áttræður að aldri. Akufo-Addo segir að
samlandi sinn hafi verið fullkominn diplómati og þjóðin
sé harmi slegin vegna fráfalls hans. Annan tók við sem
aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna af Egypt-
anum Boutros Boutros-Ghali og gegndi stöðunni frá
1997 til 2006. Annan kom til Íslands árið 2011 og var þá
aðalfyrirlesari á hátíðarmálþingi Háskóla Íslands.
GANA
Vikulöng þjóðarsorg vegna andláts Annans
Kofi Annan.